722. fundur

19.08.2026 17:00

722. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, haldinn að Grænásbraut 910, 18. ágúst 2026, kl. 17:00

 
Viðstaddir: Aðalheiður Hilmarsdóttir, Alexander Ragnarsson, Díana Hilmarsdóttir, Guðbergur Reynisson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Gunnlaugur Kárason, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Kristján Pétur Kristjánsson, Margrét Þórarinsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri. Í forsæti var Margrét Þórarinsdóttir.
 
Að auki sat fundinn Hrefna Gunnarsdóttir ritari.
 
Hjörtur Magnús Guðbjartsson boðaði forföll, Aðalheiður Hilmarsdóttir sat fyrir hann.
 

1. Fundargerð bæjarráðs 13. ágúst 2026 (2026010008)

 
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Gunnlaugur Kárason og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.
 
Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:
 
Þriðja mál fundargerðar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 9. júní 2026 (2026010670) sem tekið var fyrir á fundi bæjarráðs nr. 1568 þann 18. júní 2026
 
„Ég óska eftir skýrum svörum frá núverandi meirihluta: Er hátæknibrennslustöð og uppbygging hennar í Helguvík ykkar markmið?
Ég óska eftir formlegu svari við fyrirspurninni.“
 
Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu.
 
Til máls tóku Vilhjálmur Árnason og Guðný Birna Guðmundsdóttir
 
Fundargerðin samþykkt 11-0.
 
Fylgigögn:
 
 

2. Fundargerð skipulagsráðs 7. ágúst 2026 (2026010016)

 
Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 13. ágúst til sérstakrar samþykktar.
Fyrsta mál fundargerðarinnar Brekkubyggð (Suðurbrekka) Ásbrú - deiliskipulag (2025020233) samþykkt 11-0 án umræðu.
Þriðja mál fundargerðarinnar Keilisbraut 753 – hjúkrunarheimili (2026060366) samþykkt 11-0 án umræðu.
Fjórða mál fundargerðarinnar Hafnargata 45 - niðurstaða grenndarkynningar (2026050242) samþykkt 11-0 án umræðu.
Fimmta mál fundargerðarinnar Básvegur 9 - stækkun (2026070217) samþykkt 11-0 án umræðu.
Áttunda mál fundargerðarinnar Brekadalur 55 - stækkun á byggingarreit (2026070153) samþykkt 11-0 án umræðu.
Níunda mál fundargerðarinnar Vogshóll 4 - vinnubúðir (2026070320) samþykkt 11-0 án umræðu.
 
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.
 
Fundargerðin samþykkt án umræðu að öðru leyti 11-0.
 
Fylgigögn:
 
 

3. Fundargerð velferðarráðs 13. ágúst 2026 (2026010017)

 
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.
 
Til máls tók Aðalheiður Hilmarsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn:
 
Þriðja mál frá fundargerð velferðarráðs – Málefni flóttafólks – svar við fyrirspurn (2024100122)
 
„Í desember 2025, skömmu áður en samningur Reykjanesbæjar um samræmda móttöku flóttafólks rann út um áramótin, frestaði bæjarstjórn ákvörðun um nýjan samning og kallaði eftir frekari viðræðum við ríkið. Í kosningabaráttunni lýstu flokkarnir sem nú mynda meirihluta því hins vegar skýrt yfir að ekki yrðu gerðir fleiri samningar við ríkið um móttöku flóttafólks.
 
Pólitísk afstaða meirihluta flokkanna virðist því hafa legið fyrir, en ekki hefur komið jafn skýrt fram hvort henni hafi verið hrint í framkvæmd með formlegri ákvörðun, til hvaða samninga hún nái, á hvaða mati hún byggist og hvaða afleiðingar hún hafi fyrir Reykjanesbæ.
 
Mikilvægt er að aðgreina annars vegar samning um samræmda móttöku fólks sem hefur fengið alþjóðlega vernd og hins vegar samning við Vinnumálastofnun um þjónustu við umsækjendur sem bíða niðurstöðu. Því óska ég eftir formlegum svörum við eftirfarandi spurningum frá núverandi meirihluta:
 
