724. fundur

15.09.2026 17:00

724. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, haldinn að Grænásbraut 910, 15. september 2026, kl. 17:00

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson, Díana Hilmarsdóttir, Guðbergur Reynisson, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Gunnlaugur Kárason, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Kristján Pétur Kristjánsson, Margrét Þórarinsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri. Í forsæti var Margrét Þórarinsdóttir.

Að auki sat fundinn Hrefna Gunnarsdóttir ritari.

1. Fundargerðir bæjarráðs 3. og 10. september 2026 (2026010008)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tók Gunnlaugur Kárason.

Til máls tók Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og lagði fram eftirfarandi bókun:

2. mál fundargerðar bæjarráðs frá 10. september 2026 – Eignarhlutur í landi Höskuldarkots (2026090119)

„Lóðamál í Reykjanesbæ hafa um árabil verið mikið hitamál meðal bæjarbúa.
Ólíkt eignarhald lands, þar sem land er ýmist í eigu sveitarfélagsins, ríkisins eða einkaaðila, hefur áhrif á möguleika sveitarfélagsins til að stýra þróun byggðar og tryggja sanngjarnar og fyrirsjáanlegar forsendur fyrir uppbyggingu.
Framsókn telur tímabært að Reykjanesbær taki lóðamálin föstum tökum og móti sér skýra og metnaðarfulla stefnu um landaeign sveitarfélagsins.

Við leggjum því til að stofnaður verði lóðasjóður Reykjanesbæjar strax.
Lóðasjóður verður öflugt tæki til að auka landaeign Reykjanesbæjar, með markvissum kaupum á landi og lóðum í einkaeigu og styrkir þannig stöðu sveitarfélagsins til framtíðar.

Málið sem nú liggur fyrir bæjarstjórn, þar sem landeigendur óska eftir að sveitarfélagið kaupi eignarhluti í landi, undirstrikar mikilvægi þess að sveitarfélagið sé tilbúið að bregðast við þegar tækifæri gefast til að auka landaeign sína.

Við teljum jafnframt mikilvægt að horfa til lengri tíma. Þegar landareignir ganga í erfðir dreifast eignarhlutir á fleiri erfingja og einstakir eignarhlutir verða því smám saman minni. Það getur skapað tækifæri til að auka landaeign sveitarfélagsins með markvissum og sanngjörnum hætti. Við teljum því að rétti tíminn til að ráðast í stofnun lóðasjóðs sé núna.

Jafnframt teljum við mikilvægt að ráðist verði í heildstæða úttekt á lóðaleigu í Reykjanesbæ með það að markmiði að tryggja samræmda, gagnsæja og fyrirsjáanlega gjaldskrá þar sem jafnræðis er gætt.
Þetta snýst ekki um einstaka lóð eða einstakan landeiganda. Þetta snýst um það hver á landið sem framtíð Reykjanesbæjar verður byggð á.

Framsókn telur að bæjarbúar eigi að njóta þeirra verðmæta sem skapast þegar sveitarfélagið byggir upp landaeign sína og tekur þannig meiri stjórn á eigin framtíð.

Reykjanesbær á að eiga allt land sem hann getur eignast, ekki horfa á eftir því.

Því leggjum við fram eftirfarandi:
Framsókn leggur til að tillögu um stofnun lóðasjóðs Reykjanesbæjar verði vísað til bæjarráðs til umfjöllunar og í fjárhagsáætlunarvinnu, þar sem útfærsla sjóðsins, markmið, fjármögnun og verklag verði mótað.“

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsóknarflokki.

Til máls tóku Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Alexander Ragnarsson, Vilhjálmur Árnason, Guðný Birna Guðmundsdóttir og Kristján Pétur Kristjánsson.

Forseti bar upp tillögu Framsóknarflokks um að vísa tillögu um stofnun lóðasjóðs til bæjarráðs. Tillagan samþykkt 11-0.

Fundargerðirnar samþykktar 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 1577. fundar bæjarráðs 3. september 2026
Fundargerð 1578. fundar bæjarráðs 10. september 2026

2. Fundargerð skipulagsráðs 4. september 2026 (2026010016)

Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 4. september til sérstakrar samþykktar:

Sjötta mál fundargerðarinnar Lónsbraut 1 (2026080478) samþykkt 11-0 án umræðu.
Áttunda mál fundargerðarinnar Fitjabraut 16-22 - breyting á lóðamörkum (2026060391) samþykkt 11-0 án umræðu.
Níunda mál fundargerðarinnar Stakksbraut 9 (2026080510) samþykkt 11-0 án umræðu.

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Vilhjálmur Árnason, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Guðbergur Reynisson og Róbert Jóhann Guðmundsson.

