207. fundur íþrótta-, tómstunda- og menningarráðs Reykjanesbæjar haldinn að Grænásbraut 910 24. ágúst 2026 kl. 14:00
Viðstaddir: Sunna Gunnarsdóttir formaður, Birgir Már Bragason, Bjarni Gunnólfsson, Logi Þór Ágústsson og Hámundur Örn Helgason.
Að auki sátu fundinn Frosti Kjartan Rúnarsson fulltrúi ungmennaráðs, Rúnar Vífill Arnarson, formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar, Hafþór Barði Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi og Erna María Svavarsdóttir ritari.
Guðmundur Steinarsson boðaði forföll, Logi Þór Ágústsson sat fundinn í hans stað.
1. Kynning á starfsemi Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags (2026080179)
Birgir Már Bragason kynnti starfsemi Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags og farið var yfir helstu þætti hennar.
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð þakkar fyrir góða og upplýsandi kynningu.
2. Kynning á starfsemi Ungmennafélags Njarðvíkur (2026080180)
Hámundur Örn Helgason kynnti starfsemi Ungmennafélags Njarðvíkur og farið var yfir helstu þætti hennar.
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð þakkar fyrir upplýsingagjöf íþróttafélaganna og telur þetta mikilvægt fyrsta skref í formlegu samtali sveitarfélagsins og íþróttahreyfingarinnar um framtíð íþróttamála í Reykjanesbæ.
Ráðið leggur áherslu á að samtalið taki meðal annars til framtíðarsýnar um uppbyggingu og viðhald íþróttamannvirkja, fyrirkomulags og umfangs stuðnings sveitarfélagsins við íþróttafélögin og leiða til lækkunar á æfingagjöldum fyrir iðkendur.
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð leggur til að bæjarstjóri skipi stýrihóp innan stjórnsýslu Reykjanesbæjar sem leiði formlegt samtal við íþróttahreyfinguna í heild sinni og undirbúi tillögur að næstu skrefum, þar á meðal varðandi framtíðarsýn í mannvirkjamálum, aukinn stuðning við íþróttafélögin og lækkun æfingagjalda.
Stýrihópurinn skal upplýsa íþrótta-, tómstunda- og menningarráð reglulega um framgang vinnunnar og leggja tillögur sínar fyrir ráðið. Ákvarðanir um einstakar aðgerðir, samninga og skuldbindingar Reykjanesbæjar verða teknar af íþrótta-, tómstunda- og menningarráði eftir því sem við á.
3. Frístundir.is – auglýsingar fyrir veturinn 2026-2027 (2026080198)
Hafþór Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar, kynnti vinnu við að safna auglýsingum um það sem verður í boði fyrir börn, ungmenni og fullorðna veturinn 2026-2027.
Hægt er að senda inn auglýsingar um íþrótta- og tómstundatilboð á netfangið forvarnir@reykjanesbaer.is. Auglýsingar þurfa að berast fyrir 1. september 2026.
Fylgigögn:
4. Sundráð ÍRB - samningur um eflingu barnastarfs (2026080184)
Samningur um eflingu barna- og ungmennastarfs Sundráðs ÍRB lagður fram og samþykktur.
5. Kynning á menningarmálum Reykjanesbæjar (2026080183)
Halldóra Guðrún Jónsdóttir, sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs, situr fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti starfsemi og helstu verkefni á sviði menningarmála í Reykjanesbæ.
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð þakkar fyrir góða og upplýsandi kynningu.
6. Ljósanótt - drög að dagskrá og hvatning til þátttöku (2026060286)
Halldóra Guðrún Jónsdóttir, sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs, situr fundinn undir þessum dagskrárlið. Drög að dagskrá Ljósanætur 2026 voru kynnt. Dagskráin er að venju fjölbreytt og skemmtileg. Ýmsir fastir liðir einkenna hátíðina og má þar nefna setningarhátíð þar sem börnin í bæjarfélaginu eru í aðalhlutverki, opnanir nýrra listsýninga á vegum Listasafns Reykjanesbæjar og sýninga um allan bæ í kjölfarið, kjötsúpu Skólamatar, árgangagöngu, akstur glæsikerra, stórtónleika á útisviði og flugeldasýningu.
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð hvetur íbúa til að taka þátt í metnaðarfullri dagskrá. Hægt er að kynna sér dagskrána á vef Ljósanætur, ljosanott.is.
Fylgigögn:
7. Sýningaropnun í Byggðasafni Reykjanesbæjar - Litið í baksýnisspegilinn (2026080190)
Byggðasafn Reykjanesbæjar opnar sýninguna Litið í baksýnisspegilinn fimmtudaginn 3. september 2026 í Bíósal Duus safnahúsa. Opnunin er hluti af dagskrá safnahúsanna á Ljósanótt.
Á sýningunni er litið í baksýnisspegilinn á skemmtileg augnablik sem hafa verið fönguð á mynd og staldrað við nokkrar af helstu vörðum bílvæðingar á Suðurnesjum.
Í safninu er til fjöldi ljósmynda sem endurspegla þær miklu breytingar sem hafa orðið á samgöngum síðan fyrsta bílferðin var farin frá Hafnarfirði til Keflavíkur árið 1913. Betri vegir og aukinn fjöldi bíla í kjölfar síðari heimsstyrjaldar höfðu mikil áhrif, atvinnulíf efldist, vöruflutningar urðu einfaldari og ferðalög almennari.
Verið öll velkomin! Sýningin stendur til 25. apríl 2027.
8. Byggðasafn Reykjanesbæjar - Sögugöngur 2026 (2026080191)
Byggðasafn Reykjanesbæjar vekur athygli á sögugöngum safnsins. Í ár eru þær fjórar talsins og er dagskráin eftirfarandi:
13. ágúst kl. 20:00 við kirkjuna í Innri-Njarðvík: Fornminjar í Innri-Njarðvík. Þór Hjaltalín, sviðsstjóri hjá Minjastofnun Íslands leiðir gönguna.
20. ágúst kl. 20:00 við kirkjuna í Ytri-Njarðvík: Konur um konur. Rannveig Garðarsdóttir leiðir gönguna.
27. ágúst kl. 20:00 við Kirkjuvogskirkju í Höfnum: Víkingaaldarskáli í Höfnum. Ármann Guðmundsson fornleifafræðingur leiðir gönguna.
6. september kl. 11:00 við Duus safnahús: Gömlu húsin í Keflavík. Jón Stefán Einarsson arkitekt leiðir gönguna.
9. Danskompaní (2026080126)
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð óskar Danskompaníi innilega til hamingju með glæsilegan árangur á World Cup í sumar. Árangurinn endurspeglar þann mikla metnað og öfluga starf sem unnið er hjá félaginu.
Ráðið óskar iðkendum, þjálfurum og aðstandendum Danskompanís áframhaldandi velgengni.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:48. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 1. september 2026.