493. fundur

03.02.2016 08:49

493. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn 2. febrúar 2016 að Tjarnargötu 12, kl. 17:00.

Mættir: Böðvar Jónsson aðalbæjarfulltrúi, Árni Sigfússon aðalbæjarfulltrúi, Magnea Guðmundsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Gunnar Þórarinsson aðalbæjarfulltrúi, Baldur Guðmundsson aðalbæjarfulltrúi, Friðjón Einarsson aðalbæjarfulltrúi, Kristinn Þór Jakobsson aðalbæjarfulltrúi, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Guðbrandur Einarsson aðalbæjarfulltrúi, Elín Rós Bjarnadóttir aðalbæjarfulltrúi, Kolbrún Jóna Pétursdóttir bæjarfulltrúi, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Ásbjörn Jónsson ritari. Guðbrandur Einarsson er forseti bæjarstjórnar.


1. Fundargerðir bæjarráðs 21. og 28. janúar 2016 (2016010009)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Fundargerðirnar samþykktar 11-0 án umræðu.


2. Fundargerð velferðarráðs 22. janúar 2016 (2015090358)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Kolbrún Jóna Pétursdóttir, Kristinn Þór Jakobsson og Kjartan Már Kjartansson. Fundargerðin samþykkt 11-0.


3. Fundargerð stjórnar Reykjaneshafnar 26. janúar 2016 (2016010108)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Böðvar Jónsson, Kolbrún Jóna Pétursdóttir, Kjartan Már Kjartansson og Kristinn Þór Jakobsson.  Samþykkt að vísa níunda lið fundargerðarinnar um fjármál Reykjaneshafnar til bæjarráðs 11-0.  Fundargerðin samþykkt 11-0 að öðru leyti.   


4. Fundargerð fræðsluráðs 29. janúar 2016 (2016010248)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku  Árni Sigfússon, Kristinn Þór Jakobsson, Baldur Þ. Guðmundsson, Elín Rós Bjarnadóttir, Magnea Guðmundsdóttir, Kjartan Már Kjartansson,  Friðjón Einarsson og Gunnar Þórarinsson. Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fleira ekki gert og fundi slitið.