721. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, haldinn að Grænásbraut 910, 16. júní 2026, kl. 17:00
Viðstaddir: Alexander Ragnarsson, Bjarni Halldór Heiðuson Janusson, Díana Hilmarsdóttir, Guðbergur Reynisson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Gunnlaugur Kárason, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Kristján Pétur Kristjánsson, Margrét Þórarinsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri. Í forsæti var Margrét Þórarinsdóttir.
Að auki sat fundinn Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
Hjörtur Magnús Guðbjartsson boðaði forföll, Bjarni Halldór Heiðuson Janusson sat fyrir hann.
1. Breyting á samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar – síðari umræða (2026050381)
Margrét Þórarinsdóttir for yfir helstu breytingar á samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Forseti gaf orðið laust.
Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókun:
Breyting á samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar – síðari umræða (2026050381)
„Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar leggja fram tillögu til hagræðingar á föst laun formanns bæjarráðs Reykjanesbæjar í ljósi þess að viðkomandi ber ekki þá ábyrgð lengur, samkvæmt bæjarmálasamþykkt, að þurfa að leysa af sem staðgengil bæjarstjóra í fjarveru hans heldur hefur sú ábyrgð verið færð til bæjarlögmanns.
Í ljósi þess að föst laun formanns bæjarráðs voru sérstaklega hækkuð á síðasta kjörtímabili þegar honum var falin þessi ábyrgð er að okkar mati ekki óeðlilegt að lækka laun formanns bæjarráðs aftur, enda er sú ábyrgð sem honum var falin skv. bæjarmálasamþykkt ekki lengur til staðar. Hækkunin var samþykkt af öllum fulltrúum í bæjarráði og talin eðlileg á þeim tíma þar sem formaður bæjarráðs varð að vera tilbúinn að leysa bæjarstjóra af þegar þörf var á og ákveðið var að greiða ekki fyrir það sérstaklega heldur mæta þeirri ábyrgð með sanngjarnri hækkun fastra launa.
Leggjum við því fram tillöguna, til hagræðingar í rekstri sveitarfélagsins, að laun formanns bæjarráðs Reykjanesbæjar verði lækkuð úr 32% af þingfararkaupi í 25% eins og áður var.“
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsóknarflokki og Guðný Birna Guðmundsdóttir og Bjarni Halldór Heiðuson Janusson Samfylkingu.
Forseti gaf orðið laust. Til máls tók Vilhjálmur Árnason.
Forseti bar upp tillögu sem kom fram í bókun minnihluta. Tillagan var felld með 6 atkvæðum meirihluta bæjarstjórnar.
Til máls tók Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og bar upp tillögu um að vísa til bæjarráðs umræðu um laun formanns bæjarráðs.
Samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar samþykkt 11-0.
2. Kosningar í nefndir, ráð og stjórnir til fjögurra ára sbr. 57. gr. samþykktar um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar (2026050306)
2.1. Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.
Tilnefnd eru sem aðalmenn: Sunna Gunnarsdóttir (D), Guðmundur Steinarsson (D), Bjarni Gunnólfsson (M), Birgir Már Bragason (B) og Hámundur Örn Helgason (S). Voru þau sjálfkjörin.
Tilnefnd eru sem varamenn: Logi Þór Ágústsson (D), Ragnar Már Ragnarsson (D), Rúnar Fossádal Árnason (M), Yasmin Petra Younesdóttir (B) og Magnús Einþór Áskelsson (S). Voru þau sjálfkjörin.
Tilnefning kom um Sunnu Gunnarsdóttir sem formann íþrótta-, tómstunda- og menningarráðs og var hún réttkjörin.
2.2. Leikskólaráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.
Tilnefnd eru sem aðalmenn: Ásdís Ólafsdóttir (D), Harpa Sævarsdóttir (D), Logi Þór Ágústsson (D), Sighvatur Jónsson (B) og Hildur Björnsdóttir (S). Voru þau sjálfkjörin.
Tilnefnd eru sem varamenn: Elísa Johnsen (M), Helga Guðrún Sigurðardóttir (D), Sverrir Örn Leifsson (D), Þórarinn Darri Ólafsson (B) og Tinna Kristjánsdóttir (S). Voru þau sjálfkjörin.
Tilnefning kom um Ásdísi Ólafsdóttur sem formann leikskólaráðs og var hún réttkjörin.
