505. fundur

20.09.2016 00:00

505. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 20. september.2016 kl. 17:00.

Viðstaddir: Baldur Guðmundsson, Böðvar Jónsson, Elín Rós Bjarnadóttir, Friðjón Einarsson, Guðbrandur Einarsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Gunnar Þórarinsson, Kristinn Þór Jakobsson, Magnea Guðmundsdóttir, Kristján Jóhannsson, Ingigerður Sæmundsdóttir, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir fundarritari. Í forsæti var Guðbrandur Einarsson.

1. Fundargerðir bæjarráðs 8. og 15. september 2016 (2016010009)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Böðvar Jónsson, Kristinn Þór Jakobsson og Friðjón Einarsson. Fundargerðirnar samþykktar 11 - 0.

2. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 13. september 2016 (2016010178)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Friðjón Einarsson. Fjórði liður í fundargerðinni um skiptingu lóðar að Suðurvöllum 7 - 9 var borinn sérstaklega upp til atkvæða og samþykktur með 11 atkvæðum. Fundargerðin samþykkt 11 - 0 að öðru leyti.

3. Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs 5. september 2016 (2016010316)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Samþykkt að vísa öðrum tölulið fundargerðarinnar til bæjarráðs 11 - 0. Til máls tók Gunnar Þórarinsson. Fundargerðin samþykkt 11 – 0.

4. Fundargerð menningarráðs 8. september 2016 (2016010294)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Friðjón Einarsson, Baldur Guðmundsson, Magnea Guðmundsdóttir, Gunnar Þórarinsson, Kristinn Þór Jakobsson, Kristján Jóhannsson, Ingigerður Sæmundsdóttir, Guðbrandur Einarsson og Kjartan Már Kjartansson. Fundargerðin samþykkt 11 - 0.

Fleira ekki gert og fundi slitið.