- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Ásdís Ólafsdóttir formaður, Harpa Björg Sævarsdóttir, Hildur Björnsdóttir, Logi Þór Ágústsson og Sighvatur Jónsson.
Að auki sátu fundinn Ólöf Magnea Sverrisdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Linda Hlín Heiðarsdóttir fulltrúi leikskólakennara, Maciej Baginski fulltrúi foreldra leikskólabarna, Sverrir Örn Leifsson varamaður, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs, Bergljót Sif Stefánsdóttir leikskólafulltrúi og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.
Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs kynnti mælaborð sviðsins fyrir janúar til júní 2026.
Innviðaráðuneytið hefur ýtt úr vör vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga þar sem fyrsta skrefið er gerð grænbókar um málefnið. Í grænbók birtist stöðumat á helstu lögbundnu verkefnum og öðrum viðfangsefnum sveitarfélaga og greiningu áskorana og tækifæra, sem lagt verður til grundvallar endurskoðunar stefnu og aðgerðaáætlunar í málaflokknum. Bæjarráð vísaði málinu til sviðsstjóra bæjarins og fól þeim að svara spurningum tengdum þeirra sviðum í samráði við viðkomandi ráð.
Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs kynnti drög að svörum við spurningum sem heyra undir málaflokk menntamála.
Leikskólaráð samþykkir framlögð svör fyrir sitt leyti.
Lagt er til að skipaður verði spretthópur um fjölgun leikskólakennara og annars fagmenntaðs starfsfólks í leikskólum Reykjanesbæjar. Markmiðið er að móta raunhæfar leiðir til að laða fleira fagmenntað starfsfólk til leikskólanna. Tillagan er í samræmi við 100 daga áætlun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Hópurinn mun nýta fyrirliggjandi vinnu starfshóps um leikskólamál frá síðasta kjörtímabili.
Lagt er til að spretthópurinn verði skipaður fulltrúum stjórnsýslunnar og leikskólanna sem hafa þekkingu á starfi leikskólakennara og starfsemi leikskóla. Mælt er með því að í hópnum sitji formaður leikskólaráðs, leikskólafulltrúi, fulltrúi leikskólastjóra auk fulltrúa sem meirihluti og minnihluti bæjarstjórnar tilnefna. Hópurinn skili aðgerðaáætlun til leikskólaráðs í október 2026.
Leikskólaráð samþykkir tillögu um stofnun tímabundins spretthóps og skipan hópsins.
Bergljót Sif Stefánsdóttir leikskólafulltrúi fór yfir upplýsingar um fjölda barna, laus pláss og úthlutun í leikskólum og hjá dagforeldrum í Reykjanesbæ.
Lagt er til að gerð verði könnun meðal þjónustunotenda varðandi sumarfrí og lokunardaga á leikskólum í Reykjanesbæ.
Leikskólaráð samþykkir tillöguna. Ráðið mun undirbúa könnunina í samstarfi við sviðsstjóra menntasviðs og leikskólafulltrúa og leggja fram á næsta fundi þann 25. september 2026.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:04. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 1. september 2026.