720. fundur

02.06.2026 17:00

720. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 þann 2. júní 2026 kl. 17:00

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson, Díana Hilmarsdóttir, Guðbergur Reynisson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Gunnlaugur Kárason, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Kristján Pétur Kristjánsson, Margrét Þórarinsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Vilhjálmur Árnason. Í forsæti var Margrét Þórarinsdóttir.

Að auki sat fundinn Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

1. Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 (2026010121)

Guðný Birna Guðmundsdóttir fór yfir úrslit kosninganna sem fram fóru 16. maí 2026.

Á kjörskrá voru 17.087. Á kjörstað kusu 7.316 og utan kjörfundar kusu 1.504. Greidd atkvæði voru alls 8.820 eða 51,6%. Auðir seðlar voru 149 og ógildir seðlar 42.

Atkvæðin féllu þannig:

B-listi Framsóknarflokkur: 2.254 atkvæði og 3 bæjarfulltrúar
C-listi Viðreisn: 453 atkvæði
D-listi Sjálfstæðisflokkur: 3.380 atkvæði og 5 bæjarfulltrúar
M-listi Miðflokkur: 965 atkvæði og 1 bæjarfulltrúi
S-listi Samfylking: 1.577 atkvæði og 2 bæjarfulltrúar

Réttkjörnir bæjarfulltrúar Reykjanesbæjar eru:

1. Vilhjálmur Árnason D
2. Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir B
3. Margrét Þórarinsdóttir D
4. Guðný Birna Guðmundsdóttir S
5. Róbert Jóhann Guðmundsson B
6. Kristján Pétur Kristjánsson D
7. Gunnlaugur Kárason M
8. Alexander Ragnarsson D
9. Hjörtur Magnús Guðbjartsson S
10. Díana Hilmarsdóttir B
11. Guðbergur Reynisson D

Réttkjörnir varabæjarfulltrúar Reykjanesbæjar eru :

1. Guðlaug Sunna Gunnarsdóttir D
2. Birgir Már Bragason B
3. Ásdís Ólafsdóttir D
4. Aðalheiður Hilmarsdóttir S
5. Halla Karen Guðjónsdóttir B
6. Logi Þór Ágústsson D
7. Rúnar Fossádal Árnason M
8. Ólöf Steinunn Lárusdóttir D
9. Bjarni Halldór Heiðuson Janusson S
10. Sighvatur Jónsson B
11. Gunnar Felix Rúnarsson D

Fylgigögn:

Greinargerð yfirkjörstjórnar um úrslit sveitarstjórnarkosninga í Reykjanesbæ 16. maí 2026

2. Kosningar til eins árs samkvæmt samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1150/2024 (2026050305)

2.1. Forseti bæjarstjórnar sbr. 15. gr.

Guðný Birna Guðmundsdóttir óskaði eftir tilnefningu um forseta bæjarstjórnar. Tillaga kom um Margréti Þórarinsdóttur sem forseta bæjarstjórnar og var hún sjálfkjörin.

Margrét Þórarinsdóttir, nýkjörinn forseti, þakkaði bæjarfulltrúum traustið og tók við fundarstjórn.

2.2. Fyrsti varaforseti. Uppástunga kom um Guðberg Reynisson (D) og var hann sjálfkjörin.

2.3. Annar varaforseti. Uppástunga kom um Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur (B) og var hún sjálfkjörin.

2.4. Tveir skrifarar og tveir til vara sbr. 16. gr.

Aðalskrifarar. Uppástunga kom um Alexander Ragnarsson (D) og Hjört Magnús Guðbjartsson (S) og voru þeir sjálfkjörnir.

Varaskrifarar. Uppástunga kom um Gunnlaug Kárason (M) og Róbert Jóhann Guðmundsson (B) og voru þeir sjálfkjörnir.

2.5. Bæjarráð - 5 aðalmenn og 5 til vara sbr. 44. gr.

Uppástunga kom um aðalmenn: Gunnlaug Kárason (M), Margréti Þórarinsdóttur (D), Kristján Pétur Kristjánsson (D), Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur (S) og Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur (B). Samþykkt 11-0.

