525. fundur

22.08.2017 00:00

525. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 22. ágúst 2017 kl. 17:00.

Viðstaddir: Árni Sigfússon, Baldur Þ. Guðmundsson, Davíð Páll Viðarsson, Friðjón Einarsson, Guðbrandur Einarsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Gunnar Þórarinsson, Kolbrún Jóna Pétursdóttir, Kristinn Þór Jakobsson, Ingigerður Sæmundsdóttir, Ísak Ernir Kristinsson, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Ásbjörn Jónsson ritari. Í forsæti var Guðbrandur Einarsson.

1. Fundargerð bæjarráðs 17. ágúst 2017 (2017010007)
Forseti gaf orðið laust um fundargerð bæjarráðs frá 17. ágúst 2017 og fundargerðir bæjarráðs í sumarleyfi bæjarstjórnar. Til máls tók Ísak Ernir Kristinsson.
Fundargerðin samþykkt 11-0

2. Fundargerð menningarráðs 10. ágúst 2017 (2017010176)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Baldur Þór Guðmundsson, Kristinn Þ. Jakobsson, Kjartan Már Kjartansson, Ísak Ernir Kristinsson og Guðbrandur Einarsson.
Fundargerðin samþykkt 11-0.

3. Fundargerð velferðarráðs 15. ágúst 2017 (2017020056)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Ísak Ernir Kristinsson, Friðjón Einarsson, Árni Sigfússon, Kjartan Már Kjartansson, Kristinn Þ. Jakobsson, Baldur Þ. Guðmundsson, Guðbrandur Einarsson og Gunnar Þórarinsson.
Fundargerðin samþykkt 11-0.

4. Breyting á skipan fulltrúa í umhverfis- og skipulagsráði (2017060411)
Guðni Jósep Einarsson hefur óskað eftir lausn frá nefndarstörfum í umhverfis- og skipulagsráði. Tillaga kom um Þórð Karlsson sem aðalmann og Elínu Rós Bjarnadóttur sem varamann og voru þau sjálfkjörin.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:25.