- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Trausti Arngrímsson formaður, Elfa Hrund Guttormsdóttir, Gígja Sigríður Guðjónsdóttir, Gunnar Jón Ólafsson og Aðalheiður Hilmarsdóttir.
Að auki sátu fundinn Halldóra Guðrún Jónsdóttir sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs, Guðlaug M. Lewis menningarfulltrúi og Erna María Svavarsdóttir ritari.
Halldóra G. Jónsdóttir, sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs, fór yfir stöðuna á vinnu og uppsetningu á nýjum þjónustuvef sveitarfélagsins, reykjanesbaer.is.
Tómas Viktor Young framkvæmdastjóri Hljómahallar mætti á fundinn og fór yfir umsóknir sem bárust um styrki til viðburðahalds í Hljómahöll. Alls bárust 11 umsóknir og 10 hlutu styrk.
Helga Þórsdóttir safnstjóri Listasafnsins mætti á fundinn og kynnti listahátíð barna sem fer fram í Listasafni Reykjanesbæjar, samhliða BAUN barna- og ungmennahátíð, 30. apríl til 10. maí 2026.
Menningar- og þjónusturáð og Listasafn Reykjanesbæjar hvetja alla bæjarbúa til að skoða sýninguna í Listasafninu.
Fylgigögn:
Bókun Listasafns Reykjanesbæjar - Listahátíð barna 2026
Á fundi menningar- og þjónusturáðs 1. apríl 2026 var ráðinu falið að koma með tillögur að ræðumanni og fánahylli fyrir hátíðardagskrá 17. júní á næsta fundi sínum.
Nöfn fánahyllis og ræðumanns verða gefin upp síðar eins og vani er.
Guðlaug María Lewis menningarfulltrúi fór yfir stöðuna á undirbúningi fyrir Ljósanótt. Á næstu vikum verður leitað til fyrirtækja varðandi stuðning við hátíðina.
Menningar- og þjónusturáð hvetur fyrirtæki eindregið til þess að taka höndum saman og leggja sitt af mörkum.
Menningar- og þjónusturáði hefur borist erindi frá íbúa þar sem lagt er til að bæta við trölli í Skessuhelli.
Menningar- og þjónusturáð tekur vel í erindið og verður það tekið til skoðunar. Ráðið tekur undir að það eru mörg tækifæri til þess að þróa Skessuhelli áfram.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:45. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 5. maí 2026.