Varamenn þeirra, skv. 2. mgr. 44. gr. samþykkta um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, eru kjörnir bæjarfulltrúar og varabæjarfulltrúar af sama framboðslista og hinir kjörnu bæjarráðsmenn í þeirri röð sem þeir skipuðu listann þegar kosið var til bæjarstjórnar.

Tilnefning kom um Gunnlaug Kárason sem formann bæjarráðs. Var hann réttkjörinn. Stungið var upp á Kristjáni Pétri Kristjánssyni sem varaformanni bæjarráðs og var hann réttkjörinn.

3. Ráðning bæjarstjóra (2026050339)

Forseti bar upp tillögu um að ráða Vilhjálm Árnason sem bæjarstjóra kjörtímabilið 2026-2030.

Forseti gaf orðið laust.

Til máls tóku Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Vilhjálmur Árnason.

Til máls tók Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B) og lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Framsóknarflokks og Samfylkingar:

„Undirrituð gera alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð meirihluta vegna ráðningar bæjarstjóra Reykjanesbæjar.

Fyrir liggur að bæjarstjórn er nú ætlað að staðfesta ráðningu nýs bæjarstjóra án þess að ráðningarsamningur hafi verið lagður fram eða kynntur bæjarfulltrúum. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum stendur til að ræða efni samningsins á fundi bæjarráðs þann 4. júní, og verður fundargerð þess fundar síðan staðfest í bæjarstjórn 16. júní nk.

Að okkar mati felur þessi málsmeðferð í sér óeðlilega flýtimeðferð á einni mikilvægustu ákvörðun bæjarstjórnar. Bæjarfulltrúum er hér ætlað að staðfesta ráðningu á nýjum bæjarstjóra og skuldbinda sveitarfélagið án þess að fyrir liggi upplýsingar um starfskjör, réttindi, starfslokaákvæði eða aðrar meginforsendur ráðningarsamningsins. Slík vinnubrögð samræmast hvorki kröfum um gagnsæi né vönduðum stjórnsýsluháttum við ráðningu æðsta stjórnanda sveitarfélagsins.

Undirrituð telja að eðlileg og ábyrg málsmeðferð sé að fullunninn ráðningarsamningur fari fyrst til formlegrar umfjöllunar í bæjarráði áður en ráðning kemur til staðfestingar í bæjarstjórn. Með þeirri leið er tryggt að bæjarfulltrúar geti tekið upplýsta og málefnalega afstöðu til ráðningarinnar í heild sinni. Það er sérstakt að taka fyrir ráðningarsamning bæjarstjóra tvisvar til samþykktar í bæjarstjórn.

Við teljum mikilvægt að stjórnsýsla Reykjanesbæjar einkennist af fagmennsku, gagnsæi og vönduðum undirbúningi. Því leggjum við til að afgreiðslu málsins verði frestað þar til fyrir liggur fullunninn ráðningarsamningur og bæjarráð hefur lokið formlegri umfjöllun um ráðningarkjör og samningsforsendur.

Íbúar Reykjanesbæjar eiga að geta treyst því að ráðning æðsta stjórnanda sveitarfélagsins fari fram með faglegum, gagnsæjum og vönduðum hætti.

Samþykki nýi meirihluti bæjarstjórnar ekki frestun málsins er fátt annað að gera en að neita ráðningunni enda vita fulltrúar bæjarstjórnar ekkert um fyrirliggjandi samning. Slík afgreiðsla væri fjárhagslega óábyrg og við tökum ekki þátt í slíkum vinnubrögðum.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Samfylkingu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir, Framsóknarflokki.

Forseti bar tillögu um að fresta ráðningu bæjarstjóra upp til atkvæða og var hún felld með 6 atkvæðum meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks gegn 5 atkvæðum minnihluta Framsóknarflokks og Samfylkingar.

Forseti bar tillögu um að ráða Vilhjálm Árnason sem bæjarstjóra Reykjanesbæjar kjörtímabilið 2026-2030 upp til atkvæða og var hún samþykkt með 6 atkvæðum meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks gegn 5 atkvæðum Framsóknarflokks og Samfylkingar.

Bæjarstjórn felur bæjarráði að ganga frá ráðningarsamningi.

