1569. fundur

25.06.2026 08:15

1569. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar, haldinn að Grænásbraut 910, 25. júní 2026, kl. 08:15

Viðstaddir: Gunnlaugur Kárason formaður, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Kristján Pétur Kristjánsson og Margrét Þórarinsdóttir.

Að auki sátu fundinn Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

1. Sala Kadeco á lóðum við Tæknivelli (2020120241)

Pálmi Freyr Randversson framkvæmdastjóri Kadeco, Samúel Torfi Ketilsson þróunarstjóri Kadeco og Guðlaugur Helgi Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs sitja fundinn undir þessu dagskrármáli.

Lögð fram til kynningar sölu- og markaðsáætlun vegna lóða á Tæknivöllum sem Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. (Kadeco) auglýsir til sölu fyrir hönd íslenska ríkisins í samvinnu við Reykjanesbæ.

Bæjarráð leggur áherslu á að hlutur ríkissjóðs í innheimtu á fjármunum í formi byggingarréttargjalds vegna úthlutunar lóða á Tæknivöllum verði nýttur til uppbyggingar á svæðinu. Það er mikilvægt að Kadeco haldi Reykjanesbæ upplýstum um framgang úthlutunar lóða.

2. Eignaumsýsla - staða framkvæmda og fjármála (2025080340)

Guðlaugur Helgi Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs og Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu sitja fundinn undir þessu dagskrármáli.

Lögð fram minnisblöð um framhald endurbóta og nýbyggingar Holta- og Myllubakkaskóla.

Bókun meirihluta bæjarráðs:

„Samkvæmt þeim upplýsingum sem lagðar hafa verið fram eru framkvæmdir á áætlun. Hins vegar liggur fyrir að framkvæmdir við Myllubakkaskóla og Holtaskóla munu stöðvast í haust verði ekki gripið til frekari fjármögnunar. Ljóst er að fyrri bæjarstjórn gerði einungis ráð fyrir fjármagni til framkvæmda fram að þeim tíma, þrátt fyrir að slíkt fyrirkomulag hefði fyrirsjáanlega í för með sér aukinn kostnað fyrir sveitarfélagið.

Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn telja augljóst að heildarkostnaður sveitarfélagsins aukist ef framkvæmdir stöðvast tímabundið og síðan þarf að hefja þær að nýju. Hefði því mátt gera ráð fyrir þeim afleiðingum þegar ákvörðun var tekin um að fjármagna framkvæmdirnar aðeins hluta framkvæmdatímans.

Áður en afstaða er tekin til frekari fjármögnunar til að koma í veg fyrir framkvæmdastopp telur meirihlutinn nauðsynlegt að fyrir liggi heildstæð kostnaðaráætlun og uppfærð tímaáætlun fyrir verkefnið. Í þeirri greiningu skal jafnframt gera grein fyrir fjármagnskostnaði og öðrum kostnaðarþáttum sem kunna að hafa áhrif á heildarumfang verkefnisins.

Fjármálasviði og umhverfis- og framkvæmdasviði er falið að vinna framangreinda greiningu og leggja hana fyrir bæjarráð við fyrsta tækifæri.“

Gunnlaugur Kárason Miðflokki, Kristján Pétur Kristjánsson og Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki.

Gert var fundarhlé kl. 9:57
Fundur aftur settur kl. 10:19

Bókun minnihluta bæjarráðs:

„Samþykktir verkhlutar í verkefnum Myllubakkaskóla og Holtaskóla fyrir árið 2026 voru fullfjármagnaðir í fjárfestingaáætlun ársins og ljóst er að framkvæmdir eru á áætlun og þeim lýkur í ágúst, mánuði fyrr en áætlun gerði ráð fyrir. Á síðasta kjörtímabili var stjórn eignasjóðs Reykjanesbæjar samansett af sérfræðingum í framkvæmdum sem samþykktu umrædda áætlun ásamt bæjarráði og bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Þessi tímasetning ætti ekki að koma neinum á óvart.