2.3. Skipulagsráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.
Tilnefnd eru sem aðalmenn: Gunnar Felix Rúnarsson (D), Aðalgeir Jónsson (M), Jón Már Sverrisson (D), Róbert Jóhann Guðmundsson (B) og Hjörtur Magnús Guðbjartsson (S). Voru þeir sjálfkjörnir.
Tilnefndir voru sem varamenn: Sigurður Jón Sigmundsson (M), Hermann Borgar Jakobsson (D), Guðmundur Þórir Ingólfsson (D), Birgir Már Bragason (B) og Halldór Rósmundur Guðjónsson (S). Voru þeir sjálfkjörnir.
Tilnefning kom um Gunnar Felix Rúnarsson sem formann umhverfis- og skipulagsráðs og var hann réttkjörinn.
2.4. Umhverfis- og framkvæmdaráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara.
Tilnefnd eru sem aðalmenn: Guðbergur Reynisson (D), Brynjólfur Sveinn Ívarsson (M), Einar Þór Guðmundsson (D), Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B) og Eysteinn Eyjólfsson (S) og voru þeir sjálfkjörnir.
Tilnefnd eru sem varamenn: Karvel Granz (M), Helga Guðrún Sigurðardóttir (D), Harpa Sævarsdóttir (D) Eva Stefánsdóttir (B) og Elfa Hrund Guttormsdóttir (S). Voru þau sjálfkjörin.
Tilnefning kom um Guðbergur Reynisson sem formann umhverfis- og framkvæmdaráðs og var hann réttkjörinn.
3. Fundargerðir bæjarráðs 4. og 11. júní 2026 (2026010008)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar.
Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókun:
Mál 2 frá fundargerð bæjarráðs 4. júní 2026 - Ráðning bæjarstjóra (2026050339)
„Það vekur furðu hversu hratt sjónarmið geta breyst við það eitt að færast úr minnihluta í meirihluta. Þeir flokkar og bæjarfulltrúar sem gagnrýndu áður há laun og sérkjör bæjarstjóra, og töldu þau úr takti við kjör almenns starfsfólks, leggja nú sjálfir fram ráðningarsamning sem felur í sér sambærileg eða jafnvel betri kjör.
Aðeins ellefu mánuðum eftir að laun bæjarstjóra voru lækkuð um 10% með vísan til fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og samfélagslegrar ábyrgðar er nýr bæjarstjóri, án reynslu af sambærilegu starfi, ráðinn á sambærileg kjör og forveri hans auk greiðslna fyrir bæjarfulltrúastörf og setu í stjórnum sem hann er pólitískt skipaður í. Um er að ræða setu bæjarstjóra í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar, sem formanns í Almannavarnarnefnd Suðurnesja utan Grindavíkur og sem fulltrúi á landsfund Sambands íslenskra sveitarfélaga. Því má gera ráð fyrir að heildarlaun verði vel yfir þrjár milljónir króna á mánuði og þar með hærri en laun æðstu ráðherra, forsætisráðherra og borgarstjóra, fyrir nýjan bæjarstjóra án reynslu af sambærilegu starfi og án reynslu af rekstri á stórum 1.200 manna vinnustað.
Það er eðlilegt að bæjarfulltrúar endurmeti afstöðu sína eftir því hvar þeir lenda eftir kosningar, en slíkar stefnubreytingar verða að vera rökstuddar. Að gagnrýna harðlega launahækkanir og sérkjör í minnihluta en leggja þau sjálf fram í meirihluta innan nokkurra mánaða dregur úr trúverðugleika málflutningsins.
Við bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar teljum ekki ábyrgt að samþykkja samninginn. Á tímum þar sem tekjustaða sveitarfélagsins hefur ekki breyst og áfram er þörf á aðhaldi í rekstri teljum við mikilvægt að sýna ráðdeild og hefðum viljað sjá nýjan meirihluta standa strax við kosningaloforð þeirra um að hagræða í rekstri og auka gagnsæi í stjórnsýslu. Hér er það ekki gert og nýr bæjarstjóri endar tekjuhærri en fyrri bæjarstjóri vegna launa hans í bæjarstjórn og í stjórnum. Það er ekki nóg að sinna þessu umfangsmikla starfi, heldur þarf nýr bæjarstjóri einnig að sinna stjórnum samhliða starfi sínu.
Við getum því ómögulega samþykkt ofurlaunasamning nýs bæjarstjóra.“
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsóknarflokki og Guðný Birna Guðmundsdóttir og Bjarni Halldór Heiðuson Janusson Samfylkingu.
