- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Guðný Birna Guðmundsdóttir formaður, Halldór Rósmundur Guðjónsson, Harpa Björg Sævarsdóttir, Ríkharður Ibsen og Sighvatur Jónsson.
Að auki sátu fundinn Hlynur Jónsson fulltrúi skólastjóra grunnskóla, Ingunn Rós Valdimarsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Ólöf Magnea Sverrisdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Maciej Baginski fulltrúi foreldra leikskólabarna, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs, Haraldur Axel Einarsson grunnskólafulltrúi og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.
Menntaráð samþykkir að taka á dagskrá málið Innritun í leikskóla (2026020073). Fjallað verður um málið undir dagskrárlið 5.
Magnþór Breki Ragnarsson, verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda, mætti á fundinn og kynnti stöðu framkvæmda í húsnæði Holtaskóla og Myllubakkaskóla.
Menntaráð þakkar fyrir greinargóðar upplýsingar um stöðu uppbyggingar grunnskólanna og myndræna kynningu á framkvæmdunum með þrívíddarmyndum. Ánægjulegt er að sjá hversu vel framkvæmdirnar ganga.
Þarfagreining og rökstuðningur frá Rafni Markúsi Vilbergssyni skólastjóra Njarðvíkurskóla vegna beiðni um viðbótarhúsnæði við Ösp, sérhæft námsúrræði fyrir fatlaða nemendur, lögð fram.
Menntaráð tekur undir þarfagreiningu og rökstuðning skólastjóra Njarðvíkurskóla um mikilvægi þess að fá viðbótarhúsnæði við Öspina og samþykkir fyrir sitt leyti. Menntaráð vísar þarfagreiningunni til nánari umræðu í bæjarráði.
Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs lagði fram tillögu um nýtingu Skólavalla, húsnæðis á malarvellinum við Hringbraut, fyrir skólaárið 2026-2027. Gert er ráð fyrir að allt almennt bekkjarstarf Holtaskóla fari fram í aðalbyggingu skólans frá og með hausti 2026 og er lagt til að um það bil helmingur húsnæðis Skólavalla verði nýtt fyrir starfsemi frístundaheimilis Holtaskóla skólaárið 2026-2027.
Menntaráð tekur undir rökstuðning sviðsstjóra menntasviðs varðandi nýtingu á Skólavöllum undir frístundastarf Holtaskóla fyrir skólaárið 2026-2027 og samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti. Ætla má að miðað við byggingaráætlun skólans geti frístundastarfið flutt inn í Holtaskóla haustið 2027. Menntaráð vísar þarfagreiningunni til nánari umræðu í bæjarráði.
Ríkharður Ibsen sat hjá við afgreiðslu málsins.
Skóladagatöl allra grunnskóla Reykjanesbæjar fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram.
Menntaráð staðfestir skóladagatölin. Þau verða birt á heimasíðum skólanna.
Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs fór yfir stöðu innritunar í leikskóla Reykjanesbæjar.
Meirihluti menntaráðs fagnar því að öllum börnum fæddum 2024 hafi verið boðið leikskólapláss. Leikskólafulltrúi ásamt leikskólastjórum vinna að því að greina laus pláss í leikskólum sveitarfélagsins til að bjóða næst börnum fæddum 2025 inngöngu. Niðurstöðu úr þeirri vinnu má vænta í lok aprílmánaðar.
Harpa Björg Sævarsdóttir og Ríkharður Ibsen (D) lögðu fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar D-lista fagna því að embættismenn og starfsmenn Reykjanesbæjar séu að bregðast vel við þeirri gagnrýni sem hefur verið á stöðu leikskólamála í sveitarfélaginu. Ljóst er að það verður áskorun að koma þessum málum í gott horf. Brýnt er að fylgja þessari vinnu eftir svo við sjáum betri tölfræði og stöðu sem til stendur að kynna í maí.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:55. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 21. apríl 2026.