491. fundur

06.01.2016 08:29

491. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn 5. janúar 2016 að Tjarnargötu 12, kl. 17:00.

Mættir: Böðvar Jónsson aðalbæjarfulltrúi Árni Sigfússon, aðalbæjarfulltrúi Magnea Guðmundsdóttir, aðalbæjarfulltrúi Gunnar Þórarinsson aðalbæjarfulltrúi, Baldur Guðmundsson aðalbæjarfulltrúi, Friðjón Einarsson aðalbæjarfulltrúi, Kristinn Þór Jakobsson aðalbæjarfulltrúi, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Guðbrandur Einarsson aðalbæjarfulltrúi, Kolbrún Jóna Pétursdóttir bæjarfulltrúi, Davíð Páll Viðarsson varabæjarfulltrúi og Ásbjörn Jónsson, ritari. Í forsæti var Guðbrandur Einarsson,

1. Fundargerðir bæjarráðs 17., 22. og 30. desember 2015 (2015010022)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar.  Fundargerðirnar samþykktar 11-0 án umræðu.


2. Fundargerðir barnaverndarnefndar 14. og 21. desember 2015 (2015010018)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Fundargerðirnar lagðar fram án umræðu.


3. Fundargerð velferðarráðs 14. desember 2015 (2015090358)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Til máls tóku Kristinn Þór Jakobsson, Guðbrandur Einarsson og Guðný Birna Guðmundsdóttir.  Samþykkt að vísa þriðja tölulið fundargerðarinnar til bæjarráðs 11-0.  Fundargerðin samþykkt 11-0 að öðru leyti.


4. Fundargerð stjórnar Reykjaneshafnar 14. desember 2015 (2015100353)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Til máls tóku Kristinn Þór Jakobsson og Kolbrún Jóna Pétursdóttir. Samþykkt að fresta dagskrárliðnum til næsta bæjarstjórnarfundar 11-0.

Fleira ekki gert og fundi slitið.