1567. fundur

11.06.2026 08:15

1567. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn að Grænásbraut 910 - Seltjörn, 11. júní 2026, kl. 08:15

Viðstaddir: Gunnlaugur Kárason formaður, Alexander Ragnarsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Margrét Þórarinsdóttir.

Að auki sátu fundinn Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Kristján Pétur Kristjánsson boðaði forföll, Alexander Ragnarsson sat fyrir hann.

1. Niðurstaða útboðs - lóðarfrágangur Myllubakkaskóla (2021050174)

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs mætir á fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

Lagt fram minnisblað vegna útboðs á lóðarfrágangi við Myllubakkaskóla.

Bæjarráð hafnar öllum innsendum tilboðum þar sem öll tilboð sem bárust voru yfir kostnaðaráætlun. Bæjarráð felur Hreini Ágúst Kristinssyni deildarstjóra eignaumsýslu að vinna málið áfram.

2. Stefna um ljósvist í Reykjanesbæ (2025090508)

Aron Heiðar Steinsson veitustjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Kynnt drög að ljósvistarstefnu Reykjanesbæjar.

Bæjarráð felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

3. Innleiðing tengigjalds á fráveitu (2026060140)

Aron Heiðar Steinsson veitustjóri situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lagt fram minnisblað um tengigjald fráveitu Reykjanesbæjar.

Bæjarráð felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

4. Launað námsleyfi - verklagsregla (2026060125)

Iðunn Kristín Grétarsdóttir forstöðumaður launa- og kjaradeildar situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lagðar fram til kynningar verklagsreglur um launað námsleyfi starfsfólks Reykjanesbæjar.

5. Barnaverndarþjónusta - drög að samningi við Grindavíkurbæ (2025120125)

Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lögð fram uppfærð drög að samningi Reykjanesbæjar og Grindavíkurbæjar sem kynntur hafði verið á 1564. fundi bæjarráðs 15. maí 2026.

Bæjarráð samþykkir framlögð drög og felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Reykjanesbæjar.

6. Skólaþjónusta - drög að samningi við Grindavíkurbæ (2026060152)

Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs situr fundinn undir þessum dagskrárlið.

Lögð fram drög að þjónustusamningi milli Reykjanesbæjar og Grindavíkurbæjar um samstarf veitingu skólaþjónustu við leik- og grunnskóla Grindavíkurbæjar.

Bæjarráð samþykkir framlögð drög og felur Helga Arnarsyni sviðsstjóra menntasviðs að undirrita samning þar að lútandi.

7. Sumarbúðir Íþróttasambands fatlaðra - stuðningur (2026060065)

Lagt fram erindi frá stjórn Íþróttasambandi fatlaðra.

Þar sem íþrótta- og tómstundaráð hefur ekki tekið til starfa leitar íþrótta- og tómstundafulltrúi til bæjarráðs með erindið. Um er að ræða styrkbeiðni vegna þátttöku einstaklinga úr Reykjanesbæ og skv. íþrótta- og tómstundafulltrúa er til fjármagn á lykli 06-020-9220. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

8. Stuðningur við afreksíþróttafólk (2026060112)

Lagt fram erindi frá Sundráði ÍRB, beiðni um stuðning við sundfólk sem hefur verið valið í landsliðsverkefni þetta árið. Áætlaður kostnaður vegna verkefnisins er kr. 5.000.000.

Bæjarráð samþykkir erindið og felur Hafþóri B. Birgissyni íþrótta- og tómstundafulltrúa að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.

9. Sumarstörf hjá knattspyrnudeildum Keflavíkur og Njarðvíkur (2026060128)

Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir tilfærslu fjármagna af launalykli Vinnuskólans 06-270-1110 yfir á fjármagnaslykla 06-610-4990 knattspyrnudeild Keflavíkur og 06-611-4990 knattspyrnudeild Njarðvíkur vegna ráðningar starfsfólks yfir sumartímann.

Bæjarráð samþykkir 5-0 tilfærslu fjármagnsins.

10. Kosningar í nefndir/stjórnir sbr. 58. gr. samþykktar um stjórn Reykjanesbæjar (2026060015)

10.1. Stjórn Brunavarna Suðurnesja bs., 3 aðalmenn og 3 til vara
Aðalmenn: Gunnlaugur Kárason (M), Guðbergur Reynisson (D) og Guðný Birna Guðmundsdóttir (S)
Varamenn: Rúnar Fossádal Árnason (M), Alexander Ragnarsson (D) og Aðalheiður Hilmarsdóttir (S)

10.2. Svæðisskipulag Suðurnesja, 2 aðalmenn og 2 til vara
Aðalmenn: Rúnar Fossádal Árnason (M) og Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi
Varamenn: Guðbergur Reynisson (D) og Gunnlaugur Kárason (M)

10.3. Landeigendur Ytri-Njarðvíkurhverfis með Vatnsnesi, 1 aðalmaður og 1 til vara
Aðalmaður: Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur umhverfis- og skipulagssviðs
Varamaður: Anna Þóra Gísladóttir verkefnastjóri byggingafulltrúa

10.4. Farsældarráð Suðurnesja
Margrét Þórarinsdóttir (D) fyrir hönd meirihluta bæjarstjórnar
Sigurrós Antonsdóttir (S) fyrir hönd minnihluta bæjarstjórnar
Heru Ósk Einarsdóttur fyrir hönd velferðarsviðs
Vilborg Pétursdóttir fyrir hönd velferðarsviðs
Helga Arnarson fyrir hönd menntasviðs
Kolfinna Njálsdóttir fyrir hönd menntasviðs

11. Umsagnarmál í samráðsgátt (2026010453)

Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga), mál nr. 93/2026
Með því að smella hér opnast frumvarp til breytingar á lögum

Lögð fram umsögn frá Halldóri K. Hermannssyni sviðsstjóra atvinnu- og hafnamála.

Fylgigögn:

Umsögn Reykjanesbæjar - frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:25. Fundargerðin fer til afgreiðalu bæjarstjórnar 16. júní 2026.