- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
- Fánahyllar
Viðstaddir: Gunnlaugur Kárason formaður, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Kristján Pétur Kristjánsson og Margrét Þórarinsdóttir.
Að auki sátu fundinn Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
Ásmundur E. Þorkelsson framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja situr fundinn undir þessu dagskrármáli.
Umræður um málefni heilbrigðiseftirlits á Suðurnesjum.
Bæjarráð felur Vilhjálmi Árnason bæjarstjórar að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Erindi Samgöngustofu vegna umsóknar um leyfi fyrir geymslustað ökutækja vegna ökutækjaleigu. Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagnar.
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fylgigögn:
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 1000
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Fylgigögn:
824. fundur stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 10062026
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Kölku sf.
Fylgigögn:
579. stjórnarfundur Kölku - Fundargerð
580. stjórnarfundur Kölku - Fundargerð
Regína Fanný Guðmundsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs situr fundinn undir þessu dagskrármáli.
Lögð fram drög að 3 mánaða árshlutauppgjöri fyrir tímabilið 1. janúar – 31. mars 2026.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30.