65. fundur

12.02.2026 14:00

Fundargerð 65. fundur lýðheilsuráðs Reykjanesbæjar haldinn að Grænásbraut 910 12. febrúar 2026 kl. 14:00

Viðstödd:  Bjarney Rut Jensdóttir formaður, Anna Lydía Helgadóttir, Karítas Lára Rafnkelsdóttir, Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir og Magnús Einþór Áskelsson. 

Að auki sátu fundinn: Hafþór Barði Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Guðdís Malín Magnúsdóttir fulltrúi ungmennaráðs og Erna María Svavarsdóttir ritari.

1. Vika 6 - kynfræðsla í grunnskólum Reykjanesbæjar (2026020071)

Þormóður Logi Björnsson mætti á fund lýðheilsuráðs Reykjanesbæjar og kynnti vinnu við Viku 6 í grunnskólum Reykjanesbæjar. Hann greindi frá markmiðum verkefnisins, framkvæmd og áherslum í forvarnarstarfi innan skólanna.

Lýðheilsuráð þakkar fyrir greinargóða kynningu.

2. Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2026 (2026020068)

Hafþór Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi sagði frá alþjóðlega netöryggisdeginum sem haldinn var 10. febrúar sl.

Lýðheilsuráð minnir á vefsíðu Netvís.is sem hefur að geyma ýmsa fræðslu fyrir börn, ungmenni, foreldra og fagfólk.

Með því að smella hér opnast vefsíða Netvís.is

3. Uppgjör frístundastyrks árið 2025 (2025120199)

Hafþór Birgisson íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir nýtingu frístundastyrks Reykjanesbæjar. Helstu tölur voru kynntar og hefur þátttaka barna 4 til 18 ára aukist úr 57,9% árið 2022 í 64,1% árið 2025, þátttaka hefur aukist um 1,7% frá 2024-2025. Þátttaka erlendra barna hefur aukist úr 28,4% árið 2022 í 43,2% árið 2025, þátttaka hefur aukist um 9,5% frá 2024-2025.

4. Lífshlaupið 2026 (2026010255)

Lýðheilsuráð vill koma á framfæri kærum þökkum til allra þeirra sem taka þátt í Lífshlaupinu og huga þannig að heilsu sinni og velferð.

5. Ofbeldi gagnvart öldruðum (2026020070)

Lýðheilsuráð óskar öllum sem komu að ráðstefnunni Ofbeldi gagnvart öldruðum, sem haldin var á Nesvöllum nýverið, til hamingju með tilþrifamikinn viðburð sem eykur vitundarvakningu um málefnið.

6. Aðgangur að vatni í íþróttamannvirkjum og tómstundamiðstöð (2026010277)

Lýðheilsuráð fól Hafþóri Birgissyni á síðasta fundi ráðsins að kanna hvernig aðgengi væri að vatni í íþróttamannvirkjum Reykjanesbæjar og tómstundamiðstöð.

Aðgengi að vatni er almennt gott og eru notendur mannvirkjanna hvött til að drekka sem mest af vatni.

7. Mottumars 2026 - viðburður lýðheilsuráðs (2026020181)

Lýðheilsuráð minnir á mottumars. Ráðið mun standa fyrir viðburði í samstarfi við Krabbameinsfélag Suðurnesja líkt og undanfarin ár. Viðburðurinn verður haldinn 24. mars n.k. í Vatnaveröld og verður auglýstur nánar síðar.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:50. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 17. febrúar 2026.