610. fundur

04.05.2021 17:00

610. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, haldinn í Merkinesi, Hljómahöll 4. maí 2021, kl. 17:00

Viðstaddir: Anna Sigríður Jóhannesdóttir, Baldur Þ. Guðmundsson, Díana Hilmarsdóttir, Friðjón Einarsson, Guðbrandur Einarsson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Gunnar Þórarinsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Margrét A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir, Styrmir Gauti Fjeldsted, Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari. Í forsæti var Guðbrandur Einarsson.

1. Fundargerðir bæjarráðs 21. og 29. apríl 2021 (2021010002)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar.

Fundargerðirnar samþykktar án umræðu 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 1316. fundar bæjarráðs 21. apríl 2021
Fundargerð 1317. fundar bæjarráðs 29. apríl 2021

2. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 21. apríl 2021 (2021010010)

Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi liði fundargerðarinnar frá 21. apríl til sérstakrar samþykktar:

Annar liður fundargerðarinnar Borgarvegur 24 – leiðrétting á lóðarmörkum (2020110238). Til máls tók Margrét Þórarinsdóttir (M) og lagði fram tillögu um að vísa málinu aftur til umhverfis- og skipulagsráðs til frekari skoðunar.
Forseti lagði til að tillögu Margrétar Þórarinsdóttur verði hafnað. Tillaga forseta samþykkt 10-0.
Annar liður samþykktur 10-0, Margrét Þórarinsdóttir (M) samþykkir ekki annan lið fundargerðarinnar.

Þriðji liður fundargerðarinnar Djúpivogur 20 – bílageymsla (2021030571) samþykktur 11-0 án umræðu.
Fjórði liður fundargerðarinnar Iðavellir 1 – stækkun (2021040428) samþykktur 11-0 án umræðu.
Fimmti liður fundargerðarinnar Hafnargata 22-28 – deiliskipulag (2019050478) samþykktur 11-0 án umræðu.

Forseti gaf orðið laust. Fundargerðin samþykkt að öðru leyti án umræðu 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 269. fundar umhverfis- og skipulagsráðs 21. apríl 2021

3. Fundargerð menningar- og atvinnuráðs 20. apríl 2021 (2021010008)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Friðjón Einarsson, Margrét A. Sanders og Guðbrandur Einarsson.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 20. fundar menningar- og atvinnuráðs 20. apríl 2021

4. Fundargerð framtíðarnefndar 21. apríl 2021 (2021010004)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Styrmir Gauti Fjeldsted.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 19. fundar framtíðarnefndar 21. apríl 2021

5. Fundargerð barnaverndarnefndar 26. apríl 2021 (2021010570)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Enginn fundarmanna tók til máls undir þessum lið.

Fylgigögn:

Fundargerð 280. fundar barnaverndarnefndar 26. apríl 2021

6. Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs 27. apríl 2021 (2021010006)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Díana Hilmarsdóttir, Baldur Þ. Guðmundsson, Guðbrandur Einarsson og Friðjón Einarsson.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 149.fundur ÍT ráðs 27. apríl 2021

7. Þjónustu- og gæðastefna Reykjanesbæjar – síðari umræða (2021020193)

Forseti gaf orðið laust um þjónustu- og gæðastefnu Reykjanesbæjar.

Þjónustu- og gæðastefna Reykjanesbæjar samþykkt án umræðu 11-0.

Fylgigögn:

Þjónustu-og gæðastefna Reykjanesbæjar

8. Ný heilsugæslustöð á Suðurnesjum (2021010393)

Áður en forseti gaf orðið laust las hann upp sameiginlega bókun bæjarfulltrúa Reykjanesbæjar:

„Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skorar á heilbrigðisráðherra að tryggja starfsemi nýrrar heilsugæslu hér á Suðurnesjum sem allra fyrst og alls ekki seinna en 1. október 2021.
Verkefnið er aðkallandi enda búa tæplega 28 þúsund manns á Suðurnesjum. Á svæðinu er aðeins ein heilsugæslustöð sem hönnuð var fyrir einungis hluta af þessum fjölda.
Uppi hafa verið fyrirheit um byggingu nýrrar heilsugæslustöðvar en verkefnið gengur seint. Nokkurra ára bið eftir að ný heilsugæsla taki til starfa er með öllu óásættanleg. Slík staða mætir ekki núverandi ástandi og þörf íbúa Reykjanesbæjar fyrir lögbundið aðgengi að heilbrigðiskerfinu.
Um fjögur þúsund íbúar sækja heilsugæsluþjónustu til höfuðborgarsvæðisins, því fyrsti viðkomustaður heilbrigðiskerfisins í heimabyggð annar ekki þeim fjölda sem hér býr. Nýverið sagði HSS upp lögbundinni heilbrigðisskoðun starfsfólks Brunavarna Suðurnesja sem þarf því að leita annað. Aðstaða heilsugæslu HSS er óboðleg fyrir starfsfólk stofnunarinnar eins og úttektir Landlæknisembættisins hafa ítrekað sýnt fram á.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar og Suðurnesjamenn allir eru einhuga í þessari kröfugerð og binda vonir við að ríkisvaldið bregðist strax við þessari málaleitan. Íbúar Suðurnesja geta ekki beðið lengur.
Bæjarstjórn lýsir því jafnframt yfir að hún muni beita öllum tiltækum ráðum með hagaðilum svo af þessu verði enda er sú staða sem uppi er í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum ekki boðleg. Það ætti ekki að vera neinum erfiðleikum bundið að finna tímabundið húsnæði fyrir heilsugæslu á meðan unnið er að langtímaúrræði. Íbúar á svæðinu eiga rétt á að þjónustan verði bætt án tafar.“

Margrét Sanders (D), Baldur Þórir Guðmundsson (D), Guðbrandur Einarsson (Y), Gunnar Þórarinsson (Á), Friðjón Einarsson (S), Jóhann Friðrik Friðriksson (B), Margrét Þórarinsdóttir (M), Anna Sigríður Jóhannesdóttir (D), Díana Hilmarsdóttir (B), Guðný Birna Guðmundsdóttir (S), Styrmir Gauti Fjeldsted (S).

Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Kjartan Már Kjartansson, Margrét A. Sanders, Jóhann Friðrik Friðriksson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Baldur Þ. Guðmundsson og Guðbrandur Einarsson.

9. Ársreikningur Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar 2020 (2021040123) – fyrri umræða

Forseti gaf orðið laust. Til máls tók Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og fylgdi ársreikningi Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar 2020 úr hlaði.

Til máls tóku Friðjón Einarsson, Baldur Þ. Guðmundsson, Guðbrandur Einarsson, Gunnar Þórarinsson og Jóhann Friðrik Friðriksson.

Ársreikningi Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar 2020 vísað til seinni umræðu í bæjarstjórn 18. maí 2021.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:05.