503. fundur

16.08.2016 00:00

503. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12, 16.8.2016, kl. 17:00.

Viðstaddir: Árni Sigfússon, Baldur Guðmundsson, Böðvar Jónsson, Friðjón Einarsson, Guðbrandur Einarsson, forseti, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Gunnar Þórarinsson, Magnea Guðmundsdóttir, Kolbrún Jóna Pétursdóttir, Kristinn Þór Jakobsson, Davíð Páll Viðarsson, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

1. Fundargerð bæjarráðs 11. ágúst 2016 (2016010009)

Forseti gaf orðið laust um fundargerð bæjarráðs frá 11. 8. 2016 og fundargerðir bæjarráðs í sumarfríi bæjarstjórnar.  Til máls tóku Böðvar Jónsson, Kristinn Þ. Jakobsson, Friðjón Einarsson og Guðný Birna Guðmundsdóttir. Fundargerðin samþykkt 11-0

2. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 9. ágúst 2016 (2016010178)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Til máls tóku Kristinn Þ. Jakobsson, Friðjón Einarsson og Böðvar Jónsson. Fundargerðin samþykkt með 10 greiddum atkvæðum, Árni Sigfússon situr hjá.

3. Fundargerð menningarráðs Reykjanesbæjar 9. ágúst 2016 (2016010294)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.  Til máls tók Baldur Guðmunsson. Fundargerðin samþykkt 11-0

4. Fundargerðir stjórnar Reykjaneshafnar 7. júní og 7. júlí 2016 (2016010108)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar, samþykktar 11-0 án umræðu.

5. Tilnefning bæjarfulltrúa og fulltrúa í ráðum (2016080087)

Með vísan til 39. gr. samþykktar um Stjórn Reykjanesbæjar og fundasköp bæjarstjórnar samþykkir bæjarstjórn að veita Önnu Lóu Ólafsdóttur bæjarfulltrúa lausn frá störfum í bæjarstjórn að eigin ósk út kjörtímabilið og mun Kolbrún Jóna Pétursdóttir sem er 3. maður á lista Beinnar leiðar taka sæti sem bæjarfulltrúi.

6. Reykjanesbraut - breytingar á gatnamótum (2016080130)

„Reykjanesbær hefur undanfarin ár í samstarfi við Vegagerðina unnið að því að útrýma slysagildrum á Reykjanesbrautinni sem eftir brotthvarf bandaríkjahers sker bæinn í tvennt með tilheyrandi gatnamótum og tengipunktum. Þessar slysagildrur hafa verið greindar eftir slysatölum frá Umferðarstofu. Frá 2009 hafa framkvæmdir við hringtorg Grænás ásamt undirgöngum þar og hringtorgi við gatnamótin við Stekk stórbætt öryggi vegfarenda. Þessi umferðarmannvirki hafa sannað gildi sitt og hafa engin slys orði á fólki þar síðan. Þá stendur yfir útboð í gerð undirganga fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur undir Reykjanesbraut við Hafnaveg og skal verkinu lokið 15. nóvember.
Á undanförnum árum hefur umferðin á þessum kafla Reykjanesbrautar stóraukist bæði vegna íbúafjölgunar og stórauknum straumi ferðamanna. Nú er svo komið að ekki er hægt að bíða lengur með  að tvöfalda þennan vegakafla sem telja þrjú svokölluð „T“ gatnamót. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar  fer fram á það við Ráðherra samgöngumála og Vegamálastjóra að  tvöföldun Reykjanesbrautar verði sett á samgönguáætlun hið fyrsta en þar til henni verði lokið  verði tafarlaust farið í eftirfarandi framkvæmdir.
1. Tengja Hafnaveg við hringtorgið við Stekk.
2. Setja hringtorg við gatnamót Þjóðbrautar og Reykjanesbrautar.
3. Setja hringtorg við gatnamót Aðalgötu og Reykjanesbrautar.
Með því að fara í þessar framkvæmdir verður öllum megin slysagildrum á þessum einum fjölfarnasta vegarkafla útrýmt og öryggi vegfarenda á Reykjanesbraut stóraukið. Þá mun einnig vinnast tími til að vinna að endanlegri lausn sem er tvöföldun Reykjanesbrautarinnar.“

Bæjarstjórn samþykkir ofangreinda bókun 11-0.

Fleira ekki gert og fundi slitið.