- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður, Díana Hilmarsdóttir, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Margrét A. Sanders og Margrét Þórarinsdóttir.
Að auki sátu fundinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Helga María Finnbjörnsdóttir áheyrnarfulltrúi og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
Bæjarráð samþykkti 5-0 að taka á dagskrá Lilja Karen Steinþórsdóttir (Hótel Keflavík) - umsókn um tækifærisleyfi (2026030287). Fjallað var um málið undir dagskrárlið 8.
Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs mætti á fundinn.
Lagðar fram tillögur sem miða að því að auka þjónustu skammtímavistunar fatlaðra barna.
Bæjarráð samþykkir 25% viðbótarstöðugildi í Heiðarholti sem rúmast innan fjárheimilda 2026. Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að vinna áfram í öðrum tillögum sem fram koma í erindinu. Bæjarráð telur mikilvægt að ný bæjarstjórn vinni að framtíðarsýn sveitarfélagsins í málaflokknum.
Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs mætti á fundinn og fór yfir stöðu almenningssamganga í Reykjanesbæ.
Bæjarráð samþykkir að nýtt verði pöntunarþjónusta í akstur almenningssamgangna í fyrstu ferð kl.06:00 á morgnana á virkum dögum í stað núverandi aksturs sem hefur ekki verið mikið nýttur. Aksturinn rúmast innan fjárheimilda 2026.
Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs mætti á fundinn.
Lagt fram erindi frá B9 Byggingum ehf. varðandi makaskipti á iðnaðarlóð.
Bæjarráð felur Erlu Bjarnýju Gunnarsdóttur lögfræðingi umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs mætti á fundinn.
Lagt fram erindi frá Blue Eignum ehf. og Blue Car Rental ehf. vegna gatnagerðagjalds.
Bæjarráð felur Erlu Bjarnýju Gunnarsdóttur lögfræðingi umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Lagt fram aðalfundarboð og hluthafafundarboð Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs.
Bæjarráð felur Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra að fara með atkvæði Reykjanesbæjar á fundunum.
Bæjarráð tilnefnir Kjartan Má Kjartansson bæjarstjóra í stjórn Keilis.
Lagt fram fundarboð um ársfund Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum.
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Reykjanes jarðvangs ses.
Fylgigögn:
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:50. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 19. maí 2026.