1577. fundur

03.09.2026 08:00

1577. fundur bæjarráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 þann 3. september 2026 kl. 08:15

Viðstaddir:

Gunnlaugur Kárason formaður, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Kristján Pétur Kristjánsson og Margrét Þórarinsdóttir.

Að auki sátu fundinn Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

1. Umbóta- og hagræðingarteymi - fjárhagsáætlunarvinna (2026070070)

Fannar Jónasson ráðgjafi sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann vinnu umbóta- og hagræðingarteymis.

2. Beiðni um flutning fjármagns milli lykla (2026090001)

Ólafur Garðar Rósinkarsson, verkefnastjóri í málefnum fatlaðra, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Beiðni um tilfærslu fjármagns af lykli 02582 á lykil 02563 vegna flutnings íbúa á milli úrræða lögð fram.

Bæjarráð samþykkir beiðnina.

3. Náttúruhamfaratryggingar - byggingar á þekktum hættusvæðum (2025090242)

Erindi frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands lagt fram, en þar er vakin athygli á áhrifum 16. gr. laga nr. 55/1992 þegar hús eða önnur mannvirki eru reist á svæðum sem almennt var vitað fyrir fram að væru hættuleg með tilliti til náttúruhamfara.

Fylgigögn:

Byggingar á þekktum hættusvæðum - bréf til sveitarfélaga
Áminning um skipulag byggðar á þekktum hættusvæðum - dreifibréf til sveitarfélaga

4. Guðlaug M. Pálsdóttir (Fjölbrautaskóli Suðurnesja) - umsókn um tækifærisleyfi (2026090010)

Erindi Sýslumannsins á Suðurnesjum vegna umsóknar um tækifærisleyfi. Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

5. Fundargerð Almannavarnanefndar Suðurnesja utan Grindavíkur 24. ágúst 2026 (2026020271)

Fundargerð Almannavarnanefndar Suðurnesja utan Grindavíkur frá 24. ágúst 2026 lögð fram til kynningar.

Fylgigögn:

Fundargerð 79. fundar Almannavarnanefndar Suðurnesja utan Grindavíkur 24. ágúst 2026


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:05. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 15. september 2026.