568. fundur

11.06.2019 17:00

568. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn í Stapa þann 11. júní 2019 kl. 17:00

Viðstaddir: Anna Sigríður Jóhannesdóttir, Díana Hilmarsdóttir, Friðjón Einarsson, Guðbrandur Einarsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Gunnar Þórarinsson, Margrét A. Sanders, Styrmir Gauti Fjeldsted, Ríkharður Ibsen, Trausti Arngrímsson, Linda María Guðmundsdóttir, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari. Í forsæti var Guðný Birna Guðmundsdóttir.

1. Reykjanesbær í 25 ár (2019050828)

Guðný Birna Guðmundsdóttir forseti bæjarstjórnar fór yfir sögu Reykjanesbæjar síðastliðin 25 ár.

Forseti gaf orðið laust. Enginn fundarmanna tók til máls undir þessum lið.

2. Stefnumótun Reykjanesbæjar til ársins 2030 - fyrri umræða (2019050834)

Guðbrandur Einarsson kynnti stefnumótun Reykjanesbæjar til ársins 2030.

Forseti gaf orðið laust. Til máls tók Margrét A. Sanders.

Samþykkt samhljóða að vísa stefnumótuninni til síðari umræðu í bæjarstjórn 17. september n.k.

Fylgigögn

Stefnuferli og stefna Reykjanesbæjar 2020-2030 - drög

3. Endurskoðun stjórnskipulags Reykjanesbæjar - síðari umræða (2019050809)

Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Friðjón Einarsson, Ríkharður Ibsen, Guðbrandur Einarsson og Gunnar Þórarinsson.

Felld var tillaga frá Ríkharði Ibsen, Sjálfstæðisflokki um að fresta málinu.

Stjórnskipulag Reykjanesbæjar var samþykkt með sjö atkvæðum bæjarfulltrúa Samfylkingar, Framsóknarflokks, Beinnar leiðar og Miðflokks. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Frjáls afls sátu hjá.

Fylgigögn

Skipurit nefnda og starfseininga

4. Endurskoðun samþykkta Reykjanesbæjar - síðari umræða (2019050808)

Forseti fór yfir bæjarmálasamþykkt Reykjanesbæjar og helstu breytingar á henni.

Forseti gaf orðið laust. Enginn fundarmanna tók til máls undir þessum lið.

Samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar samþykkt samhljóða.

Fylgigögn

Samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar - lokadrög

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:00.