246. fundur

26.02.2018 00:00

246. fundur barnaverndarnefndar Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 26. febrúar 2018 kl. 08:15.

Viðstaddir: Halldór R. Guðjónsson, Hólmfríður Karlsdóttir, Sigurrós Antonsdóttir, Ólafur Grétar Gunnarsson, María Gunnarsdóttir forstöðumaður og Henný Úlfarsdóttir ráðgjafi, sem einnig ritaði fundargerð.

1. Starfsáætlun velferðarsviðs 2018
María Gunnarsdóttir forstöðumaður gerði grein fyrir starfsáætlun velferðarsviðs fyrir árið 2018.

2. Ársskýrsla barnaverndar 2017
María Gunnarsdóttir forstöðumaður gerði grein fyrir ársskýrslu barnaverndar fyrir árið 2017.

3. Annað. 
María kynnti Herning módel fyrir nefndarmönnum. Maríu var falið að taka saman upplýsingar um Herning módelið fyrir næsta barnaverndarnefndarfund.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:30. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 6. mars 2018.