714. fundur

03.03.2026 17:00

714. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, haldinn að Grænásbraut 910, 3. mars 2026, kl. 17:00

Viðstaddir:
Alexander Ragnarsson, Díana Hilmarsdóttir, Guðbergur Reynisson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Helga María Finnbjörnsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Margrét A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Sigurrós Antonsdóttir. Í forsæti var Guðný Birna Guðmundsdóttir.

Að auki sátu fundinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

Forseti óskaði eftir samþykki bæjarfulltrúa að taka á dagskrá yfirlýsingu Margrétar Þórarinsdóttur áður en gengið var til dagskrár fundarins. Var það samþykkt 11-0.

Yfirlýsing Margrétar Þórarinsdóttur:

„Ég vil hér upplýsa að ég hef tekið þá vel ígrunduðu ákvörðun að ganga til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn og mun héðan í frá bóka undir merkjum Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Reykjanesbæjar.

Ákvörðunin byggir á málefnalegum samhljómi í þeim stefnumálum sem ég hef lagt áherslu á í störfum mínum hér í bæjarstjórn.

Ég mun áfram sinna störfum mínum af ábyrgð og með hagsmuni íbúa Reykjanesbæjar að leiðarljósi.“

Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki.

1. Fundargerðir bæjarráðs 19. og 26. febrúar 2026 (2026010008)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tók Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.

Til máls tók Margrét Þórarinsdóttir (D) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 4 frá fundargerð bæjarráðs 19. febrúar 2026 – Akademíureitur (2025010481)

„Ég vísa til fyrri bókana fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Umbótar um Akademíureitinn þar sem ítrekað hefur verið kallað eftir heildstæðri umferðarlausn, skýrri stefnumótun og vönduðum undirbúningi áður en ráðist er í útboð og sölu byggingarréttar.

Um er að ræða umfangsmikið og áhrifamikið þróunarverkefni fyrir sveitarfélagið með veruleg áhrif á samgöngur, þjónustu og fjárhagslega stöðu Reykjanesbæjar til framtíðar.

Slík verkefni krefjast þess að forsendur, markmið, greiningar og samningsrammi liggi skýrt fyrir áður en tekin eru frekari skref.

Þar sem málið verður tekið aftur fyrir í bæjarráði er mikilvægt að sú umfjöllun fari fram á grundvelli fullnægjandi gagna og skýrrar stefnu áður en lengra er haldið.“

Margrét Þórarinsdóttir, Margrét Sanders, Guðbergur Reynisson og Alexander Ragnarsson, Sjálfstæðisflokki.

Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 1 frá fundargerð bæjarráðs 19. febrúar 2026 – Helguvík Investment (2026020390)

„Meirihluti Reykjanesbæjar fagnar því að verið sé að samþykkja kaup á stórum hluta af lóð kísilversins, aftur til bæjarins. Nú kemur lóðin og afsal hennar aftur til okkar og við getum dregið hér línu í sandinn á því sorgarverkefni sem uppbygging þungs iðnaðar í Helguvík var.

Loforð um 300 störf, bestu mengunarvarnir sögunnar og best launuðu störf í manna minnum eru tálmyndir sem urðu ekki. Nú getum við í Reykjanesbæ, níu árum síðar, andað léttar og skipulagt okkur til framtíðar.

Nú fljótlega verður hafist handa við niðurrif verksmiðjunnar á lóð Reykjanesbæjar og hægt verður að auglýsa nýjar atvinnulóðir við höfnina okkar.

Við fögnum þessum verðuga áfanga og þessum nýju tímamótum fyrir framtíð Reykjanesbæjar.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Sigurrós Antonsdóttir Samfylkingunni, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Helga María Finnbjörnsdóttir Beinni leið.

Fundargerðirnar samþykktar 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 1552. fundar bæjarráðs 19. febrúar 2026
Fundargerð 1553. fundar bæjarráðs 26. febrúar 2026

2. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 20. febrúar 2026 (2026010016)

Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 20. febrúar til sérstakrar samþykktar:

Fimmta mál fundargerðarinnar Faxabraut 7 - grenndarkynning (2024030067) samþykkt 11-0 án umræðu.

Forseti gaf orðið laust. Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir og bar upp tillögu um að sjöunda máli, Umferðaöryggi 2026-2030 (2026020367), verði vísað til frekari umræðu hjá umhverfis- og skipulagsráði. Samþykkt 11-0.

Til máls tók Róbert Jóhann Guðmundsson.

Til máls tók Guðbergur Reynisson (D) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 8 frá fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs – Samstarf um hringrásariðngarð – erindisbréf (2023100396)

„Sjálfstæðisflokkurinn tekur jákvætt í markmið um sjálfbæra atvinnuuppbyggingu og þróun hringrásariðngarðs við Helguvíkurhöfn.