Nú er lögð fram ósk um að flýta framtíðarverkþáttum sem vinna átti á árinu 2027 og fá til þess viðbótarfjármagn. Þetta er nýtt mál en alveg ljóst að bolmagn fjárfestinga Reykjanesbæjar fyrir árið 2026 var 1,85 milljarður og því skipt í verkefnin eftir mati sérfræðinga. Unnið hefur verið á árinu að samþykktri fjárfestingaáætlun miðað við fjárhagsgetu sveitarfélagsins. Fyrrum meirihluti Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar samþykkti að taka lán í lok árs 2025 til að hægt væri að flýta framkvæmdum og bæta í og nýta verktaka sem þegar voru á svæðinu. Það skýtur skökku við að fyrrum minnihluti Sjálfstæðisflokksins hafi gagnrýnt lántöku upp á fjóra milljarða en gagnrýni í dag að ekki hafi verið sett nóg fjármagn í verkefnin.

Komi það í ljós, á þessum tímapunkti, að rekstur sveitarfélagsins beri aukið fjármagn í uppbyggingarverkefni umræddra grunnskóla, munum við að sjálfsögðu samþykkja það.

Við höfum alltaf forgangsraðað fjármunum og flýtt framkvæmdum eins og kostur er til að tryggja betra umhverfi fyrir börnin okkar og starfsfólk Reykjanesbæjar.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsókn.

3. Hólmbergsbraut 2 - samkomulag (2025020483)

Guðlaugur Helgi Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs situr fundinn undir þessu dagskrármáli.

Lögð fram drög að greiðslusamkomulagi vegna Hólmsbergsbrautar 2 (L239108).

Bæjarráð samþykkir greiðslusamkomulagið 3-0 með atkvæðum Gunnlaugs Kárasonar Miðflokki, Kristjáns Péturs Kristjánssonar og Margrétar Þórarinsdóttur Sjálfstæðisflokki. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsókn og Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu sitja hjá.

Bæjarstjóra falið að undirrita greiðslusamkomulagið.

4. Rentalis ehf. - ökutækjaleiga/geymslustaður ökutækja Bogatröð 15 - beiðni um umsögn (2026060317)

Erindi Samgöngustofu vegna umsóknar um leyfi fyrir geymslustað ökutækja vegna ökutækjaleigu. Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagnar.

5. Svör við fyrirspurn minnihluta í bæjarstjórn 16. júní 2026 (2026050339)

Tekin fyrir svör við fyrirspurn sem lögð var fyrir í bæjarstjórn 16. júní sl.

"Bæjarfulltrúar Framsóknar og Samfylkingar óska eftir skriflegum svörum við eftirfarandi spurningum á næsta fundi bæjarráðs sem fer með umboð bæjarstjórnar vegna sumarleyfis hennar:

