476. fundur

08.04.2015 12:23

476. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar haldinn 7. apríl 2015 að Tjarnargötu 12, kl: 17:00

Mættir : Böðvar Jónsson aðalbæjarfulltrúi, Árni Sigfússon aðalbæjarfulltrúi, Gunnar Þórarinsson aðalbæjarfulltrúi, Baldur Guðmundsson aðalbæjarfulltrúi, Friðjón Einarsson aðalbæjarfulltrúi, Kristinn Þór Jakobsson aðalbæjarfulltrúi, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Guðbrandur Einarsson aðalbæjarfulltrúi, Anna Lóa Ólafsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Magnea Guðmundsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Davíð Páll Viðarsson varabæjarfulltrúi, Hjörtur Zakaríasson fundarritari, Kjartan M. Kjartansson bæjarstjóri og í forsæti var Anna Lóa Ólafsdóttir.

1. Fundagerðir bæjarráðs 19/3 og 26/3´15 (2015010022)
Forseti gaf orðið laust um fundagerðirnar. Fundagerðirnar samþykktar 11-0 án umræðu.

2. Fundargerð atvinnu- og hafnaráðs 25/3´15 (2015010547)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Til máls tóku Kristinn Þ. Jakobsson, Kjartan M. Kjartansson, Árni Sigfússon, Böðvar Jónsson, Gunnar Þórarinsson og Guðbrandur Einarsson. Fundargerðin samþykkt 11-0.

Ársreikningur Reykjaneshafnar sbr. mál 2.1. var lagður fram og kemur til umræðu og afgreiðslu síðar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar.

3. Fundargerð fræðsluráðs 27/3´15 (2015010099)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Til máls tóku Baldur Guðmundsson, Friðjón Einarsson, Kristinn Jakobsson, Gunnar Þórarinsson, Árni Sigfússon og Guðbrandur Einarsson.  Fundargerðin samþykkt 11-0.

4. Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs 17/3´15 (2015030409)
Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Kjartan M. Kjartansson, Kristinn Jakobsson, Baldur Guðmundsson, Friðjón Einarsson, Böðvar Jónsson, Gunnar Þórarinsson og Magnea Guðmundsdóttir.  Fundargerðin samþykkt 11-0.

5. Fundargerð stjórnar DS 18/3´15 (2015030003)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Fundargerðin lögð fram án umræðu.

6. Fundargerð stjórnar BS 16/3´15 (2015020269)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Friðjón Einarsson og Kristinn Jakobsson.  Fundargerðin lögð fram.

7. Fundargerð stjórnar SSS 18/3´15 (2015010698)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Böðvar Jónsson og Gunnar Þórarinsson. Fundargerðin lögð fram.

Fleira ekki gert og fundi slitið.