Hins vegar er ljóst að samkvæmt erindisbréfi er verið að setja á laggirnar faghóp sem á að meta umsóknir um lóðir, móta fagleg viðmið og leggja forsendur fyrir þróun svæðisins. Þótt formlegt skipulagsvald og lokaákvörðun liggi hjá sveitarfélögunum mun mat og vinnulag þessa hóps hafa veruleg áhrif á uppbyggingu til framtíðar.

Því er mikilvægt að afmarkað sé með ótvíræðum hætti hvernig ráðgefandi hlutverk hópsins samræmist lögbundnu skipulagsvaldi sveitarfélaganna og að formleg staða og skuldbinding Reykjanesbæjar liggi fyrir.

Jafnframt telja fulltrúar Sjálfstæðisflokksins nauðsynlegt að skilgreint verði hvernig hlutverk hópsins varðandi þróun svæðisins, mótun viðmiða og mat á lóðaumsóknum fellur að formlegri ákvörðunartöku sveitarfélaganna.

Um er að ræða verkefni sem mun lifa lengur en eitt kjörtímabil og móta þróun svæðisins til lengri tíma. Slík verkefni krefjast vandaðs undirbúnings, skýrrar afmörkunar ábyrgðar og breiðs pólitísks trausts.

Þó svo að undirritaður hafi samþykkt á fundinum að formaður og starfsmenn USK verði skipaðir í hópinn, vil ég benda á að í niðurlagi bókunar USK kemur fram að óskað er eftir nánari kynningu á verkefninu s.s. erindisbréfinu.

Til dæmis væri fróðlegt að vita hvers vegna lóðir á Ásbrú eru ekki líka inni í þessum faghópi.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja því mikilvægt að ekki verði gengið lengra í skuldbindingum á grundvelli þessa erindisbréfs fyrr en framangreind atriði hafa verið skýrð.

Við óskum eftir að þessu máli verði frestað og sent til kynningar í umhverfis- og skipulagsráði áður en undirritun Reykjanesbæjar er sett á skjalið.“

Guðbergur Reynisson, Margrét Sanders, Margrét Þórarinsdóttir og Alexander Ragnarsson, Sjálfstæðisflokki.

Til máls tóku Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Róbert Jóhann Guðmundsson, Margrét A. Sanders, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Kjartan Már Kjartansson, Guðbergur Reynisson, Alexander Ragnarsson og Guðný Birna Guðmundsdóttir.

Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 8 frá fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs – Samstarf um hringrásariðngarð – erindisbréf (2023100396)

„Meirihluta bæjarstjórnar þykir mikilvægt að fram komi að Reykjanesbær skipaði fimm manns í sameiginlegan faghóp Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar og KADECO sem á að fjalla um samstarf um hringrásariðngarð. Faghópurinn hefur það hlutverk að vera ráðgefandi um lóðaúthlutanir í takt við markmið hringrásariðngarðs á landsvæði Helguvíkur og Bergvíkur. Um er að ræða samstarf sem er ekki bindandi að neinu leyti fyrir sveitarfélagið sem fer áfram með skipulagsvald á landsvæði Reykjanesbæjar á svæðinu.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Sigurrós Antonsdóttir Samfylkingunni, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Helga María Finnbjörnsdóttir Beinni leið.

Til máls tóku Margrét Þórarinsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Alexander Ragnarsson.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Margrét A. Sanders, Alexander Ragnarsson, Guðbergur Reynisson og Margrét Þórarinsdóttir sitja hjá í áttunda máli, Samstarf um hringrásariðngarð – erindisbréf (2023100396), fundargerðin samþykkt að öðru leyti 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 383. fundar umhverfis- og skipulagsráðs 20. febrúar 2026

3. Fundargerð stjórnar eignasjóðs 19. febrúar 2026 (2026010015)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 26. fundar stjórnar Eignasjóðs 19. febrúar 2026

4. Fundargerð sjálfbærniráðs 25. febrúar 2026 (2026010014)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 68. fundar sjálfbærniráðs 25. febrúar 2026

5. Fundargerð atvinnu- og hafnarráðs 26. febrúar 2026 (2026010009)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Róbert Jóhann Guðmundsson og Margrét A. Sanders.

Til máls tók Margrét Þórarinsdóttir (D) og lagði fram eftirfarandi bókun:

Mál 11 frá fundargerð atvinnu- og skipulagsráðs frá 26. febrúar 2026 - Carbfix – umsókn um könnunarleyfi í Helguvík – umsögn (2026020464)

„Undirrituð vísa til bókunar sem bókuð var í bæjarstjórn 5. nóvember 2024 vegna máls 3 frá fundargerð bæjarráðs frá 31. október 2024:

„Í ljósi Helguvíkur/Bergvíkur verkefnisins er ólíklegt að hægt verði að fara í þessa niðurdælingu sem Carbfix verkefnið krefst til lengri tíma litið á því svæði sem tilraunaniðurdæling fer fram. Óski Carbfix eftir áframhaldandi leyfi þykir okkur í Umbót svæðið ekki vera vel til þess fallið. Heillavænlegra væri að finna svæði sem er ekki svo nærri núverandi og framtíðaríbúðauppbyggingu í Reykjanesbæ. Ég samþykki því ekki lið 3.“

Sjálfstæðisflokkurinn tekur undir þau sjónarmið sem þar koma fram.