Til máls tóku Kristján Pétur Kristjánsson og Gunnlaugur Kárason.
Til máls tók Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B) og lagði fram eftirfarandi bókun:
„Bæjarfulltrúar Framsóknar og Samfylkingar furða sig á því að nýr bæjarstjóri virðist taka þá einhliða ákvörðun að ráða sér aðstoðarmann og með því brjóta sveitarstjórnarlög þrátt fyrir að hafa verið bent á að slíkt væri óheimilt.
Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 er fjárhagsáætlun ársins bindandi regla um allar fjárhagslegar ráðstafanir af hálfu sveitarfélagsins. Ef ráðning starfsmanns, jafnvel til skamms tíma, kallar á ný útgjöld sem fara umfram samþykkta fjárhagsramma eða heimildir á viðkomandi lykli, kveður 2. mgr. 63. gr. sömu laga á um að óheimilt sé að víkja frá áætluninni nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við hana þar sem útfært er hvernig útgjöldunum verður mætt.
Bæjarstjóri í umboði nýs meirihluta gerist því sekur um að ráða í stöðu sem ekki er samþykkt í fjárhagsáætlun, er ófjármögnuð og fer yfir fjárheimildir og ætlar ekki að leggja fram ósk um viðauka í bæjarráði sem afgreiða þarf í bæjarstjórn og með því brýtur bæjarstjóri gegn 63.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Bæjarfulltrúar Framsóknar og Samfylkingar óska eftir skriflegum svörum við eftirfarandi spurningum á næsta fundi bæjarráðs sem fer með umboð bæjarstjórnar vegna sumarleyfis hennar:
1. Var staða aðstoðarmanns auglýst opinberlega? Ef ekki, á hvaða lagagrundvelli var ákveðið að auglýsa hana ekki?
2. Hversu margir umsækjendur komu til greina og hvaða sjónarmið lágu til grundvallar við val á aðstoðarmanni bæjarstjóra?
3. Hefur verið framkvæmt mat á því hvort verkefni aðstoðarmanns bæjarstjóra séu nú þegar eða geti verið á verksviði annarra starfsmanna sveitarfélagsins með tilheyrandi sparnaði?
4. Hver er heildarkostnaður sveitarfélagsins vegna ráðningarinnar á ársgrundvelli, að meðtöldum launum, launatengdum gjöldum, lífeyrissjóðsiðgjöldum og öðrum starfskjörum?
5. Er ráðningin tímabundin eða ótímabundin og hvaða uppsagnarákvæði gilda um starfið?
6. Hvernig fellur ráðning aðstoðarmanns bæjarstjóra að samþykktri fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og hefur verið gert ráð fyrir þessum kostnaði í fjárhagsáætlun?
7. Hefur bæjarráð eða bæjarstjórn samþykkt stofnun starfsins eða breytingu á skipuriti sveitarfélagsins og ef svo er, hvenær?
8. Óskað er eftir að lagt verði fram mat á því hvaða ávinning eða hagræði ráðningin er talin hafa í för með sér fyrir rekstur sveitarfélagsins.
Að auki óska bæjarfulltrúar Framsóknar og Samfylkingar eftir að ráðningarsamningur og starfslýsing aðstoðarmanns bæjarstjóra verði lögð fram með málinu á bæjarráðsfundi.“
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsóknarflokki og Guðný Birna Guðmundsdóttir og Bjarni Halldór Heiðuson Janusson Samfylkingu.
Til máls tóku Vilhjálmur Árnason, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Guðbergur Reynisson, Kristján Pétur Kristjánsson og Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsóknarflokki og Guðný Birna Guðmundsdóttir og Bjarni Halldór Heiðuson Janusson Samfylkingu greiða atkvæði á móti í máli 2 - Ráðning bæjarstjóra (2026050339) - frá fundargerð bæjarráðs 4. júní 2026.
Fundargerðirnar samþykktar að öðru leyti 11-0.
Fylgigögn:
4. Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 5. júní 2026 (2026010016)
Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 5. júní til sérstakrar samþykktar:
Áttunda mál fundargerðarinnar, Suðurbrautarreitur Ásbrú - deiliskipulag (2023030660) samþykkt 11-0 án umræðu.
Níunda mál fundargerðarinnar, Hringbraut 130 (2026040204) samþykkt 11-0 án umræðu.
Tíunda mál fundargerðarinnar, Hafnargata 45 (2026050242) samþykkt 11-0 án umræðu.
