532. fundur

21.11.2017 00:00

532. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 21. nóvember 2017, kl. 17:00.

Viðstaddir: Árni Sigfússon, Baldur Guðmundsson, Böðvar Jónsson, Elín Rós Bjarnadóttir, Friðjón Einarsson, Guðbrandur Einarsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Gunnar Þórarinsson, Kolbrún Jóna Pétursdóttir, Kristinn Þór Jakobsson, Ingigerður Sæmundsdóttir, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri, Ásbjörn Jónsson ritari. Í forsæti var Guðbrandur Einarsson.

1. Fundargerðir bæjarráðs 9. og 16. nóvember 2017 (2017010007)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Friðjón Einarsson, Böðvar Jónsson og Gunnar Þórarinsson.
Fundargerðirnar samþykktar 11-0.

2. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 14. nóvember 2017 (2017010147)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.
Tuttugasti og annar liður fundargerðarinnar, Víkurbraut 21 og 23 – aðalskipulagsbreyting (2017090121), var samþykktur sérstaklega með 11 atkvæðum.
Tuttugasti og þriðji liður fundargerðarinnar, Víkurbraut 21 og 23 - deiliskipulagsbreyting (2017090121), var samþykktur sérstaklega með 11 atkvæðum.
Tuttugasti og fjórði liður fundargerðarinnar, Dalsbraut 3 og 5 - deiliskipulagsbreyting (2017110122), var samþykktur sérstaklega með 11 atkvæðum.
Tuttugasti og fimmti liður fundargerðarinnar, Stapabraut 21 - leiðrétt deiliskipulag (2013030104), var samþykktur sérstaklega með 11 atkvæðum.
Tuttugasti og sjötti liður fundargerðarinnar, Framnesvegur 11 - tillaga að deiliskipulagi (2016010192), var samþykktur sérstaklega með 11 atkvæðum.
Fundargerðin samþykkt að öðru leyti 11-0 án umræðu.

3. Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs 7. nóvember 2017 (2017010209)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Ingigerður Sæmundsdóttir, Guðbrandur Einarsson, Kjartan Már Kjartansson, Kristinn Þór Jakobsson og Gunnar Þórarinsson.
Fjórða lið fundargerðarinnar, Fjárhagsáætlun ÍT 2018 (2017090302) var vísað til bæjarráðs með 11 atkvæðum.
Fundargerðin samþykkt 11-0 að öðru leyti.

4. Fundargerð menningarráðs 9. nóvember 2017 (2017010176)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Baldur Guðmundsson. Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:40.