Sjálfstæðisflokkurinn tekur ekki undir þá nálgun að heimila könnunarleyfi með fyrirvara um mögulega framtíðaruppbyggingu á svæðinu og leggst því gegn veitingu könnunarleyfis. Ef um er að ræða frekari og umfangsmeiri starfsemi en upphaflega var kynnt bæjarstjórn sem tímabundið tilraunaverkefni telur Sjálfstæðisflokkurinn eðlilegt að slík stefnumarkandi ákvörðun fari fram að undangenginni skýrri og opinni umræðu við íbúa sveitarfélagsins.“

Margrét Þórarinsdóttir, Margrét Sanders, Guðbergur Reynisson og Alexander Ragnarson Sjálfstæðisflokki.

Til máls tóku Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Alexander Ragnarsson, Margrét Þórarinsdóttir, Guðný Birna Guðmundsdóttir og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 305. fundar atvinnu- og hafnarráðs 26. febrúar 2026

6. Fundargerð menningar- og þjónusturáðs 27. febrúar 2026 (2026010012)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Guðbergur Reynisson.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 73. fundar menningar- og þjónusturáðs 27. febrúar 2026

7. Óbyggðar atvinnulóðir - svar við fyrirspurn (2026020140)

Forseti fór yfir svör vegna fyrirspurnar Sjálfstæðisflokks frá bæjarstjórnarfundi 3. febrúar 2026 undir dagskrárlið Fundargerð atvinnu- og hafnarráðs þar sem óskað var eftir yfirliti yfir allar óbyggðar atvinnulóðir sem hafa verið í úthlutun lengur en í 2 ár innan Reykjanesbæjar, sem og atvinnulóðir sem hefur jafnvel ekki verið úthlutað, eða greidd gjöld af.

Forseti gaf orðið laust.

Til máls tók Guðbergur Reynisson (D) og lagði fram eftirfarandi bókun:

„Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að samráðshópi umhverfis- og skipulagsráðs og atvinnu- og hafnarráðs verði falið að gera heildstæða og opinbera kortlagningu allra lausra og ónýttra atvinnulóða í Reykjanesbæ, þar með talið á Ásbrú og í Helguvík, í ráðgefandi samráði við Kadeco.

Markmið vinnunnar verði að leggja fram skýra stöðugreiningu á framboði atvinnulóða, stöðu úthlutaðra en óuppbyggðra lóða og raunhæfar tillögur um hvernig sveitarfélagið geti hvatt lóðarhafa til uppbyggingar innan eðlilegs tímaramma. Jafnframt verði hópnum falið að leggja fram tillögur að mögulegum nýjum staðsetningum atvinnulóða með hliðsjón af innviðum, samgöngum og langtímaþróun sveitarfélagsins.

Óskað er eftir að bæjarstjórn verði upplýst um niðurstöðu hvers liðar um leið og niðurstöður liggja fyrir og að vinnunni verði hraðað eins og kostur er.“

Guðbergur Reynisson, Margrét Sanders, Margrét Þórarinsdóttir og Alexander Ragnarsson, Sjálfstæðisflokki.

Til máls tóku Róbert Jóhann Guðmundsson, Kjartan Már Kjartansson og Hjörtur Magnús Guðbjartsson.

Forseti gerir fundarhlé kl. 18:54.
Fundur aftur settur kl.19:02.

Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókun:

„Við yfirferð á óbyggðum atvinnulóðum í landi Reykjanesbæjar kom fram að nokkrar lóðir hafa greitt öll gjöld en framkvæmdir ekki farnar af stað. Telur bæjarstjórn mikilvægt að uppbygging á úthlutuðum lóðum fari af stað innan tveggja ára. Það sem liggur fyrir nú fram undan er að kortleggja nákvæmlega tímafrest framkvæmda á lóðunum. Í þeim tilvikum þar sem lóðaúthlutun er komin yfir tveggja ára markið án framkvæmda mun Reykjanesbær skoða möguleikann á að endurheimta lóðirnar til að hægt sé að endurúthluta þeim. Eðlilegt er að samráðshópur atvinnu- og hafnarráðs og umhverfis- og skipulagsráðs taki málið til sín til frekari vinnslu.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Sigurrós Antonsdóttir Samfylkingunni, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Helga María Finnbjörnsdóttir Beinni leið.

Til máls tóku Guðbergur Reynisson, Margrét A. Sanders, Alexander Ragnarsson og Hjörtur Magnús Guðbjartsson.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks taka undir framlagða bókun meirihluta bæjarstjórnar.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:07.