- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Alexander Ragnarsson, Díana Hilmarsdóttir, Guðbergur Reynisson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Helga María Finnbjörnsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Margrét A. Sanders, Margrét Þórarinsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Sigurrós Antonsdóttir. Í forsæti var Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Að auki sátu fundinn Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri og Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar.
Til máls tók Margrét A. Sanders (D) og lagði fram eftirfarandi bókun:
Mál 6 frá fundargerð bæjarráðs 5. mars 2026 – Fjárreiður Reykjanesbæjar (2025040024)
„Föstudaginn 4. apríl 2025 var boðaður aukabæjarstjórnarfundur Reykjanesbæjar með nokkurra klukkustunda fyrirvara til að samþykkja skammtímafjármögnun sveitarfélagsins upp á 1 milljarð.
Þessi ósk um skammtímafjármögnun kom öllum að óvörum og því lagði meirihluti Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar til að stofnuð yrði fjárreiðunefnd sem yrði skipuð oddvitum allra flokka ásamt fjármálastjóra og bæjarstjóra. Ánægjulegt var að öll bæjarstjórn var samstíga um að ástæða væri til að taka fjármálastýringu fastari tökum þó ekki hafi verið samstaða um leiðir. Sjálfstæðisflokkurinn taldi skynsamlegt að setja upp mun betra eftirlit með fjármálum enda hafði margoft verið kallað eftir því. Við töldum eðlilegra að setja málið reglulega á dagskrá bæjarráðs í stað þess að stofna enn eina nefndina enda sitja allir þessir aðilar utan fjármálastjóra í bæjarráði.
Niðurstaðan var að yfirferð á fjármálum sveitarfélagsins átti að vera mánaðarlega á dagskrá bæjarráðs. Þetta fór vel af stað, fylgst var betur með fjárflæði með ítarlegri fjárflæðisáætlun, farið yfir framkvæmdakostnað og stöðu á þeim og fleira. Því miður stóð þetta stutt yfir.
Sem dæmi að á bæjarráðsfundi 5. mars sl. voru fjárreiður Reykjanesbæjar á dagskrá. Fjármálastjóri mætti með fjárflæðisáætlun og fór yfir lausafjárstöðu sveitarfélagsins, engin gögn voru send út fyrir fund og farið það hratt yfir að heildaryfirferðin tók innan við 15 mínútur, en áætlað var að yfirferðin yrði um 2 klst. mánaðarlega. Engin gögn, fáar spurningar enda ekki möguleiki að kynna sér stöðuna fyrr en á fundinn var komið. Ekki farið yfir fjárhagsstöðu framkvæmda, ekki ástæða til að ræða 684 milljón króna hærri launakostnað á menntasviði en áætlanir gerðu ráð fyrir. Ekkert.
Engin gögn hafa enn ekki verið sett inn vegna þessa, ekki einu sinni það sem kynnt var.
Sjálfstæðisflokkurinn ítrekar að breyting verði á og sett verði upp dagskrá á fjárreiðuhluta bæjarráðs sem fram fer mánaðarlega og að eftirfarandi verði ávallt á dagskrá ásamt öðru sem til fellur:
1. Fjárflæðisáætlun næstu tólf mánaða.
2. Fjárhagsstaða framkvæmda samanborið við áætlanir.
3. Raunstaða vs. fjárhagsáætlun einstakra fjárhagslykla og greining á þeim liðum sem eru ekki að standast fjárhagsáætlun.
Með þessu skipulagi væri hægt að átta sig betur á stöðu fjármála hjá sveitarfélaginu, grípa til ráðstafana þegar þörf þykir og um leið uppfylla lögbundna eftirlitsskyldu.“
Margrét Sanders, Guðbergur Reynisson, Alexander Ragnarsson og Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki.
Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Margrét A. Sanders og Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Til máls tók Alexander Ragnarsson (D) og lagði fram eftirfarandi bókun:
Mál 1 frá fundargerð bæjarráðs 12. mars 2026 - Stjórn bílastæðasjóðs (2022100414)
„Við bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins ítrekum þá afstöðu okkar að bílastæðasjóður Reykjanesbæjar verði ekki að tekjuöflunartæki fyrir bæjarsjóð, og ekki íþyngjandi fyrir íbúa Reykjanesbæjar.
