74. fundur

01.04.2026 10:00

74. fundur menningar- og þjónusturáðs Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 1. apríl 2026 kl. 10:00

Viðstaddir: Trausti Arngrímsson formaður, Hámundur Örn Helgason, Gígja Sigríður Guðjónsdóttir, Gunnar Jón Ólafsson og Aðalheiður Hilmarsdóttir.

Að auki sátu fundinn Halldóra Guðrún Jónsdóttir sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs, Guðlaug M. Lewis menningarfulltrúi og Erna María Svavarsdóttir ritari.

Elfa Hrund Guttormsdóttir boðaði forföll og sat Hámundur Örn Helgason fundinn í hennar stað.

Menningar- og þjónusturáð samþykkir 5-0 að taka á dagskrá Leikfélag Keflavíkur (2026040012). Fjallað er um málið undir dagskrárlið 9.

1. Leikfélag Keflavíkur - endurskoðun rekstrarsamnings (2026030454)

Guðný Kristjánsdóttir, forsvarsmaður Leikfélags Keflavíkur og Brynja Ýr Júlíusdóttir gjaldkeri leikfélagsins mættu á fundinn og ræddu við menningar- og þjónusturáð um endurskoðun rekstrarsamnings sem Leikfélag Keflavíkur gerði við Reykjanesbæ árið 2020 og varðar rekstur Vesturbrautar 17 sem leik- og menningarhús. Samningurinn rann út í árslok 2025.

2. Farsæld barna - aðgerðaáætlun 2026 (2023050248)

Eydís Rós Ármannsdóttir, verkefnastjóri skrifstofu velferðarsviðs, kynnti aðgerðaáætlun í innleiðingu farsældar barna í Reykjanesbæ árið 2026.

Menningar- og þjónusturáð þakkar fyrir greinargóða kynningu á núverandi stöðu og aðgerðaáætlun um farsæld barna í sveitarfélaginu.

3. Listamaður Reykjanesbæjar - tilnefningar (2026020506)

Farið var yfir tilnefningar til listamanns Reykjanesbæjar, með tilliti til nýrra reglna um nafnbótina Listamaður Reykjanesbæjar.

Menningar- og þjónusturáð vísar málinu til bæjarráðs ásamt umsögn sinni. Nafn listamannsins verður tilkynnt við hátíðardagskrá á 17. júní n.k.

4. 17. júní 2026 - ræðumaður og fánahyllir (2026030451)

Menningar- og þjónusturáði er falið að koma með tillögur á næsta fundi að ræðumanni dagsins og fánahylli fyrir hátíðardagskrá 17. júní.

5. BAUN barna- og ungmennahátíð 2026 - dagskrá (2026020470)

Drög að dagskrá BAUNar, barna- og ungmennahátíðar 30. apríl til 10. maí 2026 lögð fram.

6. Gjöf til safneignar - verk eftir Leif Ými Eyjólfsson (2026030461)

Leifur Ýmir Eyjólfsson ánafnar Listasafni Reykjanesbæjar sjö mynda seríu sem listamaðurinn skapaði fyrir sýninguna Fimmföld sýn sem safnið stóð fyrir árið 2019.

Menningar- og þjónusturáð þakkar fyrir gjöfina og tekur undir með Listasafni Reykjanesbæjar sem lýsir tilhlökkun yfir að setja verk hans í samhengi við safneign safnsins.

7. Fornverk í Höfnum - grjóthleðslunámskeið (2026030455)

Í tengslum við námskeiðaröðina Fornverk í Höfnum verður haldin vinnustofa í listsköpun úr náttúrugrjóti undir leiðsögn bandaríska steinlistamannsins Dan Snow. Óskað er eftir leyfi til að reisa náttúruverk á landi Reykjanesbæjar.

Menningar- og þjónusturáð gerir ekki athugasemd við erindið og vísar því til umhverfis- og skipulagsráðs til frekari umræðu.

8. Mælaborð menningar- og þjónustusviðs 2025 (2025060044)

Mælaborð menningar- og þjónustusviðs fyrir árið 2025 lögð fram til kynningar.

9. Leikfélag Keflavíkur (2026040012)

Menningar- og þjónusturáð óskar Leikfélagi Keflavíkur til hamingju með metnaðarfulla uppfærslu á We will rock you sem sýnd hefur verið fyrir fullu húsi í Frumleikhúsinu síðastliðnar vikur.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:39.