- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Gunnlaugur Kárason formaður, Alexander Ragnarsson, Díana Hilmarsdóttir, Guðný Birna Guðmundsdóttir og Margrét Þórarinsdóttir.
Að auki sátu fundinn Unnar Steinn Bjarndal staðgengill bæjarstjóra og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
Kristján Pétur Kristjánsson boðaði forföll, Alexander Ragnarsson sat fyrir hann.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir boðaði forföll, Díana Hilmarsdóttir sat fyrir hana.
Lögð fram beiðni um flutningi á fjárheimildum af lýðheilsuráði, menningarráði og sjálfbærniráði yfir á bæjarstjórn, íþrótta-, tómstunda- og menningarráð, leikskólaráð, menntaráð, skipulagsráð og umhverfis- og framkvæmdaráð, sett í viðauka við fjárhagsáætlun 2026.
Bókun minnihluta bæjarráðs:
„Fulltrúar Framsóknar og Samfylkingar styðja nauðsynlegar tilfærslur fjárheimilda vegna breytinga á skipulagi ráða og nefnda. Jafnframt er mikilvægt að fylgst verði með raunútgjöldum nýrrar nefndaskipunar þannig að fyrir liggi hvort breytingarnar hafi áhrif á rekstrarkostnað stjórnsýslunnar og að það verði lagt fram við gerð fjárhagsáætlunar 2027.“
Fyrirspurn minnihluta bæjarráðs:
„Fulltrúar Framsóknar og Samfylkingar óska svara þar sem stjórn Eignasjóðs var ekki inni í skjalinu hjá fjármálastjóra, þarf að kanna hvort það séu ónýttar fjárheimildir þar fyrir 2026 og einnig varðandi fjölda funda hjá Umhverfis og framkvæmdaráði, hvort ráðið muni funda 1x eða 2x í mánuði.“
Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu.
Bæjarráð samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun 5-0.
Fylgigögn:
Beiðni um flutningi á fjárheimildum á milli deilda 21.7.2026
Lögð fram svör við fyrirspurn Framsóknar og Samfylkingar sem bókuð var á bæjarráðsfundi nr. 1571 þann 9. júlí 2026.
Bókun minnihluta bæjarráðs:
„Fulltrúar Framsóknar og Samfylkingar þakka fyrir framkomin svör um fjárhagsleg áhrif hækkunarinnar. Svörin skýra kostnað og fjármögnun en svara ekki þeirri meginathugasemd minnihlutans að ákvörðun um afléttingu launafrystingar kjörinna fulltrúa virðist ekki hafa fengið formlega pólitíska umfjöllun áður en hún var kynnt. Mikilvægt er að ákvarðanir sem varða kjör kjörinna fulltrúa séu teknar með fullu gagnsæi og opinni umræðu. Laun kjörinna fulltrúa eru að hækka um tæp 21% frá og með 1.júlí sem stingur verulega í stúf við almennar launahækkanir.”
Fyrirspurn minnihluta bæjarráðs:
”Getur meirihlutinn upplýst á hvaða fundi eða með hvaða formlega hætti pólitísk ákvörðun var tekin um að aflétta frystingu launa kjörinna fulltrúa sem gilt hefur frá 2023?
Telur meirihlutinn að rétt sé, við núverandi fjárhagsaðstæður og á sama tíma og stöðugt er kallað eftir aðhaldi í rekstri sveitarfélagsins, að fyrsta stóra ákvörðunin um kjör kjörinna fulltrúa sé hækkun á eigin launum þar sem engin hækkun hefur átt sér stað og umrædd hækkun er gerð á miðju ári og ekki gert ráð fyrir hækkuninni innan fjárhagsáætlunar ársins?”
Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu.
Fundarhlé sett kl. 8:18
Fundur aftur settur kl. 8:31
Bókun meirihluta bæjarráðs:
„Meirihlutinn telur ljóst að misskilnings gæti í málflutningi minnihlutans. Spurt er hvenær ákvörðun hafi verið tekin um hækkun launa kjörinna fulltrúa en slíkt byggir á röngum forsendum. Launakjör kjörinna fulltrúa fylgja gildandi samþykktum sem tengja þau við þingfararkaup og stjórnsýslan framkvæmir þær reglur þegar breytingar verða. Engin sérstök ákvörðun var því tekin af hálfu meirihlutans. Hefði hins vegar átt að víkja frá gildandi reglum og frysta launin hefði þurft sérstaka ákvörðun þar að lútandi.“
Gunnlaugur Kárason Miðflokki, Margrét Þórarinsdóttir og Alexander Ragnarsson Sjálfstæðisflokki.
Fylgigögn:
Svar við fyrirspurn minnihluta dags 9.7.2026
Lögð fram svör við fyrirspurn Framsóknar og Samfylkingar sem bókuð var á bæjarráðsfundi nr. 1570 þann 2. júlí 2026.
