1561. fundur

22.04.2026 08:15

1561. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 22. apríl 2026 kl. 08:15

Viðstaddir: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður, Díana Hilmarsdóttir, Guðný Birna Guðmundsdóttir Margrét A. Sanders og Margrét Þórarinsdóttir.

Að auki sátu fundinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Helga María Finnbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi og Erna María Svavarsdóttir ritari.

Bæjarráð samþykkti 5-0 að taka á dagskrá Húsnæðismál Fjölbrautaskóla Suðurnesja (2024010257). Fjallað var um málið undir dagskrárlið 9.

1. Búslóðir að Grænásbraut 602 - tillaga að samkomulagi (2026040245)

Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs og Unnar Steinn Bjarndal bæjarlögmaður mættu á fundinn.

Lögð fram drög að samkomulagi um skaðabætur vegna tjóns á búslóðum Grænásbrautar 602.

Bæjarráð samþykkir framlögð drög og felur Unnari Steini Bjarndal bæjarlögmanni að vinna áfram í málinu.

2. Akademíureitur (2025010481)

Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs og Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi mættu á fundinn.

Lagt fram minnisblað starfshóps um næstu skref verkefnisins Akademíureitur ásamt verðkönnun og tilboði VSÓ ráðgjafar.

Bæjarráð samþykkir 5-0 tillögur starfshóps um að hefja söluferli húsnæðis Akademíunnar sem hluta af heildarverkefninu. Bæjarráð samþykkir einnig tilboð VSÓ í ráðgjöf varðandi verkefnið upp á 4,6 milljónir sem tekið verður af lykli 31-410.

Bæjarráð leggur til að tímalína verkefnisins miði við að gögn verði tilbúin í síðasta lagi 1. október 2026 en leggur áherslu á að vinna við skipulag er hluti af heildarverkefninu.

3. Afreksbraut (2022050239)

Lögð fram tillaga stýrihóps vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja á Afreksbraut.

Bæjarráð þakkar stýrihópi og hagsmunaaðilum fyrir þá vinnu sem unnin hefur verið í málinu undanfarin misseri. Bæjarráð samþykkir 5-0 framlagðar tillögur sem fela í sér að undirbúningur verði hafinn við að byggja nýtt fimleikahús og stoðrými auk samtals fimm æfingavalla fyrir knattspyrnudeildir UMFN og Keflavíkur. Staðsetning vallanna verður ákveðin í samráði við félögin. Eins og fram kemur í minnisblaði stýrihóps þá er mikill vilji innan íþróttahreyfingarinnar og bæjarins til að hefjast handa sem allra fyrst en markmið þeirrar nálgunar sem lögð er fram er að tryggja ábyrga og hagkvæma nýtingu opinbers fjár. Framgangur og tímasetning verkefnisins er því háð framvindu tekjuöflunarþátta sem lagðir voru til grundvallar.

Bæjarráð fagnar því að brátt getur vinna hafist við uppbyggingu nýs fimleikahúss og fjölgun æfingavalla og leggur ríka áherslu á áframhaldandi góða samvinnu við íþróttahreyfinguna.

Bæjarráð felur stjórn eignasjóðs að taka við verkefninu samkvæmt verklagsreglu þar sem fullnaðarhönnun og kostnaðaráætlun verða unnin og að tekið sé tillit til verkefnisins í vinnu við fjárfestingaáætlanir 2027-2032.

4. Samræmd flokkun starfsstöðva Reykjanesbæjar (2023110097)

Samræma þarf innkaup á sorpílátum fyrir starfsstöðvar Reykjanesbæjar. Á 69. fundi sjálfbærniráðs Reykjanesbæjar vísaði ráðið erindinu til skoðunar hjá bæjarráði.

Stofnanir Reykjanesbæjar eiga samkvæmt lögum að flokka í fjögur flokkunarílát til að framfylgja flokkunarreglum sveitarfélagsins og lögum um meðhöndlun úrgangs nr. 55/2003. Með breytingum á lögunum 2021-2023 er skylt að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka; almennt sorp, plast, pappír og matarleifar. Auk þess þarf að yfirfara samninga um sorphirðu til að gæta samræmis milli stofnana.

Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að vinna áfram í málinu.

5. Skólavellir - nýting skólaárið 2026-2027 (2026030248)

Lagt fram minnisblað um nýtingu húsnæðis á malarvellinum við Hringbraut fyrir frístundaheimili Holtaskóla skólaárið 2026-2027.

Bæjarráð samþykkir þarfagreininguna og vísar málinu til stjórnar Eignasjóðs samkvæmt verklagsreglu VRL-0044.

6. Aðalfundur landeigenda Ytri-Njarðvíkur með Vatnsnesi (2026040231)

Lagt fram fundarboð fyrir aðalfund félags landeigenda Ytri-Njarðvíkurhverfis með Vatnsnesi ásamt tilnefningu fulltrúa Reykjanesbæjar á aðalfund félagsins.

Bæjarráð felur Gunnari K. Ottóssyni að fara með atkvæði sveitarfélagsins á aðalfundinum.

Bæjarráð samþykkir að tilnefna Erlu Bjarnýju Gunnarsdóttur sem aðalmann í stjórn félagsins fyrir sveitarfélagið. Gunnar K. Ottósson fer út sem varamaður og Anna Þóra Gísladóttir er tilnefnd sem varamaður í hans stað.

Fylgigögn:

Aðalfundarboð - aðalfundur félags Landeigenda Ytri Njarðvíkurhverfis með Vatnsnesi

7. Fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 15. apríl 2026 (2026010317)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Fylgigögn:

822. fundur stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum

8. Fundargerðir stjórnar Kölku sorpeyðingarstöðvar 13. janúar og 10. febrúar 2026 (2026040232)

Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnarfunda Kölku sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja.

Fylgigögn:

Fundargerð 576. stjórnarfundur Kölku

Fundargerð 577. stjórnarfundur Kölku

9. Húsnæðismál Fjölbrautaskóla Suðurnesja (2024010257)

Málinu var vísað til umræðu í bæjarráði á fundi bæjarstjórnar þann 21. apríl 2026.

Forseta bæjarstjórnar falið að finna fundartíma með fulltrúum ríkisins.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:22. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 5. maí 2026.