474. fundur

04.03.2015 10:25

474. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar haldinn 3. mars 2015 að Tjarnargötu 12, kl: 17:00

Mættir : Böðvar Jónsson aðalbæjarfulltrúi, Árni Sigfússon aðalbæjarfulltrúi, Magnea Guðmundsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Gunnar Þórarinsson aðalbæjarfulltrúi, Baldur Guðmundsson aðalbæjarfulltrúi, Friðjón Einarsson aðalbæjarfulltrúi, Kristinn Þór Jakobsson aðalbæjarfulltrúi, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Guðbrandur Einarsson aðalbæjarfulltrúi, Elín Rós Bjarnadóttir aðalbæjarfulltrúi, Kolbrún Jón Pétursdóttir varabæjarfulltrúi, Hjörtur Zakaríasson fundarritari og í forsæti var Elín Rós Bjarnadóttir.


1. Fundagerðir bæjarráðs 19/2 og 26/2´15 (2015010022)
Forseti gaf orðið laust um fundagerðir bæjarráðs.  Fundagerðirnar samþykktar 11-0 án umræðu.

2. Fundargerð atvinnu- og hafnaráðs 25/2´15 (2015010547)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina og var hún samþykkt 11-0 án umræðu.

3. Fundargerð barnaverndarnefndar 23/2´15 (2015010018)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina og var lögð fram án umræðu.

4. Fundargerð fræðsluráðs 27/2´15 (2015010099)
Forseti gaf orðið laust um fundargerð fræðsluráðs og var hún samþykkt 11-0 án umræðu.

5. Fundargerð menningarráðs 11/2´15 (2015010095)
Forseti gaf orðið laust um fundargerð menningarráðs.  Til máls tók Guðbrandur Einarsson.  Fundargerðin samþykkt 11-0.

6. Fundargerð stjórnar BS 29/1´15 (2015020269)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina sem lögð var fram án umræðu.

7. Fundargerð stjórnar SSS 18/2´15 (2015010698)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina og hún lögð fram án umræðu.

Fleira ekki gert og fundi slitið.