4. Breyting á samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar – fyrri umræða (2026050381)

Forseti fór yfir tillögur að breytingum á samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

Forseti gaf orðið laust.

Til máls tók Vilhjálmur Árnason (D) og lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Miðflokks:

„Á meðan unnið er að breytingum á bæjarmálasamþykkt Reykjanesbæjar og þar til þær hafa tekið gildi samþykkir bæjarstjórn eftirfarandi tímabundið fyrirkomulag:

Bæjarstjórn frestar kjöri í þær fastanefndir sem gert er ráð fyrir að verði lagðar niður samkvæmt fyrirliggjandi tillögum að breytingum á bæjarmálasamþykkt.

Málefni menningar flytjast frá menningar- og þjónusturáði til íþrótta- og tómstundaráðs, sem mun við gildistöku breyttrar bæjarmálasamþykktar bera heitið íþrótta-, tómstunda- og menningarráð. Önnur verkefni menningar- og þjónusturáðs flytjast til atvinnu- og hafnaráðs.

Málefni stjórnar eignasjóðs Reykjanesbæjar flytjast til umhverfis- og framkvæmdaráðs við gildistöku breyttrar bæjarmálasamþykktar.

Umhverfis- og skipulagsráð starfar óbreytt þar til breytingar á bæjarmálasamþykkt hafa tekið gildi. Við gildistöku þeirra breytinga tekur skipulagsráð við verkefnum ráðsins samkvæmt hinni nýju samþykkt.“

Vilhjálmur Árnason, Margrét Þórarinsdóttir, Kristján Pétur Kristjánsson, Alexander Ragnarsson og Guðbergur Reynisson, Sjálfstæðisflokki og Gunnlaugur Kárason, Miðflokki.

Til máls tók Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og lagði fram tillögu um að fresta fyrri umræðu um breytingar á samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

Til máls tók Vilhjálmur Árnason.

Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Samfylkingar og Framsóknarflokks:

„Undirrituð mótmæla harðlega vinnubrögðum hjá nýjum bæjarstjóra Reykjanesbæjar. Á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar er strax brotið gegn eðlilegri stjórnsýslu sveitarfélagsins og að því virðist eingöngu til að breyta því hver það er sem leysir bæjarstjóra af í fjarveru sinni og til að innleiða nýjar nefndir sem taka ekki til starfa fyrr en síðar í sumar.

Samkvæmt 4. og 5. gr. erindisbréfs forsetanefndar er hlutverk nefndarinnar meðal annars að fjalla um og gera tillögur að breytingum á samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar. Nú hefur verið ákveðið af nýjum bæjarstjóra að eðlilegt sé að hann geri sjálfur breytingar á bæjarmálasamþykkt og fari algjörlega fram hjá þverfaglegri forsetanefnd Reykjanesbæjar.

Einnig er hér verið að leggja fram tillögur um breytingar á stjórnskipan og nefndakerfi sveitarfélagsins áður en forsetanefnd hefur fengið tækifæri til að fjalla um málið með formlegum hætti. Þá liggja ekki heldur fyrir drög að erindisbréfum þeirra nefnda sem lagt er til að verði skipaðar, þrátt fyrir að kveðið sé á um það í 57. gr. C í bæjarmálasamþykkt að bæjarstjórn gefi út erindisbréf að tillögu forsetanefndar þar sem skilgreind séu hlutverk, valdsvið og starfshættir nefnda.

Nýju nefndir Reykjanesbæjar hafa því ekkert formlegt hlutverk og engin afmörkuð verkefni og nýr bæjarstjóri hefur ekki verið skýr með svör um hvað nefndirnar eigi að gera, þegar leitast var eftir upplýsingum.

Bæjarfulltrúar Framsóknar og Samfylkingar vilja árétta mikilvægi þess að breytingar á samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar fari í þann stjórnsýslulega farveg sem kveðið er á um í gildandi bæjarmálasamþykkt og erindisbréfi forsetanefndar.