    1. Var staða aðstoðarmanns auglýst opinberlega? Ef ekki, á hvaða lagagrundvelli var ákveðið að auglýsa hana ekki?
      Staða aðstoðarmanns bæjarstjóra var ekki auglýst opinberlega. Ákvörðunin byggðist á því að ekki var um almenna nýráðningu að ræða heldur ráðstöfun innan stjórnsýslu sveitarfélagsins/ráðningu í tímabundið og afmarkað stuðningshlutverk við bæjarstjóra sbr. 56. gr. sveitarstjórnarlaga. Í sveitarstjórnarlögum er ekki að finna almenna skyldu sveitarfélaga til að auglýsa öll störf með sama hætti og gildir um ríkisstarfsmenn skv. 7. gr. laga nr. 70/1996 sem tekur til starfsmanna ríkis. Við ákvörðunina var þó gætt að almennum reglum stjórnsýsluréttar um málefnaleg sjónarmið, hæfi og vandaða stjórnsýslu.
    2. Hversu margir umsækjendur komu til greina og hvaða sjónarmið lágu til grundvallar við val á aðstoðarmanni bæjarstjóra?
      Við mat á ráðstöfun í starfið var horft til þarfa bæjarstjóra fyrir afmarkaðan stuðning, þekkingu á stjórnsýslu og opinberum málum, samskiptahæfni, trúnaðar, skipulagsfærni og getu til að sinna verkefnum sem krefjast náins samstarfs við bæjarstjóra og aðra aðila í stjórnkerfi sveitarfélagsins.
      Valið byggðist þannig á málefnalegu mati á því hvaða hæfni og reynsla nýttist best í hlutverkinu með hliðsjón af skipulagi, verkefnaþörf og starfsemi sveitarfélagsins. Við matið var jafnframt gætt að almennum reglum stjórnsýsluréttar um málefnaleg sjónarmið, jafnræði og vandaða stjórnsýslu.
    3. Hefur verið framkvæmt mat á því hvort verkefni aðstoðarmanns bæjarstjóra séu nú þegar eða geti verið á verksviði annarra starfsmanna sveitarfélagsins með tilheyrandi sparnaði?
      Já, lagt var mat á það hvort verkefnin gætu rúmast innan núverandi starfsemi sveitarfélagsins. Niðurstaðan var sú að þó að einstök verkefni gætu tengst verkefnum annarra starfsmanna væri ekki raunhæft eða hagkvæmt að dreifa hlutverkinu alfarið á núverandi starfsfólk. Horft var til umfangs verkefna, þarfar fyrir stuðning við bæjarstjóra, álags, upplýsingaflæðis og þess hvort að slík tilfærsla myndi leiða til raunverulegs sparnaðar. Mat þetta leiddi í ljós að sérstakt hlutverk aðstoðarmanns væri málefnalegt og innan stjórnunar- og skipulagsheimilda sveitarfélagsins.
    4. Hver er heildarkostnaður sveitarfélagsins vegna ráðningarinnar á ársgrundvelli, að meðtöldum launum, launatengdum gjöldum, lífeyrissjóðsiðgjöldum og öðrum starfskjörum?
      Heildarkostnaður vegna ráðningarinnar er um 13,5 milljónir króna á ársgrundvelli.
    5. Er ráðningin tímabundin eða ótímabundin og hvaða uppsagnarákvæði gilda um starfið?
      Ráðningin er tímabundin til eins árs, almenn ákvæði kjarasamninga gilda vegna uppsagna.
    6. Hvernig fellur ráðning aðstoðarmanns bæjarstjóra að samþykktri fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og hefur verið gert ráð fyrir þessum kostnaði í fjárhagsáætlun?
      Launagreiðslum til aðstoðarmanns bæjarstjóra verður mætt í fjárhagsáætlun með millifærslu innan fjárhagsáætlunar á fjármála- og stjórnsýslusviði. Í fjárhagsáætlun 2026 var áætlað fyrir launum launafulltrúa allt árið en eingöngu verða nýttir 3 mánuðir og mun því það sem ónýtt er dekka laun aðstoðarmanns í tímabundinni ráðningu hjá sveitarfélaginu. Óska á eftir flutningi milli deilda í viðauka.
    7. Hefur bæjarráð eða bæjarstjórn samþykkt stofnun starfsins eða breytingu á skipuriti sveitarfélagsins og ef svo er, hvenær?
      Ekki var gerð sérstök breyting á skipuriti sveitarfélagsins vegna starfsins. Starfið var og hefur verið skilgreint sem stuðningshlutverk við bæjarstjóra sem hefur verið sinnt og féll því undir innra skipulag og stjórnunarheimildir sveitarfélagsins. Starfslýsing fyrrum aðstoðarmanns bæjarstjóra lá til grundvallar fyrir utan kröfu um háskólamenntun í verkefnastjórnun. En ekki var að finna formlega niðurlögn þess starfs né formlega tilkynningu um lok starfs fyrrverandi aðstoðarmanns. Að því marki sem málið var kynnt eða afgreitt innan pólitískrar stjórnsýslu sveitarfélagsins vísast til viðeigandi fundargerða þar sem fram kemur hvenær og með hvaða hætti málið var tekið fyrir.
    8. Óskað er eftir að lagt verði fram mat á því hvaða ávinning eða hagræði ráðningin er talin hafa í för með sér fyrir rekstur sveitarfélagsins.
      Mat á ávinningi og hagræði ráðningarinnar byggist fyrst og fremst á því að starfið styrkir stjórnsýslulegan stuðning við bæjarstjóra og eykur samhæfingu verkefna innan stjórnkerfis sveitarfélagsins. Með ráðningunni er leitast við að bæta yfirsýn, eftirfylgni mála, undirbúning funda, upplýsingaflæði og tengingu á milli bæjarstjóra og sviða sveitarfélagsins og annarra eftir atvikum.
      Ávinningurinn felst meðal annars í því að bæjarstjóri getur sinnt stefnumótandi verkefnum, samskiptum og haft yfirsýn á meðan aðstoðarmaður sinnir verkefnum sem krefjast eftirfylgni, samhæfingar og undirbúnings. Þá getur starfið dregið úr álagi á aðra stjórnendur og starfsfólk með því að skýra boðleiðir, tryggja betri eftirfylgni verkefna og fækka tilfellum þar sem verkefni tefjast eða falla á milli ábyrgðaraðila.
      Ekki er eingöngu horft til fjárhagslegs hagræðis heldur einnig rekstrarlegs svo sem markvissari undirbúnings ákvarðana, aukinnar samfellu í verkefnum og skilvirkari stjórnsýslu. Slíkt getur haft jákvæð áhrif á þjónustu sveitarfélagsins, innra skipulag og framkvæmd ákvarðana.

