539. fundur

06.03.2018 00:00

539. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 6. mars 2018 kl. 17:00.

Viðstaddir: Árni Sigfússon, Böðvar Jónsson, Friðjón Einarsson, Kolbrún Jóna Pétursdóttir, Kristinn Þór Jakobsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Baldur Þ. Guðmundsson, Elín Rós Bjarnadóttir, Kristján Jóhannsson, Alexander Ragnarsson, Ingigerður Sæmundsdóttir, Ásbjörn Jónsson staðgengill bæjarstjóra og Hrefna Gunnarsdóttir ritari. Í forsæti var Elín Rós Bjarnadóttir.

1. Fundargerðir bæjarráðs 22. febrúar og 1. mars 2018 (2018010002)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tók Böðvar Jónsson.

Fundargerðirnar samþykktar 10-0.

2. Fundargerð velferðarráðs 22. febrúar 2018 (2018010214)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Friðjón Einarsson.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

3. Fundargerð fræðsluráðs 23. febrúar 2018 (2018010213)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Alexander Ragnarsson.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

4. Fundargerð barnaverndarnefndar 26. febrúar 2018 (2018010344)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Kristinn Þ. Jakobsson.
Tillaga frá Kristni Þ. Jakobssyni um að ársskýrslu barnaverndar verði vísað til bæjarráðs 8. mars nk. Var það samþykkt 11-0.

Fundargerðin lögð fram.

5. Lögreglusamþykkt sveitarfélaga á Suðurnesjum - seinni umræða (2017060143)
Forseti gaf orðið laust um lögreglusamþykktina.

Lögreglusamþykkt samþykkt með 11 atkvæðum án umræðu.

6. Húsnæðisáætlun Reykjanesbæjar - fyrri umræða (2018020333)
Forseti gaf orðið laust um áætlunina. Til máls tóku Friðjón Einarsson, Kristinn Þ. Jakobsson og Böðvar Jónsson.

Húsnæðisáætlun er vísað til seinni umræðu í  bæjarstjórn 20. mars, samþykkt 11-0.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:00.