485. fundur

07.10.2015 08:44

485. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn 6. október 2015 að Tjarnargötu 12, kl: 17:00.

Mættir: Böðvar Jónsson aðalbæjarfulltrúi, Árni Sigfússon aðalbæjarfulltrúi, Magnea Guðmundsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Baldur Guðmundsson aðalbæjarfulltrúi, Friðjón Einarsson aðalbæjarfulltrúi, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Guðbrandur Einarsson aðalbæjarfulltrúi, Davíð Páll Viðarsson varabæjarfulltrúi, Kolbrún Jóna Pétursdóttir aðalbæjarfulltrúi, Alexander Ragnarsson varabæjarfulltrúi, Halldóra Hreinsdóttir varabæjarfulltrúi og Ásbjörn Jónsson ritari. Í forsæti var Guðbrandur Einarsson.

1. Fundargerðir bæjarráðs 17. september, 24. september og 1. október 2015 (2015010022)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Friðjón Einarsson, Magnea Guðmundsdóttir og  Böðvar Jónsson,  Fundargerðirnar samþykktar 11 – 0.

2. Fundargerð atvinnu- og hafnaráðs 24. september 2015 (2015010547)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Fundargerðin samþykkt 11 – 0 án umræðu.

3. Fundargerð fræðsluráðs 25. september 2015 (2015010099)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Árni Sigfússon, Guðbrandur Einarsson og Halldóra Hreinsdóttir. Fundargerðin samþykkt 11 - 0.

4. Fundargerð barnaverndarnefndar 28. september 2015 (2015010018)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Fundargerðin lögð fram án umræðu.

5. Fundargerð velferðarráðs 28. september 2015 (2015090358)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Guðbrandur Einarsson.  Fundargerðin samþykkt 11 - 0.

6. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 11. september 2015 (2015020070)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Fundargerðin lögð fram án umræðu.

7. Fundargerðir stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 16. september og 30. september 2015 (2015010698)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Baldur Guðmundsson, Böðvar Jónsson, Friðjón Einarsson, Magnea Guðmundsdóttir, Davíð Páll Viðarsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Árni Sigfússon og Guðbrandur Einarsson. Fundargerðirnar lagðar fram.

8. Fundargerðir Brunavarna Suðurnesja bs. 27. maí, 17. ágúst og 14. september 2015 (2015090411)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Fundargerðirnar lagðar fram án umræðu.

9. Fundargerð stjórnar DS 23. september 2015 (2015030003)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Baldur Guðmundsson og Friðjón Einarsson. Fundargerðin lögð fram.

Fleira ekki gert og fundi slitið.