Að auki óska bæjarfulltrúar Framsóknar og Samfylkingar eftir að ráðningarsamningur og starfslýsing aðstoðarmanns bæjarstjóra verði lögð fram með málinu á bæjarráðsfundi.“

6. Ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga 2025 (2026060337)

Lagður fram til kynningar ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga 2025.

7. Samband íslenskra sveitarfélaga - framboðsfrestur til formannskjörs (2026020043)

Lagt fram erindi um framboðsfrest vegna kosningar formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga.

8. Fundargerð velferðarráðs 15. júní 2026 (2026010017)

Lögð fram til samþykktar fundargerð velferðarráðs.

Fundargerðin samþykkt 5-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 455. fundar velferðarráðs 15. júní 2026

9. Fundargerð skipulagsráðs 19. júní 2026 (2026010016)

Lögð fram fundargerð skipulagsráðs til samþykktar. Eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 19. júní tekin fyrir til sérstakrar samþykktar.

Fimmta mál fundargerðarinnar, Brekkustígur 11 (2026060094) samþykkt 5-0 án umræðu.
Sjötta mál fundargerðarinnar, Njarðvíkurkirkja - Brekkustígur - lóðarstækkun (2026060092) samþykkt 5-0 án umræðu.
Níunda mál fundargerðarinnar, Valhallarbraut 868 - framkvæmdaleyfi (2026060047) samþykkt 5-0 án umræðu.

Bókun meirihluta bæjarráðs:

Mál 4 - Iðjustígur 1 - deiliskipulag (2022030448)

„Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Miðflokks telja mikilvægt að umræðan um þetta mál byggist á réttum forsendum.
Sú afgreiðsla sem hér liggur fyrir felur í sér heimild til að auglýsa deiliskipulagstillögu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga. Auglýsing deiliskipulagstillögu er lögbundinn þáttur skipulagsferlisins og veitir íbúum, hagsmunaaðilum og umsagnaraðilum tækifæri til að kynna sér tillöguna og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Um er að ræða mikilvægt samráðsferli en ekki endanlega afgreiðslu málsins.

Jafnframt er rétt að halda því til haga að vinna við skipulag svæðisins hófst á fyrra kjörtímabili og byggir á stefnu aðalskipulags Reykjanesbæjar um uppbyggingu og þéttingu byggðar á miðsvæðum.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Miðflokks leggja áherslu á að endanleg afstaða til tillögunnar verði mótuð að loknu lögbundnu samráðsferli og með hliðsjón af þeim umsögnum og athugasemdum sem þá liggja fyrir.

