522. fundur

16.05.2017 00:00

522. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 16. maí.2017, kl. 17:00

Viðstaddir: Baldur Guðmundsson, Böðvar Jónsson, Friðjón Einarsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Gunnar Þórarinsson, Kolbrún Jóna Pétursdóttir, Kristinn Þór Jakobsson, Helga María Finnbjörnsdóttir, Ingigerður Sæmundsdóttir, Jóhann S. Sigurbergsson, Alexander Ragnarsson, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Hrefna Gunnarsdóttir ritari og í forsæti var aldursforseti bæjarstjórnar, Gunnar Þórarinsson í fjarveru forsetanna.

1. Fundargerðir bæjarráðs 4. og 11. maí 2017 (2017010007)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Friðjón Einarsson, Alexander Ragnarsson, Böðvar Jónsson, Helga María Finnbjörnsdóttir, Kristinn Þ. Jakobsson og Gunnar Þórarinsson. Fundargerðirnar samþykktar 11-0.

2. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 9. maí 2017 (2017010147)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Böðvar Jónsson og Kjartan Már Kjartansson.
Samþykkt var að vísa til bæjarráðs, með 11 atkvæðum, 29. lið frá afgreiðslufundi byggingafulltrúa nr. 229 í máli númer eitt í fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs frá 9. maí 2017.
Þrettándi liður í fundargerðinni Nesvellir – Deiliskipulag – Frá bæjarstjórn (2017050038) var borinn sérstaklega upp til atkvæða og var samþykktur með 11 atkvæðum.
Fjórtándi liður í fundargerðinni Grenidalur 2-12 – Skipulagsbreyting (2017030159) var borinn sérstaklega upp til atkvæða og var samþykktur með 11 atkvæðum.
Átjándi liður í fundargerðinni Hlíðahverfi – Deiliskipulagsbreyting (2015100139) var borinn sérstaklega upp til atkvæða og var samþykktur með 11 atkvæðum.
Tuttugasti og fyrsti liður í fundargerðinni Dalsbraut 9-11 - Lóðasameining (2017050054) var borinn sérstaklega upp til atkvæða og var samþykktur með 11 atkvæðum.
Tuttugasti og fimmti liður í fundargerðinni Reynidalur 3-13 – Fjölgun íbúða (2017050059) var borinn sérstaklega upp til atkvæða og var samþykktur með 11 atkvæðum.
Guðný Birna Guðmundsdóttir lýsti sig vanhæfa undir ellefta lið.
Fundargerðin samþykkt 11-0 að öðru leyti.

3. Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs 2. maí 2017 (2017010209)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Kjartan Már Kjartansson, Ingigerður Sæmundsdóttir, Kristinn Þ. Jakobsson og Gunnar Þórarinsson. Fundargerðin samþykkt 11-0.

4. Fundargerð velferðarráðs 4. maí 2017 (2017020056)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Kolbrún Pétursdóttir. Fundargerðin samþykkt 11-0.

5. Fundargerð menningarráðs 11. maí 2017 (2017010176)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Baldur Guðmundsson. Fundargerðin samþykkt 11-0.

6. Fundargerð fræðsluráðs 12. maí 2017 (2017010198)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Alexander Ragnarsson, Kristinn Þ. Jakobsson og Helga María Finnbjörnsdóttir. Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fleira ekki gert og fundi slitið.