Ekki hefur verið sýnt fram á að svo brýnir hagsmunir séu fyrir hendi sem réttlæta að vikið sé frá þessu verklagi á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar. Réttast er að málið fari fyrst til umfjöllunar í forsetanefnd og síðan í hefðbundið ferli bæjarstjórnar með tveimur umræðum áður en endanleg ákvörðun verður tekin.

Með því að vanda til verka og fylgja samþykktum stjórnsýsluferlum má jafnframt draga úr hættu á ágreiningi eða kærum til ráðuneytis sveitarstjórnarmála vegna kosninga eða skipunar nefnda. Fljótfærni er orð sem kemur í hugann við þessa sérkennilegu málsmeðferð hér í dag hjá Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum. Eflaust er þetta bara brot af því sem koma skal.

Virðing fyrir samþykktum verkferlum og vönduðum stjórnsýsluháttum er mikilvæg forsenda trausts á störfum bæjarstjórnar, ekki síst í upphafi nýs kjörtímabils.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Samfylkingu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir, Framsóknarflokki.

Til máls tók Vilhjálmur Árnason (D) og lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Miðflokks:

„Meirihluti bæjarstjórnar telur rétt að taka fyrir tillögur að breytingum á bæjarmálasamþykkt á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar.

Að undangenginni yfirferð á sveitarstjórnarlögum, núgildandi bæjarmálasamþykkt og fordæmum úr öðrum sveitarfélögum er það mat meirihlutans að þessi málsmeðferð sé í samræmi við lög og stuðli að því að stjórnsýsla sveitarfélagsins taki sem fyrst mið af þeirri stjórnskipan sem ný bæjarstjórn hyggst starfa eftir.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal kjósa í fastanefndir sveitarfélagsins á fyrsta eða öðrum fundi nýrrar bæjarstjórnar. Með því að hefja breytingar á bæjarmálasamþykkt strax skapast betri forsendur til að ljúka þeirri vinnu í samræmi við markmið nýrrar bæjarstjórnar.

Meirihlutinn bendir jafnframt á að fordæmi eru fyrir sambærilegu verklagi í öðrum sveitarfélögum og telur því að sú málsmeðferð sem hér er viðhöfð sé bæði málefnaleg og í samræmi við góða stjórnsýsluhætti.“

Vilhjálmur Árnason, Margrét Þórarinsdóttir, Kristján Pétur Kristjánsson, Alexander Ragnarsson og Guðbergur Reynisson, Sjálfstæðisflokki og Gunnlaugur Kárason, Miðflokki.

Til máls tók Guðbergur Reynisson og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.

Forseti bar tillögu meirihluta um að fresta kjöri í þær fastanefndir sem gert er ráð fyrir að verði lagðar niður samkvæmt fyrirliggjandi tillögum að breytingum á bæjarmálasamþykkt upp til atkvæða og var hún samþykkt með 6 atkvæðum meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks gegn 5 atkvæðum minnihluta Framsóknarflokks og Samfylkingar.

Forseti bar tillögu Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur um að fresta fyrri umræðu um breytingar á samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar upp til atkvæða og var hún felld með 6 atkvæðum meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks gegn 5 atkvæðum minnihluta Framsóknarflokks og Samfylkingar.

Forseti lagði fram tillögu um að breytingum á samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar verði vísað til skoðunar hjá forsetanefnd og til síðari umræðu í bæjarstjórn 16. júní 2026. Tillagan var samþykkt með 6 atkvæðum meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks gegn 5 atkvæðum minnihluta Framsóknarflokks og Samfylkingar.

5. Kosningar í nefndir, ráð og stjórnir til fjögurra ára sbr. 57. gr. samþykktar um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1150/2024 (2026050306)

5.1. Forsetanefnd. Nefndin er skipuð forsetum bæjarstjórnar.

Margrét Þórarinsdóttir forseti bæjarstjórnar, Guðbergur Reynisson 1. varaforseti og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir 2. varaforseti.

5.2. Almannavarnanefnd Suðurnesja utan Grindavíkur. Einn aðalmaður og einn til vara, skv. 9. gr. laga nr. 82/2008 um almannavarnir og skv. samkomulagi um almannavarnanefnd Suðurnesja.