Þá leggja fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Miðflokks áherslu á að verkefni sem eru komin í lögbundið ferli fái faglega og málefnalega umfjöllun og að ekki sé lagður steinn í götu uppbyggingarverkefna nema málefnaleg rök standi til þess.
Ólíkt því sem margir bæjarbúar töldu einkenna stjórnsýslu fyrri meirihluta mun núverandi meirihluti hlusta á þær athugasemdir og sjónarmið sem fram koma í samráðsferlinu. Samráðið er ekki formsatriði heldur raunverulegt tækifæri fyrir íbúa til að hafa áhrif á framvindu málsins áður en endanleg ákvörðun verður tekin.

Meirihlutinn mun því taka afstöðu að loknu samráðsferli og með hliðsjón af sjónarmiðum íbúa, umsagnaraðila og faglegra gagna. Það er sú ábyrgð sem fylgir því að fara með stjórn sveitarfélagsins.

Meirihlutanum þykir einnig nokkuð sérstakt að þeir flokkar sem fundu upp blokkastefnuna í Reykjanesbæ skuli nú saka aðra um svokallaða blokkastefnu. Sá málflutningur stenst enga skoðun. Meirihlutinn vinnur nú markvisst að því að vinda ofan af ýmsum áformum fyrri meirihluta, þar á meðal hugmyndum um umfangsmikla blokkabyggð á Akademíureitnum. Jafnframt er unnið af fullum krafti að undirbúningi lóðaúthlutana fyrir sérbýli og fjölbreyttari búsetukosti fyrir íbúa bæjarins, í samræmi við þá fjölskylduvænu húsnæðisstefnu sem núverandi meirihluti hefur boðað.“

Gunnlaugur Kárason Miðflokki, Kristján Pétur Kristjánsson og Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki.

Bókun minnihluta bæjarráðs:

Mál 4 - Iðjustígur 1 - deiliskipulag (2022030448)

„Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar geta ekki samþykkt nýju blokkastefnuna hjá nýja meirihluta bæjarstjórnar. Í þessu máli er verið að samþykkja verulega stækkun á fjölbýli sem er hinum megin við Njarðarbrautina við Akademíureitinn.

Það er hreinlega magnað að fyrirhugaður bílakjallari á Akademíureitnum var galin hugmynd en bílakjallari á Iðjustíg ásamt fjölgun íbúða og hækkun úr tveggja hæða fjölbýli í allt að sjö hæða er frábær hugmynd.

Blokkir eru greinilega ekki það sama og blokkir eftir því hvar þau standa í sama hverfinu.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir Framsókn.

Bókun meirihluta bæjarráðs:

Mál 4 - Iðjustígur 1 - deiliskipulag (2022030448)

„Meirihlutinn harmar að minnihlutinn fari með rangfærslur í bókun sinni. Það liggur fyrir að ekkert hefur verið samþykkt af hálfu bæjaryfirvalda annað en að auglýsa tillögu umsóknaraðila.“

Gunnlaugur Kárason Miðflokki, Kristján Pétur Kristjánsson og Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki.

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B) og Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) greiða atkvæði á móti í máli 4 - Iðjustígur 1 - deiliskipulag (2022030448), fundargerðin samþykkt að öðru leyti 5-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 391. fundar skipulagsráðs 19. júní 2026

10. Fundargerð menntaráðs 19. júní 2026 (2026010013)

Lögð fram til samþykktar fundargerð menntaráðs.

Fundargerðin samþykkt 5-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 397. fundar menntaráðs 19. júní 2026

11. Fundargerð leikskólaráðs 19. júní 2026 (2026060312)

Lögð fram til samþykktar fundargerð leikskólaráðs.

Fundargerðin samþykkt 5-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 1. fundar leikskólaráðs 19. júní 2026

12. Fundargerð íþrótta-, tómstunda- og menningarráðs 23. júní 2026 (2026010010)

Lögð fram til samþykktar fundargerð íþrótta-, tómstunda- og menningarráðs.

Fundargerðin samþykkt 5-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 206. fundar íþrótta-, tómstunda- og menningarráðs 23. júní 2026

13. Fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja 12. júní 2026 (2026010077)

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Brunavarna Suðurnesja.

Fylgigögn:

Fundargerð 102. fundur stjórnar Brunavarna Suðurnesja


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:40.