Markmið sjóðsins sé að stemma stigu við ólöglega lögðum farartækjum og þeim farartækjum sem lagt er til lengri tíma í bílastæði sem ekki eru til þess ætluð, í óþökk íbúa og fyrirtækja í Reykjanesbæ.“
Margrét Sanders, Guðbergur Reynisson, Alexander Ragnarsson og Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki.
Til máls tóku Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Margrét A. Sanders.
Forseti gerir fundarhlé kl. 17:33.
Fundur aftur settur kl. 17:40.
Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókun:
Mál 1 frá fundargerð bæjarráðs 12. mars 2026 - Stjórn bílastæðasjóðs (2022100414)
„Bílastæðasjóður er fyrst og fremst hugsaður sem aukið eftirlit með bílum í sveitarfélaginu okkar sem lagt er ólöglega og til lengri tíma. Það hefur sína kosti og galla að búa í sveitarfélagi við hlið alþjóðaflugvallar. Sjóðurinn er ekki hugsaður sem tekjulind fyrir sveitarfélagið. Fyrirhugað er að stöðuvörður hafi einnig eftirlit með gámum og númerslausum bifreiðum í sveitarfélaginu.
Bílastæðasjóður er ekki hugsaður sem tekjulind og algjörlega ljóst að ekki verða lagðar á auknar álögur á íbúa né sköpuð sérstök bílastæðagjaldsvæði.“
Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Sigurrós Antonsdóttir Samfylkingu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Helga María Finnbjörnsdóttir Beinni leið.
Til máls tóku Margrét A. Sanders, Guðbergur Reynisson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Alexander Ragnarsson.
Fundargerðirnar samþykktar 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 1554. fundar bæjarráðs 5. mars 2026
Fundargerð 1555. fundar bæjarráðs 12. mars 2026
Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 6. mars til sérstakrar samþykktar:
Þriðja mál fundargerðarinnar Bergvegur 11 (2026020028) samþykkt 11-0 án umræðu.
Fjórða mál fundargerðarinnar Akademíureitur - framtíðarsýn (2025010481).
Til máls tók Guðbergur Reynisson (D) og lagði fram eftirfarandi bókun vegna fjórða máls:
„Við fulltrúar Sjálfstæðisflokks í umhverfis- og skipulagsráði greiddum atkvæði gegn tillögum um breytt lóðamörk á Akademíureit.
Um er að ræða eitt stærsta og mikilvægasta skipulagsmál sveitarfélagsins. Að okkar mati er málið keyrt áfram með of miklum hraða án þess að nauðsynlegar forsendur liggi fyrir.
Við höfum ítrekað kallað eftir heildstæðri umferðarlausn og skýrum svörum um fyrirkomulag bílastæða, en án fullnægjandi viðbragða. Ekki er forsvaranlegt að taka ákvarðanir af þessari stærðargráðu án þess að slík grunnatriði liggi skýrt fyrir.
Við leggjum áherslu á að hér er ekki verið að tefja framkvæmdir heldur að tryggja að þær séu byggðar á réttum forsendum og vandaðri málsmeðferð.
Slík vinnubrögð samræmast ekki góðri stjórnsýslu.“
Margrét Sanders, Guðbergur Reynisson, Alexander Ragnarsson og Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki.
Til máls tók Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókun vegna fjórða máls:
„Starfshópur Akademíureits fundaði 25. febrúar og ræddi næstu skref í verkefninu eins og hópnum var falið á fundi bæjarráðs þann 19. febrúar sl. þegar minnisblað starfshópsins var lagt fram með tillögum hópsins að breyttum lóðamörkum sem unnar voru í janúar.
Guðbergur Reynisson bæjarfulltrúi og fulltrúi minnihluta gerði engar athugasemdir við tillöguna í janúar en mætti ekki á fund starfshópsins 25. febrúar. Formaður bæjarráðs hringdi í fulltrúa minnihluta á fundinum og var hann þá farinn út úr bænum og afsakaði að fundarboðið hafi farið framhjá honum en samþykkti að fá senda fundapunkta og ræddi við formann bæjarráðs í síma seinna þann dag til að fá nánari upplýsingar um það sem fram fór. Á fundinum var meðal annars aftur rætt um að afmarka þyrfti svæðið sem heildarverkefnið nær utan um og að breyta lóðamörkum eins og áður hafði verið samþykkt svo þau samræmist verkefninu. Gerði fulltrúi minnihluta ekki athugasemdir við það. Það skýtur því skökku við að fulltrúi minnihluta í starfshópnum greiðir atkvæði gegn óbreyttri tillögu sem viðkomandi hafði samþykkt og rýrir það í okkar huga einungis traust til ákvarðanatöku fulltrúans þar sem vinnsla máls er samþykkt á lokuðum vinnufundum en síðar greiðir fulltrúinn atkvæði gegn eigin tillögu á nefndarfundi og bókar gegn henni á bæjarstjórnarfundi þegar ekkert í málinu hefur breyst.
