73. fundur

27.02.2026 08:30

Fundargerð 73. fundur menningar- og þjónusturáðs Reykjanesbæjar haldinn að Grænásbraut 910 27. febrúar 2026 kl. 08:30

Viðstaddir: Trausti Arngrímsson formaður, Elfa Hrund Guttormsdóttir, Gígja Sigríður Guðjónsdóttir, Gunnar Jón Ólafsson og Aðalheiður Hilmarsdóttir.

Að auki sátu fundinn Frosti Kjartan Rúnarsson fulltrúi ungmennaráðs, Halldóra Guðrún Jónsdóttir sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs, Guðlaug M. Lewis menningarfulltrúi og Erna María Svavarsdóttir ritari.

1. Listamaður Reykjanesbæjar (2026020506)

Farið var yfir drög að uppfærðum reglum og umræður um tilnefningar.

Menningar- og þjónusturáð tekur jákvætt í framlagðar hugmyndir um uppfærslu reglna um nafnbótina Listamaður Reykjanesbæjar, þar með talið skýrari aðgreiningu frá Menningarverðlaunum Reykjanesbæjar og formfestingu á faglegu mati ráðsins á tilnefningum.

Ráðið vísar málinu til bæjarráðs Reykjanesbæjar til frekari afgreiðslu og staðfestingar á uppfærðu fyrirkomulagi.

2. Tillaga að nafnabreytingu á leikvelli (2026020470)

Erindi frá íbúum í nágrenni Smáratúnsróló um nafnabreytingu á leikvellinum.

Menningar- og þjónusturáð tekur vel í erindið og felur sviðsstjóra og menningarfulltrúa að vinna málið áfram.

Fylgigögn:

Erindi varðandi nafnabreytingu á leikvelli

3. Úthlutanir úr menningarsjóði Reykjanesbæjar (2026010411)

Guðlaug María Lewis menningarfulltrúi fór yfir umsóknir sem bárust í menningarsjóð Reykjanesbæjar fyrir árið 2026.

Alls bárust 40 umsóknir um verkefnastyrki upp á um 18 milljónir króna og 8 menningarhópar sóttu um að fá þjónustusamning við sveitarfélagið. Heildarupphæð menningarsjóðs til úthlutunar eru 5.876.000 krónur. Meginmarkmið sjóðsins er að styrkja verkefni sem eru líkleg til að efla menningarstarfsemi í Reykjanesbæ. Ráðið tók ákvörðun um 13 verkefni sem hljóta styrk að þessu sinni að upphæð 3.200.000 krónur og 2.450.000 krónum verður veitt í þjónustusamninga við 8 starfandi menningarhópa í sveitarfélaginu. Þess má geta að umsóknir um verkefnastyrki tvöfölduðust frá síðasta ári. Ráðið fagnar miklum áhuga íbúa á blómlegu menningarlífi og hlakkar til að sjá verkefnin verða að veruleika.

4. Ársskýrslur menningar- og þjónustusviðs 2025 (2025060044)

Ársskýrslur sviðsins lagðar fram til kynningar.

Menningar- og þjónusturáð þakkar þeim sem komu að gerð ársskýrslna fyrir greinargóðar og upplýsandi skýrslur.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 3. mars 2026.