394. fundur

13.03.2026 08:15

Fundargerð 394. fundur menntaráðs Reykjanesbæjar haldinn að Grænásbraut 910 13. mars 2026 kl. 08:15

Viðstaddir: Guðný Birna Guðmundsdóttir formaður, Halldór Rósmundur Guðjónsson, Harpa Björg Sævarsdóttir, Ríkharður Ibsen og Sighvatur Jónsson.

Að auki sátu fundinn Ingunn Rós Valdimarsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, María Petrína Berg fulltrúi leikskólastjóra, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs, Haraldur Axel Einarsson grunnskólafulltrúi og Erna María Svavarsdóttir ritari.

1. Farsæld barna - aðgerðaáætlun 2026 (2023050248)

Eydís Rós Ármannsdóttir, verkefnastjóri skrifstofu velferðarsviðs, kynnti aðgerðaáætlun í innleiðingu farsældar barna í Reykjanesbæ árið 2026.

Menntaráð þakkar fyrir greinargóða kynningu á núverandi stöðu og aðgerðaráætlun um farsæld barna í sveitarfélaginu.

Fylgigögn:

Aðgerðaráætlun farsældar barna 2026 - kynning

2. Atvinnutengt nám (2026030154)

Verklag til þess að tryggja skýrari ferla um undirbúning, framkvæmd og eftirfylgni með atvinnutengdu námi sem styður við faglega og samræmda framkvæmd þess hefur nýlega verið tekið í notkun í grunnskólum Reykjanesbæjar. Einar Trausti Einarsson yfirsálfræðingur kynnti afrakstur vinnu stýrihóps um atvinnutengt nám og framvindu verkefnisins.

Menntaráð þakkar fyrir ítarlega yfirferð á vinnu stýrihóps um atvinnutengt nám og fagnar góðu framtaki sem nýtist innan grunnskóla Reykjanesbæjar.

3. Stuðningur við skólasókn (2026030157)

Einar Trausti Einarsson yfirsálfræðingur mætti á fundinn og kynnti framgang vinnu við þróun nýs verklags um stuðning við skólasókn í grunnskólum Reykjanesbæjar og megináherslur í tillögum þverfaglegs starfshóps.

Menntaráð tekur vel í framkomnar tillögur starfshópsins. Um er að ræða mjög metnaðarfullt verklag sem er uppbyggt til að greina hindranir fyrr ásamt ríkari stuðning við nemendur.

4. Nýsköpunar- og þróunarsjóður menntasviðs (2026030159)

Haraldur Axel Einarsson grunnskólafulltrúi kynnti þá áhersluþætti sem eru í forgangi þegar kemur að úthlutun úr nýsköpunar- og þróunarsjóði skrifstofu menntasviðs, en sjóðnum er ætlað að stuðla að nýsköpun, framþróun og öflugu innra starfi leik- og grunnskóla í Reykjanesbæ. Áhersluþættir fyrir skólaárið 2026-2027 eru:

• Inngildandi menntun

• Við og jörðin

• Læsi – lestur, lesskilningur, ritun og tjáning

• Gervigreind í skólastarfi

Auglýst hefur verið eftir umsóknum og er umsóknarfrestur til kl. 16 föstudaginn 27. mars 2026. Skólastjórar, kennarar og aðrir fagaðilar í leik- og grunnskólum Reykjanesbæjar geta sótt um úthlutanir úr sjóðnum.

Menntaráð hvetur skólastjórnendur, kennara og aðra sem starfa að menntamálum í Reykjanesbæ til að nýta þetta tækifæri og sækja um styrk til verkefna sem stuðla að framþróun og bættri menntun fyrir nemendur. Ráðið leggur áherslu á að stuðningur við nýsköpun í menntamálum sé lykilatriði í að bæta gæði og aðgengi að menntun í Reykjanesbæ og vonast til að fjölbreytt og metnaðarfull verkefni fái stuðning úr sjóðnum.

Fylgigögn:

Auglýsing vegna styrkveitinga úr nýsköpunar- og þróunarsjóði 2026-2027

5. Ársskýrsla skrifstofu menntasviðs 2025 og mælaborð (2025060044)

Ársskýrsla og mælaborð menntasviðs fyrir árið 2025 lagt fram til kynningar.

Lagt fram. Menntaráð þakkar fyrir góða skýrslu og greinargóðar upplýsingar. Um er að ræða mikið af jákvæðum atriðum um starfsemi menntasviðs sem vert er að rýna.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:21. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 17. mars 2026.