Starfshópurinn var sammála um svæðið og lóðirnar en vegna fyrri umræðu um umferð í kringum svæðið sameinaðist hópurinn um að leggja áherslu á að framhald verkefnisins yrði unnið með tilliti til umferðaröryggis og út frá umferðargreiningum.“
Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Sigurrós Antonsdóttir Samfylkingu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Helga María Finnbjörnsdóttir Beinni leið.
Til máls tóku Guðbergur Reynisson, Margrét Þórarinsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Guðný Birna Guðmundsdóttir og Margrét A. Sanders.
Til máls tók Margrét Þórarinsdóttir (D) og lagði fram eftirfarandi bókun vegna fjórða máls:
„Sjálfstæðisflokkur telur að markmiðið sé að tryggja faglegan undirbúning, gagnsæi og að verðmæti í eigu íbúa Reykjanesbæjar séu meðhöndluð af ábyrgð áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar.
Það liggja ekki fyrir skýr samningsmarkmið sveitarfélagsins gagnvart fjárfestum, skilgreint lágmarksverðmæti við sölu fasteigna og byggingarréttar og fullnægjandi samráð við helstu hagaðila á svæðinu.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur þegar óskað eftir eftirfarandi svörum .
Um leið er mikilvægt að áður en tekin verða frekari skref varðandi útboð, sölu eða samningsgerð liggi fyrir:
1. Heildstæð kostnaðargreining verkefnisins, þar með talið kostnaður við ráðgjöf, skipulagsvinnu, útboðsferli og annan undirbúning.
2. Skýr markmið sveitarfélagsins gagnvart fjárfestum og viðmiðanir um verðmæti við sölu byggingarréttar og fasteigna.
3. Forgangsröðun verkefna og skýrt umboð starfshópa, þannig að pólitísk ábyrgð og verkaskipting séu ljós.
4. Regluleg upplýsingagjöf til bæjarráðs og bæjarstjórnar á meðan undirbúningur stendur yfir.
5. Að tryggt verði virkt samráð við helstu hagaðila á svæðinu, þar á meðal íþróttafélög sem nýta Reykjaneshöllina og eigendur fasteigna á svæðinu, áður en tekin verða endanleg skref varðandi útboð og uppbyggingu.
Við óskum því enn og aftur eftir að fá svör við þeim á næsta bæjarstjórnarfundi.“
Margrét Þórarinsdóttir, Margrét Sanders, Guðbergur Reynisson og Alexander Ragnarsson Sjálfstæðisflokki.
Til máls tóku Róbert Jóhann Guðmundsson, Margrét Þórarinsdóttir, Guðbergur Reynisson, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Margrét Þórarinsdóttir og Helga María Finnbjörnsdóttir.
Fjórða mál fundargerðarinnar Akademíureitur - framtíðarsýn (2025010481) samþykkt 7-0. Guðbergur Reynisson, Alexander Ragnarsson, Margrét A. Sanders og Margrét Þórarinsdóttir Sjálfstæðisflokki greiða atkvæði á móti.
Sjötta mál fundargerðarinnar Stapabraut 21 - auglýsingaskilti (2026010463) samþykkt 11-0 án umræðu.
Sjöunda mál fundargerðarinnar Stakksbraut 9 - uppskipting á lóð (2026030062) samþykkt 11-0 án umræðu.
Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Guðný Birna Guðmundsdóttir, Guðbergur Reynisson, Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Alexander Ragnarsson og Róbert Jóhann Guðmundsson.
Mál fjögur Akademíureitur – framtíðarsýn (2025010481) samþykkt 7-0 með atkvæðum meirihlutans, bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks greiddu atkvæði á móti. Fundargerðin samþykkt að öðru leyti 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 384. fundar umhverfis- og skipulagsráðs 6. mars 2026
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 203. fundar íþrótta- og tómstundaráðs 11. mars 2026
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tók Sigurrós Antonsdóttir.