Bókun minnihluta bæjarráðs:
„Fulltrúar Framsóknar og Samfylkingar telja svörin ekki svara þeim efnisatriðum sem spurt var um. Fyrirspurnin laut að stefnu meirihlutans um lóðaframboð fyrir óhagnaðardrifin leigufélög, félagslegt húsnæði og húsnæði fyrir fatlað fólk. Í svörunum eru settar fram almennar áherslur en ekki kemur fram hvort fyrirhugað sé að úthluta sérstökum lóðum til þessara verkefna, hvaða markmið séu sett um uppbyggingu né hver tímasetning þeirra sé. Mikilvægt er að bæjarbúar og aðilar sem starfa að uppbyggingu húsnæðis hafi skýra sýn á áform sveitarfélagsins.“
Fyrirspurn minnihluta bæjarráðs:
• Í kosningabaráttunni boðaði meirihlutinn að fólk sem býr í félagslegu húsnæði fengi tækifæri til að kaupa íbúðir sínar. Hvernig hyggst meirihlutinn útfæra það og hvenær mega íbúar eiga von á tillögum þar að lútandi?
• Hyggst meirihlutinn auglýsa sérstaklega lóðir fyrir óhagnaðardrifin leigufélög eða verða þau í samkeppni við almenna verktaka um allar lóðir?
• Hefur meirihlutinn sett sér markmið um fjölgun félagslegra íbúða á kjörtímabilinu?
• Er gert ráð fyrir sérstökum lóðum eða verkefnum fyrir íbúðir fatlaðs fólks eða er aðeins verið að vísa til almennrar uppbyggingar?
• Ef félagslegar íbúðir verða seldar til núverandi leigjenda, hvernig hyggst meirihlutinn tryggja að framboð félagslegs húsnæðis dragist ekki saman og að þeir sem eru á biðlista sitji ekki eftir?
• Hver er staðan á biðlista eftir félagslegu húsnæði í Reykjanesbæ fyrir eldri borgara annars vegar og aðra hópa hins vegar?
• Sveitarfélagið ber líka lögbundna ábyrgð á að tryggja framboð félagslegs húsnæðis. Ef íbúðir eru seldar þarf að vera skýr áætlun um hvernig þær verða endurnýjaðar. Hvenær megum við eiga von á slíkri áætlun?
Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu.
Fundarhlé sett kl. 8:36
Fundur aftur settur kl. 8:48
Bókun meirihluta bæjarráðs:
„Meirihlutinn ítrekar að hann hyggst stórauka lóðaframboð í Reykjanesbæ. Við skipulag og úthlutun nýrra lóða verður tekið mið af þörfum félagslegs húsnæðis samhliða annarri uppbyggingu. Með auknu lóðaframboði og afnámi innviðagjalda, þegar að því kemur, vill meirihlutinn stuðla að hagkvæmari húsnæðisuppbyggingu og auðvelda fólki úr öllum stéttum að eignast eigið heimili.
Við þá vinnu verður haft náið samráð við hagaðila til að tryggja sem bestar lausnir. Undirbúningur er þegar hafinn og meirihlutinn hlakkar til að kynna nýjar lóðir og uppbyggingartækifæri á kjörtímabilinu.
Þessi áhersla er í fullu samræmi við þá stefnu sem Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn lögðu fyrir kjósendur í sveitarstjórnarkosningunum og hlutu skýrt umboð til að hrinda í framkvæmd.“
Gunnlaugur Kárason Miðflokki, Margrét Þórarinsdóttir og Alexander Ragnarsson Sjálfstæðisflokki.
Fylgigögn:
Svör við fyrirspurn - Lóðaframboð fyrir leiguhúsnæði
Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
Erindi Samgöngustofu vegna umsóknar um leyfi fyrir geymslustað ökutækja vegna ökutækjaleigu. Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagnar.
Lögð fram til kynningar ársskýrsla Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.
Bæjarráð þakkar fyrir vandaða og upplýsandi ársskýrslu Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum. Skýrslan sýnir glöggt mikilvægt hlutverk MSS við að efla menntun, starfsþátttöku og samfélagslega virkni íbúa á Suðurnesjum. Sérstaklega vekur athygli hversu vel tekst að samþætta námsráðgjöf, endurhæfingu og menntun með raunverulegum árangri fyrir einstaklinga.
Bæjarráð telur mikilvægt að Reykjanesbær haldi áfram að efla samstarf sitt við MSS, enda er starfsemin ekki aðeins menntamál heldur einnig mikilvægt velferðar- og atvinnumál.
Lagðar fram til kynningar fundargerðir Heilbrigðisnefndar Suðurnesja.
Fylgigögn:
325. fundur heilbrigðisnefndar Suðurnesja 7. júlí 2026
HES-fundur nr.320 08.10.2025
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:00.