652. fundur

18.04.2023 17:00

652. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, haldinn í Stapa, Hljómahöll 18. apríl 2023, kl. 17:00

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson, Bjarni Páll Tryggvason, Díana Hilmarsdóttir, Friðjón Einarsson, Guðbergur Reynisson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Margrét A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir, Sverrir Bergmann Magnússon og Valgerður Björk Pálsdóttir. Í forsæti var Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.

Að auki sátu fundinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Helga Jóhanna Oddsdóttir boðaði forföll, Alexander Ragnarsson sat fyrir hana.

1. Fundargerðir bæjarráðs 5. og 13. apríl 2023 (2023010005)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tóku Margrét A. Sanders, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Friðjón Einarsson, Margrét Þórarinsdóttir, Bjarni Páll Tryggvason, Kjartan Már Kjartansson og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.

Margrét Þórarinsdóttir (U) situr hjá undir 2. máli fundargerðar bæjarráðs frá 13. apríl 2023. Fundargerðirnar samþykktar að öðru leyti 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 1413. fundar bæjarráðs 5. apríl 2023
Fundargerð 1414. fundar bæjarráðs 13. apríl 2023

2. Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs 11. apríl 2023 (2023010010)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Guðný Birna Guðmundsdóttir, Margrét A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir, Alexander Ragnarsson, Friðjón Einarsson, Díana Hilmarsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Valgerður Björk Pálsdóttir.

Forseti bar upp tillögu að fyrsta og annað mál frá fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 11. apríl 2023 verði vísað til bæjarráðs, tillagan samþykkt 11-0.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 169. fundur ÍT 11.04. 2023

3. Fundargerð framtíðarnefndar 12. apríl 2023 (2023010006)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.

Fundargerðin samþykkt 11-0 án umræðu.

Fylgigögn:

Fundargerð 40. fundar framtíðarnefndar 12. apríl 2023

4. Fundargerð stjórnar Reykjaneshafnar 13. apríl 2023 (2023010013)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Alexander Ragnarsson.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 273. fundar Stjórnar Reykjaneshafnar 13.04.23

5. Fundargerð fræðsluráðs 14. apríl 2023 (2023010009)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Guðný Birna Guðmundsdóttir og Margrét A. Sanders.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 361. fundar fræðsluráðs 14. apríl 2023

6. Markaðsstefna Reykjanesbæjar 2023-2028 – fyrri umræða (2021110284)

Forseti gaf orðið laust. Til máls tók Sverrir Bergmann Magnússon sem fylgdi markaðsstefnu Reykjanesbæjar úr hlaði.

Til máls tóku Margrét A. Sanders, Bjarni Páll Tryggvason, Guðný Birna Guðmundsdóttir og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.

Markaðsstefnu Reykjanesbæjar 2023-2028 vísað til seinni umræðu bæjarstjórnar 2. maí 2023.

7. Ársreikningur Reykjanesbæjar 2022 – fyrri umræða (2023040104)

Til máls tók Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og fylgdi ársreikningi Reykjanesbæjar 2022 úr hlaði.

Til máls tóku Friðjón Einarsson, Margrét A. Sanders

Ársreikningi Reykjanesbæjar 2022 vísað til seinni umræðu í bæjarstjórn 16. maí 2023.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:35.