496. fundur

16.03.2016 09:43

496. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn 15. mars 2016 að Tjarnargötu 12, kl. 17:00.

Mættir: Böðvar Jónsson aðalbæjarfulltrúi, Árni Sigfússon aðalbæjarfulltrúi, Magnea Guðmundsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Gunnar Þórarinsson aðalbæjarfulltrúi, Baldur Guðmundsson aðalbæjarfulltrúi, Friðjón Einarsson aðalbæjarfulltrúi, Kristinn Þór Jakobsson aðalbæjarfulltrúi, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðalbæjarfulltrúi, Kolbrún Jóna Pétursdóttir bæjarfulltrúi, Davíð Páll Viðarsson varabæjarfulltrúi, Kristján Jóhannsson varabæjarfulltrúi og Ásbjörn Jónsson ritari. Magnea Guðmundsdóttir var forseti bæjarstjórnar.


1. Fundargerðir bæjarráðs 3. og 9. mars 2016 (2016010009)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Friðjón Einarsson, Kristinn Þór Jakobsson og Árni Sigfússon. Fundargerðirnar samþykktar 11-0.


2. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 8. mars 2016 (2016010178)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Böðvar Jónsson, Gunnar Þórarinsson, Kristinn Þór Jakobsson, Magnea Guðmundsdóttir, Friðjón Einarsson og Kristján Jóhannsson. Fjórði liður í fundargerðinni um nýtt deiliskipulag Framnesvegar 11 var borinn sérstaklega upp til atkvæða og var samþykktur með 11 atkvæðum. Fimmti liður í fundargerðinni um nýtt deiliskipulag Hlíðahverfis var borinn sérstaklega upp til atkvæða og var samþykktur með 11 atkvæðum. Samþykkt að vísa tíunda tölulið fundargerðarinnar varðandi viðræður, til bæjarráðs 11-0. Fundargerðin samþykkt 11-0 að öðru leyti.


3. Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs 1. mars 2016 (2016010316)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Kristinn Þór Jakobsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir og Böðvar Jónsson. Fyrsti, annar og þriðji töluliðir fundargerðarinnar, samningar við stjórn Knattspyrnudeildar UMFN, við stjórn Knattspyrnudeildar Keflavíkur og  við Skákfélag Reykjanesbæjar voru bornir sérstaklega upp til atkvæða og voru  samþykktir með 11 atkvæðum. Fundargerðin samþykkt 11-0 að öðru leyti.


4. Fundargerð menningarráðs 10. mars 2016 (2016010294)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Baldur Guðmundsson, Kristinn Þór Jakobsson, Friðjón Einarsson, Árni Sigfússon, Kristján Jóhannsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir og Magnea Guðmundsdóttir. Fundargerðin samþykkt 11-0.


Fleira ekki gert og fundi slitið.