Fundargerðin samþykkt að öðru leyti 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 395. fundar skipulagsráðs 4. september 2026

3. Fundargerð velferðarráðs 10. september 2026 (2026010017)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Díana Hilmarsdóttir, Guðný Birna Guðmundsdóttir, Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Vilhjálmur Árnason og Margrét Þórarinsdóttir.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 457. fundar velferðarráðs 10. september 2026

4. Fundargerð menntaráðs 11. september 2026 (2026010013)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Díana Hilmarsdóttir, Vilhjálmur Árnason og Guðný Birna Guðmundsdóttir.

Til máls tók Margrét Þórarinsdóttir og lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Reykjanesbæjar:

2. mál frá fundargerð menntaráðs frá 11.september 2026 - Farsæld barna í Reykjanesbæ (2025060040

„Bæjarstjórn Reykjanesbæjar skorar á stjórnvöld að tryggja áframhaldandi fjármögnun til sveitarfélaga vegna innleiðingar og framkvæmdar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Sveitarfélögin hafa byggt upp þjónustu og tekið á sig lögbundnar skyldur samkvæmt lögunum og mikilvægt er að tryggja stöðugleika og samfellu í þeirri þjónustu.

Í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er ekki gert ráð fyrir áframhaldandi sérstöku viðbótarfjármagni til sveitarfélaga vegna innleiðingarinnar. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar telur mikilvægt að úr því verði bætt við meðferð frumvarpsins og að nauðsynlegt fjármagn fylgi þeim lögbundnu skyldum sem sveitarfélögunum eru falin.“

Alexander Ragnarsson, Guðbergur Reynisson, Kristján Pétur Kristjánsson, Margrét Þórarinsdóttir og Vilhjálmur Árnason Sjálfstæðisflokki, Gunnlaugur Kárason Miðflokki, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsóknarflokki og Guðný Birna Guðmundsdóttir og Hjörtur Magnús Guðbjartsson Samfylkingu.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 399. fundar menntaráðs 11. september 2026

5. Fundargerðir umhverfis- og framkvæmdaráðs 11. september 2026 (2026060411)

Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Guðbergur Reynisson, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Margrét Þórarinsdóttir.

Fundargerðin samþykkt 11-0.

Fylgigögn:

Fundargerð 3. fundar umhverfis- og framkvæmdaráðs 11. september 2026

6. 100 daga áætlun meirihlutans (2026060280)

Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði og lagði fram bókun meirihluta bæjarstjórnar:

„Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks fagnar því að öll verkefni 100 daga áætlunar meirihlutans séu nú komin í framkvæmd og skýran farveg. Sumum verkefnum hefur þegar verið lokið, framkvæmdir eru hafnar í öðrum og þau verkefni sem eðli máls samkvæmt taka lengri tíma eru komin í markvissa vinnslu.

Rétt er að halda því til haga að sum verkefnanna voru þegar komin í ákveðinn farveg áður en nýr meirihluti tók við og um mörg þeirra ríkir breið samstaða innan bæjarstjórnar. Fyrir það ber að hrósa fyrri bæjarstjórn og meirihlutinn telur jákvætt og mikilvægt að sú samstaða nýtist áfram í þágu Reykjanesbæjar. Önnur verkefni voru hins vegar hvorki komin af stað né á dagskrá en eru nú komin í framkvæmd eða skýran farveg. Jafnframt er eðlilegt að pólitískur ágreiningur sé um önnur stór mál, meðal annars um skattalækkanir, skipulagsmál, forgangsröðun og umfang hins opinbera.

Af þeim fjölmörgu verkefnum sem komin eru af stað er meirihlutinn sérstaklega stoltur af afnámi innviðagjaldsins, sem felur í sér stórfellda lækkun á álögum vegna uppbyggingar í Reykjanesbæ, og aukinni áherslu á íþróttamál. Þá hefur verið sett af stað markviss vinna í leik- og grunnskólamálum, meðal annars um fjölgun fagmenntaðs starfsfólks og samræmdar árangursmælingar, auk þess sem vinna við stóraukið framboð sérbýlislóða er komin vel á veg.

Meirihlutinn telur að á fyrstu 100 dögunum hafi tekist að leggja traustan grunn að nýju sóknarskeiði í Reykjanesbæ. Nú tekur við áframhaldandi vinna við að fylgja verkefnunum eftir, greiða fyrir uppbyggingu og fjárfestingu, lækka álögur og bæta þjónustu við íbúa.“

Alexander Ragnarsson, Guðbergur Reynisson, Kristján Pétur Kristjánsson, Margrét Þórarinsdóttir og Vilhjálmur Árnason Sjálfstæðisflokki, Gunnlaugur Kárason Miðflokki.

Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Guðný Birna Guðmundsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Guðbergur Reynisson.

Fylgigögn:

Afgreiðsla 100 daga plansins


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:02.