Tilnefndur var sem aðalmaður Vilhjálmur Árnason (D) bæjarstjóri og var hann sjálfkjörinn.

Tilnefndur var sem varamaður Gunnlaugur Kárason (M) og var hann sjálfkjörinn.

5.3. Velferðarráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.

Tilnefnd voru sem aðalmenn, Ólöf Steinunn Lárusdóttir (D), Alma Guðnadóttir (D), Hermann Borgar Jakobsson (D), Halla Karen Guðjónsdóttir (B) og Aðalheiður Hilmarsdóttir (S) og voru þau sjálfkjörin.

Tilnefndar voru sem varamenn Sigrún Þorsteinsdóttir (M), Anna Lydía Helgadóttir (D), Margrét Þórarinsdóttir (D), Hekla Sif Ingvadóttir (B) og Erna María Jensdóttir (S) og voru þær sjálfkjörnar.

Tilnefning kom um Ólöfu Steinunni Lárusdóttur sem formann velferðarráðs og var hún réttkjörin.

5.4. Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands. Einn aðalmaður og annar til vara, skv. 9. gr. laga nr. 68/1994 um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands.

Tilnefndur var sem aðalmaður Unnar Steinn Bjarndal bæjarlögmaður og var hann sjálfkjörinn.

Tilnefndur var sem varamaður Alexander Ragnarsson (D) og var hann sjálfkjörinn.

5.5. Yfirkjörstjórn. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og 15. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000. Undirkjörstjórn: Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara. Undirkjörstjórnir skulu vera jafnmargar og kjördeildir í bæjarfélaginu og heimilt er að kjósa þær síðar.

Tilnefnd voru sem aðalmenn í yfirkjörstjórn Brynjólfur Sveinn Ívarsson (M), Jóna Hrefna Bergsteinsdóttir (D) og Bjarney Rut Jensdóttir (B) og voru þau sjálfkjörin.

Tilnefnd voru sem varamenn í yfirkjörstjórn Davíð Brár Unnarsson (M), Hanna Björg Konráðsdóttir (D) og Hallur Geir Heiðarsson (B) og voru þau sjálfkjörin.

5.6. Landsfundur Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fulltrúafjöldi skv. lögum og samþykktum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fulltrúar sitja landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga með umboð Reykjanesbæjar.

Tilnefnd voru sem aðalmenn: Vilhjálmur Árnason (D), Gunnlaugur Kárason (M), Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B), Guðný Birna Guðmundsdóttir (S), Margrét Þórarinsdóttir (D) og Kristján Pétur Kristjánsson (D) og voru þau sjálfkjörin.

Tilnefnd voru sem varamenn: Rúnar Fossádal Árnason (M), Alexander Ragnarsson (D), Guðbergur Reynisson (D), Róbert Jóhann Guðmundsson (B), Hjörtur Magnús Guðbjartsson (S) og Díana Hilmarsdóttir (B) og voru þau sjálfkjörin.

5.7. Atvinnu- og hafnarráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.

Tilnefndir voru sem aðalmenn: Alexander Ragnarsson (D), Tryggvi Þór Bragason (D), Rúnar Fossádal Árnason (M), Sigurður Guðjónsson (B) og Magnús Einþór Áskelsson (S) og voru þeir sjálfkjörnir.

Tilnefnd voru sem varamenn: Jón Ragnar Reynisson (M), Hjörleifur Stefánsson (D), Jón Már Sverrisson (D), Ásta María Guðmundsdóttir (B) og Friðþjófur Helgi Karlsson (B) og voru þau sjálfkjörin.

Tilnefning kom um Alexander Ragnarsson sem formann atvinnu- og hafnarráðs og var hann réttkjörinn.

5.8 Umhverfis- og skipulagsráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.

Tilnefndir voru sem aðalmenn: Gunnar Felix Rúnarsson (D), Aðalgeir Jónsson (M), Jón Már Sverrisson (D), Róbert Jóhann Guðmundsson (B) og Hjörtur Magnús Guðbjartsson (S) og voru þeir sjálfkjörnir.

