489. fundur

02.12.2015 09:27

489. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn 1. desember 2015 að Tjarnargötu 12, kl. 17:00.

Mættir: Böðvar Jónsson aðalbæjarfulltrúi, Magnea Guðmundsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Gunnar Þórarinsson aðalbæjarfulltrúi, Baldur Guðmundsson aðalbæjarfulltrúi, Friðjón Einarsson aðalbæjarfulltrúi, Kristinn Þór Jakobsson aðalbæjarfulltrúi, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Guðbrandur Einarsson aðalbæjarfulltrúi, Elín Rós Bjarnadóttir aðalbæjarfulltrúi, Kolbrún Jóna Pétursdóttir bæjarfulltrúi, Jóhann Snorri Sigurbergsson varabæjarfulltrúi, Kjartan Már Kjartansson bæjarstóri og Ásbjörn Jónsson ritari. Í forsæti var Guðbrandur Einarsson.

1. Fundargerðir bæjarráðs 19. og 26. nóvember 2015 (2015010022)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tók Baldur Þ. Guðmundsson. Fundargerðirnar samþykktar 11-0. 

2. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 18. nóvember 2015 (2015010113)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Fundargerðin samþykkt 11-0 án umræðu. 

3. Fundargerð barnaverndarnefndar 18. nóvember 2015 (2015010018)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Fundargerðin lögð fram án umræðu.

4. Fundargerð velferðarráðs 23. nóvember 2015 (2015090358)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Fundargerðin samþykkt 11-0 án umræðu.

5. Fundargerð stjórnar Reykjaneshafnar 26. nóvember 2015 (2015100353)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Fundargerðin samþykkt 11-0 án umræðu.

6. Fundargerð fræðsluráðs 27. nóvember 2015 (2015010099)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Fundargerðin samþykkt 11-0 án umræðu.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið.