473. fundur

18.02.2015 10:32

473. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar haldinn 17. febrúar 2015 að Tjarnargötu 12, kl: 17:00.

Mættir : Böðvar Jónsson aðalbæjarfulltrúi, Árni Sigfússon aðalbæjarfulltrúi, Magnea Guðmundsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Gunnar Þórarinsson aðalbæjarfulltrúi, Baldur Guðmundsson aðalbæjarfulltrúi, Friðjón Einarsson aðalbæjarfulltrúi, Kristinn Þór Jakobsson aðalbæjarfulltrúi, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Guðbrandur Einarsson aðalbæjarfulltrúi, Anna Lóa Ólafsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Elín Rós Bjarnadóttir aðalbæjarfulltrúi, bæjarstjóri Kjartan M. Kjartansson, fundarritari Hrefna Gunnarsdóttir og í forsæti var Anna Lóa Ólafsdóttir.


1. Fundagerðir bæjarráðs 5/2 og 12/2´15 (2015010022)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðir bæjarráðs. Til máls tóku Kjartan Már Kjartansson, Böðvar Jónsson, Kristinn Jakobsson og Guðbrandur Einarsson.

Endurfjármögnun lána, 4. mál 1014. fundar bæjarráðs frá 12/2 2015.
Ákvörðun um að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt er með veði í tekjum sveitarfélagsins:
Sveitarstjórn Reykjanesbæjar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 54.000.000 kr. til 10 ára, í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að endurfjármagna hluta afborgana sveitarfélagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er Kjartani Má Kjartanssyni, kennitala ekki birt, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Reykjanesbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
Samþykkt 11-0.

Baldur Guðmundsson sat hjá í 2. máli bæjarráðs frá 1013. fundi 5/2 2015 og í 7. máli 1014. fundar bæjarráðs 12/2 2015.

Fundargerðir samþykktar að öðru leyti 11-0.

2. Fundargerð barnaverndarnefndar 26/1´15 (2015010018)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Fundargerðin samþykkt án umræðu 11-0.

3. Fundargerð fjölskyldu- og félagsmálaráðs 9/2´15 (2015010174)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Til máls tóku Kjartan M. Kjartansson, Böðvar Jónsson,  Kristinn Jakobsson og Gunnar Þórarinsson.

Gunnar Þórarinsson óskar eftir að málinu verði vísað til bæjarráðs um reglur varðandi niðurgreiðslur til dagforeldra. Var það samþykkt.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

4. Fundargerð fræðsluráðs 30/1´15 (2015010099)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Til máls tóku Baldur Guðmundsson, Kristinn Jakobsson og Elín Rós Bjarnadóttir.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

5. Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs 10/2´15 (2014010822)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Til máls tók Kjartan M. Kjartansson.
Fundargerðin samþykkt 11-0.

6. Fundargerð menningarráðs 12/2´15 (2015010095)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Til máls tók Baldur Guðmundsson.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

7. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 11/2´15 (2015010113)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Til máls tóku Magnea Guðmundsdóttir, Kjartan M Kjartansson, Böðvar Jónsson og Friðjón Einarsson.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

8. Fundargerð stjórnar SS 13/2´15 (2015010510)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Fundargerðin lögð fram án umræðu.

9. 7. mál bæjarstjórnar 3/2´15- svör við fyrirspurn bæjarfulltrúa Framsóknarflokks (2015010814)
Svörin lögð fram. Forseti gaf orðið laust. Til máls tók Kristinn Jakobsson.

10. Fyrirspurn bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks ásamt svörum (2015020066)
Svörin lögð fram. Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Böðvar Jónsson og Kjartan M. Kjartansson.

Fleira ekki gert og fundi slitið.