  1. Nær sú yfirlýsing Sjálfstæðisflokks og Miðflokks um að gera ekki fleiri samninga við ríkið bæði til samnings um samræmda móttöku flóttafólks og samnings um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd?
  2. Hefur verið tekin formleg ákvörðun um að Reykjanesbær geri ekki nýjan samning um samræmda móttöku?
  3. Hafa viðræður farið fram við ríkið frá sveitarstjórnarkosningum varðandi nýjan samning?
  4. Er afstaða meirihlutans sú að enginn nýr samningur komi til greina, óháð efni hans og þeim skilyrðum sem ríkið kynni að fallast á?
  5. Á hvaða heildstæða fjárhags- og þjónustumati byggist afstaða meirihlutans? Í svari stjórnsýslunnar kemur fram að rekstrarniðurstaða þeirrar deildar velferðarsviðs sem sinnti umsækjendum um alþjóðlega vernd var jákvæð öll árin 2004–2025 að undanskildu árinu 2021. Samningur Reykjanesbæjar við Vinnumálastofnun um þá þjónustu var aðskilinn samningnum um samræmda móttöku.
  6. Í svarinu kemur jafnframt fram að 145 umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi verið í tveimur úrræðum Vinnumálastofnunar í Reykjanesbæ 17. júlí 2026, þótt þjónustusamningi Reykjanesbæjar og Vinnumálastofnunar hafi lokið 31. júlí 2025. Hvaða áhrif telur meirihlutinn að sú stefna að gera ekki samninga hafi á raunverulegan fjölda fólks í úrræðum innan sveitarfélagsins? Hvaða breytingar hefur samningsleysið haft á greiðslum ríkisins til bæjarins, samráði við sveitarfélagið og möguleikum Reykjanesbæjar til að hafa áhrif á staðsetningu úrræða og framkvæmd þjónustunnar?
  7. Verði ekki gerður nýr samningur, hvaða fyrirkomulag á þá að taka við til að tryggja reglubundið samráð við ríkið, kostnaðarþátttöku þess og hagsmuni Reykjanesbæjar í málaflokknum?
 
Ég óska eftir formlegum svörum á næsta fundi bæjarstjórnar.“
 
Aðalheiður Hilmarsdóttir Samfylkingu.
 
Til máls tóku Vilhjálmur Árnason, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Díana Hilmarsdóttir og Margrét Þórarinsdóttir.
 
Fundargerðin samþykkt 11-0.
 
Fylgigögn:
 
 

4. Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs 14. ágúst 2026 (2026060411)

 
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Guðbergur Reynisson og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.
 
Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi fyrirspurnir:
 
Fimmta mál frá fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs - Ásahverfi – umferðaröryggi (2026050289)
 
„Hver er staðan á þessum verkefnum sem búið var að samþykkja og setja fjármagn í, þ.e. hvenær verður hafist handa við umræddar framkvæmdir á árinu 2026?
 
Hefur núverandi meirihluti ákveðið að hætta við umræddar framkvæmdir?
 
Ef svo er, hvaða aðrar framkvæmdir hefur umrætt fjármagn farið í?
 
Að lokum, hvað er átt við með bráðabirgðahringtorgi?
 
Ég óska eftir formlegum svörum við fyrirspurn minni á næsta fundi bæjarstjórnar.“
 
Tíunda mál frá fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs - Fjárfestingaverkefni 2027 (2026080103)
 
„Af hverju er verkefnið um leikskóla Stapaskóla ekki á listanum yfir verkefni sem þarf að fara að huga að?
 
Stendur til að flytja bókasafnið úr Hljómahöll?
 
Ég óska eftir formlegum svörum við fyrirspurn minni á næsta fundi bæjarstjórnar.“
 
Guðný Birna Guðmundsdóttir Samfylkingu.
 
Til máls tóku Guðbergur Reynisson, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Vilhjálmur Árnason og Margrét Þórarinsdóttir.
 
Fundargerðin samþykkt 11-0.
 
Fylgigögn:
 
 

5. Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026 - kosning undirkjörstjórnar (2026060264)

 
Tilnefningar yfirkjörstjórnar um starfsfólk í undirkjörstjórn skv. 2. mgr. 17. gr. kosningalaga nr. 112/2021.
 
Til máls tóku Guðný Birna Guðmundsdóttir, Margrét Þórarinsdóttir, Vilhjálmur Árnason og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.
 
Tilnefningar samþykktar 11-0.
 
Tilnefning áheyrnarfulltrúa í yfirkjörstjórn skv. 4. mgr. 17. gr. kosningalaga nr. 112/2021: aðalmaður Aðalheiður Hilmarsdóttir (S) og varamaður Margrét Sturlaugsdóttir (S). Tilnefningar samþykktar 11-0.
 
 
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:10.