285. fundur

04.10.2021 08:15

285. fundur barnaverndarnefndar Reykjanesbæjar var haldinn að Tjarnargötu 12 þann 4. október 2021 kl. 08:15

Viðstaddir: Halldór Rósmundur Guðjónsson, Þuríður Berglind Ægisdóttir, Díana Hilmarsdóttir, Sigurrós Antonsdóttir, Davíð Brár Unnarsson, Þórdís Elín Kristinsdóttir teymisstjóri barnaverndar, Kolbrún Þorgilsdóttir ráðgjafi, Linda Sif Leifsdóttir ráðgjafi, Dagný Alma Jónasdóttir ráðgjafi, Henný Úlfarsdóttir ráðgjafi og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

1. 9 trúnaðarmál á dagskrá.

2. Forvarnir alla leið (2021100007)

Forvarnir frá skóla og alla leið heim.

Verkferlar ef grunur er um fíkniefnasölu og/eða neyslu í skólum Reykjanesbæjar.

Barnaverndarnefnd Reykjanesbæjar leggur til að sviðsstjóri fræðslusviðs og teymisstjóri barnaverndar taki eftirfarandi til skoðunar og ákveði í framhaldinu næstu skref varðandi gerð verkferla sem gilda fyrir alla skóla í Reykjanesbæ. Mælt er með að slíkt verði unnið í góðu samstarfi við hlutaðeigandi aðila. Verkferlar verði svo lagðir fyrir fund barnaverndarnefndar þegar þeir eru tilbúnir og taki gildi eigi síðar en 1. janúar 2022 og fyrr ef hægt er.

Meðal annars verði skoðað:

• Tiltæk viðbrögð og úrræði
• Hvaða viðbrögð, úrræði og stuðningur þurfa að vera til staðar
• Fyrirkomulag forvarna
• Samstarf heimila og skóla

Ef upp koma slík mál í skólum okkar er nauðsynlegt að bregðast við á viðeigandi hátt. Nauðsynlegt er að ræða um hlutina á mannamáli, hvað skal varast og hvað skal til bragðs taka ef nemendur, starfsmenn skóla eða aðrir verða vitni að sölu og/eða neyslu fíkniefna á skólalóð. Barnaverndarnefnd hefur áhyggjur af unga fólkinu okkar.

Mjög mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn séu upplýstir svo hægt sé að taka samtalið heima og vera meðvitaður um stöðuna, fræða börnin okkar um hættuna og halda umræðunni gangandi til þess að vera vakandi í nærumhverfi barnsins.

Með þessu vill barnaverndarnefnd árétta að ein af megináherslum í stefnu Reykjanesbæjar er Börnin mikilvægust. Í því felst að styðja börn svo þau blómstri í fjölskyldunni, skólum, íþróttum og tómstundum til að auka kraft samfélagsins.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10.30. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 19. október 2021.