Tólfta mál fundargerðarinnar, Stapabraut 21 - auglýsingaskilti (2026010463) samþykkt 11-0 án umræðu.
Fjórtánda mál fundargerðarinnar, Grenndarstöðvar Reykjanesbæ (2025050211) samþykkt 11-0 án umræðu.
Fimmtánda mál fundargerðarinnar, Afnot af landi (2026060041) samþykkt 11-0 án umræðu.
Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Vilhjálmur Árnason, Róbert Jóhann Guðmundsson, Guðbergur Reynisson.
Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókanir:
Mál 5 frá fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 5. júní 2026 - Akademíureitur - breyting á aðalskipulagi (2025010481)
„Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs frá 5. júní síðastliðnum eru margar áhugaverðar ákvarðanir.
Í máli Akademíureitsins var óskað eftir heimild til að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi en erindinu var frestað og lögfræðingur sviðsins og bæjarstjóri eiga að vinna málið áfram. Hér hefur verið tekið fram í bæjarstjórn að bæjarstjóri hefur tekið ákvörðun um að hætta við verkefnið sem hefur verið í vinnslu í tvö ár.
Það er einkar athyglisvert í ljósi þess að næsta mál var samþykkt en það sneri að svæði M2 miðbær sem er svæðið frá Hafnargötu/Njarðvíkurbraut/Náströnd/Aðalgötu/Klapparstíg og Vatnsnesveg. Þar er einnig óskað eftir heimild til að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi. Í því máli er verið að stækka leyfilegt byggingarmagn úr 85.100 m² í 128.500 m² sem felur í sér að heimilaður íbúðarfjöldi fer úr 305 íbúðum í 525 íbúðir.
Ráðið heimilar einnig deiliskipulagstillögu fyrir Suðurbrautarreit á Ásbrú þar sem eru 300 íbúðir í 3-5 hæða fjölbýlishúsum.
Í máli 11 neitar Sjálfstæðisflokkurinn svo að heimila fjölgun sérbýla á Bolafæti.
Það vekur athygli að á fyrsta mánuði nýs meirihluta sjálfstæðisflokks og miðflokks hefur nýr meirihluti samþykkt þau mál sem snúa að mikilli fjölgun fjölbýla en hafnar þeim málum sem snúa að fjölgun sérbýla.“
Mál 3 frá fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs 5. júní 2026 - Mælaborð umhverfis - og framkvæmdasviðs (2025050559)
„Í mælaborði umhverfis- og skipulagsráðs frá 19. apríl 2026 er tekið saman yfirlit yfir sjö framkvæmdir í sveitarfélaginu ásamt sameiginlegum kostnaði.
Í ljósi ítrekaðra rangfærslna frá sjálfstæðisflokknum í aðdraganda kosninga um fjárhagsstöðu framkvæmda í sveitarfélaginu, vilja bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar benda á yfirlit framkvæmda og stöðu verkefna þar sem kemur skýrt fram að allar sjö framkvæmdirnar; Myllubakkaskóli, Holtaskóli, Drekadalur, leikskólinn Völlur, Íþróttavallarhús Njarðvíkur, Hljómahöll, leikskólinn Heiðarsel ásamt sameiginlegum kostnaði, sýna að staða allra verkefna er innan fjárhagsáætlunar. Ítrekaðar yfirlýsingar um að fyrrum meirihluti Reykjanesbæjar hafi farið fram úr áætlun í framkvæmdum á ekki við nein rök að styðjast.“
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsóknarflokki og Guðný Birna Guðmundsdóttir og Bjarni Halldór Heiðuson Janusson Samfylkingu.
Til máls tóku Vilhjálmur Árnason, Kristján Pétur Kristjánsson, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Guðbergur Reynisson og Guðný Birna Guðmundsdóttir.
Fundargerðin samþykkt að öðru leyti 11-0.
Fylgigögn:
5. Málefnasamningur meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar 2026 – 2030 (2026060218)
Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Díana Hilmarsdóttir og Vilhjálmur Árnason.
Fylgigögn:
6. Sumarleyfi bæjarstjórnar (2026060064)
Með vísan til 35. gr. laga nr. 138/2011 og 48. greinar Samþykkta um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, fer bæjarráð með fullnaðarafgreiðslu mála á meðan sumarleyfi bæjarstjórnar stendur yfir frá 17. júní til 12. ágúst n.k. Næsti bæjarstjórnarfundur verður þriðjudaginn 18. ágúst 2026 í Ráðhúsi Reykjanesbæjar að Grænásbraut 910.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:40.