Til máls tók Margrét Þórarinsdóttir (D) og lagði fram eftirfarandi bókun:
Mál 4 frá fundargerð velferðarráðs 12. mars 2026 - Þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd – uppgjör vegna uppsagnar samnings (2024100122)
„Ég tek undir þær staðreyndir sem fram koma í minnisblaði frá 10. mars 2026 um uppgjör samnings við Vinnumálastofnun, en tel niðurstöðuna sýna alvarlega annmarka í ákvörðunartöku meirihlutans, Samfylkingar, Framsóknarflokksins og Beinnar leiðar.
Staðreyndir eru skýrar: Reykjanesbær gerði kröfu um 22,9 m.kr., en fékk aðeins 8,5 m.kr. greiddar. Sveitarfélagið situr því uppi með um 14,4 m.kr. kostnað sem ríkið hafnar að greiða.
Þessi kostnaður var fyrirsjáanlegur og hefði átt að vera tryggður við gerð samningsins. Það var ekki gert.
Ég hef áður varað við þessu. Í bókun minni frá 13. janúar 2023 kom skýrt fram: „Að fenginni reynslu treysti ég einfaldlega ekki ríkisvaldinu í þessum málaflokki.“ Sú afstaða hefur reynst rétt.
Þetta er hvorki fyrsta né eina bókun mín um þessi mál. Þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir var haldið áfram án fullnægjandi trygginga.
Niðurstaðan er óásættanleg, íbúar Reykjanesbæjar sitja uppi með kostnað sem á með réttu að falla á ríkisvaldið.
Sjálfstæðisflokkurinn krefst þess að framvegis, ef gengið verði til samninga við ríkið, að fyrir liggi skýrar og bindandi tryggingar um fulla fjármögnun ríkisins.“
Margrét Þórarinsdóttir, Margrét Sanders, Guðbergur Reynisson og Alexander Ragnarsson Sjálfstæðisflokki.
Forseti gerði fundarhlé kl. 19:12.
Fundur aftur settur kl. 19:18.
Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókanir:
Mál 4 frá fundargerð velferðarráðs 12. mars 2026 - Þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd – uppgjör vegna uppsagnar samnings (2024100122)
„Bæjarfulltrúar meirihluta bæjarstjórnar vilja taka það skýrt fram að enginn kostnaður við verkefnið fellur á íbúa Reykjanesbæjar, heldur er niðurstaða verkefnisins samkvæmt minnisblaði sviðsstjóra réttu megin við núllið eftir uppgjör þess.“
Mál 2 frá fundargerð velferðarráðs 12. mars 2026 -Sértæk búsetuúrræði fyrir fólk með fötlun (2026020053)
„Á fundi velferðarráðs komu fram málefni sem þarfnast frekari stefnumótunar bæjarstjórnar vegna aukinna verkefna og fjölgunar starfsfólks.
Má þar nefna aukningu á skammtímavistunarúrræðum fyrir fötluð börn og ungmenni, sameining dagdvala á einn stað til Nesvalla og uppbygging á sértæku búsetuúrræði fyrir fólk með fötlun.
Reykjanesbær er með þessi úrræði í vinnslu þar sem verið er að kanna með húsnæði hjá sveitarfélaginu sem hentar til skammtímavistunar. Einnig er verið að skoða úrræði sem hægt er að nýta fljótlega meðan verið er að vinna að framtíðarlausnum. Verkefnið um sameiningu dagdvala er þegar komið í rýningu og verður fjallað um nánar í bæjarráði. Umhverfis- og skipulagsráð er að leggja lokahönd á úthlutun lóðar í sveitarfélaginu í samvinnu við Brynju hússjóð sem fer af stað í uppbyggingu nú í vor.
Það er einlægur vilji meirihluta bæjarstjórnar að áfram verði unnið að úrlausn umræddra mála þar sem við viljum draga úr biðlistum og efla velferðarþjónustuna okkar í Reykjanesbæ.“
Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Sigurrós Antonsdóttir Samfylkingu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Helga María Finnbjörnsdóttir Beinni leið.
Forseti gerði fundarhlé kl. 19:21.
Fundur aftur settur kl. 19:24.
