513. fundur

17.01.2017 00:00

513. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 17. janúar 2017 kl. 17:00.

Viðstaddir: Árni Sigfússon, Baldur Guðmundsson, Böðvar Jónsson, Elín Rós Bjarnadóttir, Friðjón Einarsson, Guðbrandur Einarsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Gunnar Þórarinsson, Kolbrún Jóna Pétursdóttir, Kristinn Þór Jakobsson, Magnea Guðmundsdóttir, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari. Í forsæti var Guðbrandur Einarsson.

1. Fundargerðir bæjarráðs 5. og 12. janúar 2017 (2017010007)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Guðný Birna Guðmundsdóttir og Gunnar Þórarinsson. Fundargerðirnar samþykktar 11-0.

2. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 10. janúar 2017 (2017010147)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Kolbrún Jóna Pétursdóttir.
Þriðji liður í fundargerðinni embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa var borinn sérstaklega upp til atkvæða og var samþykktur með 11 atkvæðum. Þá var fimmtándi liður í fundargerðinni, Reykjanesviti og nágrenni – lýsing vegna breytingar á deiliskipulagi er borinn upp til atkvæða og var samþykktur með 11 atkvæðum. Undir þrettánda lið lýsti Magnea Guðmundsdóttir sig vanhæfa og greiðir ekki atkvæði með þessum lið. Árni Sigfússon greiðir ekki atkvæði um þrettánda lið. Fundargerðin samþykkt 11-0 að öðru leyti.

3. Fundargerð menningarráðs 12. janúar 2017 (2017010176)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir. Fundargerðin samþykkt 11-0.


Fleira ekki gert og fundi slitið.