523. fundur

06.06.2017 00:00

523. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 6. júní 2017 kl. 17:00

Viðstaddir: Árni Sigfússon, Baldur Guðmundsson, Böðvar Jónsson, Elín Rós Bjarnadóttir, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Gunnar Þórarinsson, Kolbrún Jóna Pétursdóttir, Kristinn Þór Jakobsson, Magnea Guðmundsdóttir, Kristján Jóhannsson, Eysteinn Eyjólfsson, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Hrefna Gunnarsdóttir ritari. Í forsæti var Elín Rós Bjarnadóttir.

1. Fundargerðir bæjarráðs 18. maí og 1. júní 2017 (2017010007)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Kristján Jóhannsson, Eysteinn Eyjólfsson og Kjartan Már Kjartansson. Fundargerðirnar samþykktar 11-0.

2. Fundargerð stjórnar Reykjaneshafnar 18. maí 2017 (2017020267)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Árni Sigfússon og Kristján Jóhannsson. Fundargerðin samþykkt 11-0.

3. Fundargerð fræðsluráðs 26. maí 2017 (2017010198)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Fundargerðin samþykkt 11-0 án umræðu.

4. Fundargerð barnaverndarnefndar 29. maí 2017 (2017010280)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Fundargerðin lögð fram án umræðu.

Fleira ekki gert og fundi slitið,