- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Gunnlaugur Kárason formaður, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Kristján Pétur Kristjánsson og Margrét Þórarinsdóttir.
Að auki sátu fundinn Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
Margrét Þórarinsdóttir boðaði forföll, Alexander Ragnarsson sat fyrir hana.
Afgreiðslu frestað.
Erindi Samgöngustofu vegna umsóknar um leyfi fyrir geymslustað ökutækja vegna ökutækjaleigu. Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa Reykjanesbæjar. Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með vísan til fyrirliggjandi umsagnar.
• Áform um skipulagsbreytingar lögreglunnar, https://island.is/samradsgatt/mal/4285
Umsagnarmál lagt fram.
Bæjarráð felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Lögð fram beiðni um heimild til veðsetningar á eignahlut KEF ehf. á eigninni Vatnsnesvegi 8 (F2091091), 230 Reykjanesbæ.
Afgreiðslu frestað.
Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir að Reykjanesbær tilnefni 2-3 fulltrúa í vinnuhóp um þróun Reykjanes jarðvangs.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Guðlaugu Maríu Lewis menningarfulltrúa og Evu Kristínu Dal forstöðumann byggðasafns Reykjanesbæjar í vinnuhópinn.
Fundarhlé kl. 9:26
Fundur aftur settur kl. 9:32
Bæjarráð samþykkir að koma að útfararkostnaði Gunnars Þórðarsonar samkvæmt umræðum á fundinum. Jafnframt að flaggað verði í hálfa stöng á útfarardegi við stofnanir bæjarins. Styrkurinn greiddur af lykli 21011-9220.
Málinu frestað til næsta fundar bæjarráðs 13. ágúst 2026.
Málinu frestað til næsta fundar bæjarráðs 13. ágúst 2026.
Bæjarráð samþykkir 5-0 að starf sviðsstjóra velferðarsviðs verði auglýst laust til umsóknar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:25.