Til máls tóku Margrét Þórarinsdóttir, Sigurrós Antonsdóttir og Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 452. fundar velferðarráðs 12. mars 2026
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.
Til máls tók Margrét Þórarinsdóttir (D) og lagði fram eftirfarandi bókun:
5. mál frá fundargerð menntaráðs 13. mars 2026 - Ársskýrsla skrifstofu menntasviðs 2025 – (2025060044)
„Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins gera alvarlegar athugasemdir við að rekstur menntasviðs sé 825,3 m.kr. umfram fjárhagsáætlun, þar sem stærsti hluti fráviksins liggur í launakostnaði.
Fyrir lá að launakostnaður myndi hækka verulega, m.a. vegna kjarasamninga við Kennarasamband Íslands sem námu um 606 m.kr., auk 45 m.kr. vegna sjálfstætt rekinna leikskóla. Þessi þróun var að verulegu leyti fyrirsjáanleg.
Þegar uppreikningur lá fyrir var ljóst að kostnaður myndi fara verulega fram úr áætlun. Þrátt fyrir það var ekki gerður viðauki.
Samkvæmt sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011, 63. gr., er fjárhagsáætlun bindandi fyrir allar fjárhagslegar ráðstafanir sveitarfélagsins og óheimilt að víkja frá henni nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka.
Sjálfstæðisflokkurinn spyr því:
1. Af hverju var ekki gert ráð fyrir þeim fyrirsjáanlega launakostnaði sem lá fyrir, utan áhrifa nýrra kjarasamninga?
2. Hvernig samræmist það ábyrgri fjármálastjórn að láta slíkan kostnað safnast upp án formlegrar afgreiðslu?
Slík vinnubrögð grafa undan trúverðugleika fjárhagsáætlunar.
Hvernig getur meirihlutinn réttlætt að hundruð milljóna fyrirsjáanlegur kostnaður sé hvorki settur í áætlun né færður inn með viðauka þegar forsendur lágu fyrir?“
Margrét Þórarinsdóttir, Margrét Sanders, Guðbergur Reynisson og Alexander Ragnarsson Sjálfstæðisflokki.
Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Forseti gerði fundarhlé kl. 19:38.
Fundur aftur settur kl. 20:03.
Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókun:
5. mál frá fundargerð menntaráðs 13. mars 2026 - Ársskýrsla skrifstofu menntasviðs 2025 – (2025060044)
„Ástæðan fyrir því að viðauki var ekki gerður var vegna þess að ekki fundust tækifæri til hagræðingar á móti launahækkunum þar sem við höfum nú þegar skorið stöðugildi niður innan skólanna. Samkvæmt 18. gr. reglugerðar um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga nr. 1212/2015 er eftirfarandi tekið skýrt fram; „Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.“
Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Sigurrós Antonsdóttir Samfylkingu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsókn og Helga María Finnbjörnsdóttir Beinni leið.
Forseti gerði fundarhlé kl. 20:05.
Fundur aftur settur kl. 20:23.
Til máls tóku Margrét A. Sanders og Sigurrós Antonsdóttir.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
Fylgigögn:
Fundargerð 394. fundar menntaráðs 13. mars 2026
Forseti fylgdi Brunavarnaáætlun Brunavarna Suðurnesja 2026-2030 úr hlaði.
Brunavarnaáætlun Brunavarna Suðurnesja 2026-2030 samþykkt 11-0.
Lýðheilsuráð:
Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir (S) fer út sem aðalmaður í lýðheilsuráði, Hildur Björnsdóttir (S) kemur inn sem aðalmaður.
Menningar- og þjónusturáð:
Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir (S) fer út sem varamaður í menningar- og þjónusturáði, Hámundur Örn Helgason (S) kemur inn sem varamaður.
Sjálfbærniráð:
Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir (S) fer út sem varamaður í sjálfbærniráði, Bjarni Halldór Heiðuson (S) kemur inn sem varamaður.
Menntaráð:
Margrét Þórarinsdóttir (D) fer út sem varamaður í menntaráði, Hermann Borgar Jakobsson (D) kemur inn sem varamaður.
Velferðarráð:
Ásta Kristín Guðmundsdóttir fer út sem aðalmaður í velferðarráði. Unnar Stefán Sigurðsson (D) kemur inn sem aðalmaður, fer út sem varamaður í velferðarráði. Margrét Þórarinsdóttir (D) kemur inn sem varamaður.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 20:32.