Tilnefndir voru sem varamenn: Sigurður Jón Sigmundsson (M), Hermann Borgar Jakobsson (D), Guðmundur Þórir Ingólfsson (D), Birgir Már Bragason (B) og Halldór Rósmundur Guðjónsson (S) og voru þeir sjálfkjörnir.

Tilnefning kom um Gunnar Felix Rúnarsson sem formann umhverfis- og skipulagsráðs og var hann réttkjörinn.

5.9. Menntaráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara, skv. 6. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla.

Tilnefnd voru sem aðalmenn: Berglind Ragnarsdóttir (D), Sigrún Þorsteinsdóttir (M), Ragnar Már Ragnarsson (D), Díana Hilmarsdóttir (B) og Bjarni Halldór Heiðuson Janusson (S) og voru þau sjálfkjörin.

Tilnefnd voru sem varamenn: Þorsteinn Ingi Hjálmarsson (M), Hjörleifur Stefánsson (D), Hermann Borgar Jakobsson (D), Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir (B) og Vala Ósk Ólafsdóttir (S) og voru þau sjálfkjörin.

Tilnefning kom um Berglindi Ragnarsdóttur sem formann menntaráðs og var hún réttkjörin.

5.10. Íþrótta- og tómstundaráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.

Tilnefnd voru sem aðalmenn: Guðlaug Sunna Gunnarsdóttir (D), Bjarni Gunnólfsson (M), Guðmundur Steinarsson (D), Birgir Már Bragason (B) og Hámundur Helgason (S) og voru þau sjálfkjörin.

Tilnefnd voru sem varamenn: Rúnar Fossádal Árnason (M), Logi Þór Ágústsson (D), Ragnar Már Ragnarsson (D), Yasmin Petra Younesdóttir (B) og Magnús Einþór Áskelsson (S) og voru þau sjálfkjörin.

Tilnefning kom um Guðlaugu Sunnu Gunnarsdóttur sem formann íþrótta- og tómstundaráðs og var hún réttkjörin.

5.11. Öldungaráð Reykjanesbæjar. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara.

Tilnefnd voru sem aðalmenn: Rúnar Vífill Arnarson (D), Sigrún Þorsteinsdóttir (M) og Gunnar Jón Ólafsson (B) og voru þau sjálfkjörin.

Tilnefnd voru sem varamenn: Karvel Granz (M), Ólafur Bjarnason (D) og Birna Ósk Óskarsdóttir (B) og voru þau sjálfkjörin.

Tilnefning kom um Rúnar Vífil Arnarson sem formann öldungaráðs og var hann réttkjörinn.

6. Siðareglur kjörinna fulltrúa (2026050308)

Siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Reykjanesbæ lagðar fram til kynningar. Kjörnum fulltrúum ber að tileinka sér þessar siðareglur og lýsa því yfir að þeir séu reiðubúnir til að hafa þessar siðareglur að leiðarljósi. Kjörnir fulltrúar munu undirrita siðareglurnar því til staðfestingar.

Bæjarstjórn vísar siðareglum kjörinna fulltrúa hjá Reykjanesbæ til umfjöllunar í forsetanefnd og bæjarráði.

7. Fundargerð bæjarráðs 28. maí 2026 (2026010008)

Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Vilhjálmur Árnason.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 1565. fundar bæjarráðs 28. maí 2026

8. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 22. maí 2026 (2026010016)

Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi mál fundargerðarinnar til sérstakrar samþykktar:

Fjórða mál fundargerðarinnar, Suðurgata 1 – fyrirspurn (2026030484). Samþykkt 11-0 án umræðu.

Fimmta mál fundargerðarinnar, Iðavellir 10b - lóðarstækkun (2026050061), samþykkt 11-0 án umræðu.

Forseti gaf orðið laust.

Til máls tóku Róbert Jóhann Guðmundsson, Guðbergur Reynisson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Alexander Ragnarsson.

Fundargerðin samþykkt að öðru leyti 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 389. fundar umhverfis- og skipulagsráðs 22. maí 2026

9. Fundargerð sjálfbærniráðs 27. maí 2026 (2026010014)

Forseti gaf orðið laust. Enginn fundarmanna tók til máls.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 71. fundar sjálfbærniráðs 27. maí 2026


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:33.