397. fundur

19.06.2026 08:15

397. fundur menntaráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 þann 19. júní 2026 kl. 08:15

Viðstaddir:

Fulltrúar menntaráðs: Berglind Ragnarsdóttir formaður, Bjarni Halldór Heiðuson, Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, Ragnar Már Ragnarsson og Sigrún Þorsteinsdóttir.

Fulltrúar leikskólaráðs: Ásdís Ólafsdóttir formaður, Hildur Björnsdóttir, Logi Þór Ágústsson og Sighvatur Jónsson.

Díana Hilmarsdóttir boðaði forföll og sat Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir fundinn í hennar stað.
Harpa Björg Sævarsdóttir boðaði forföll.

Að auki sátu fundinn Sigurbjörg Róbertsdóttir fulltrúi skólastjóra grunnskóla, Anita Engley Guðbergsdóttir fulltrúi FFGÍR, Brynja Aðalbergsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Linda Hlín Heiðarsdóttir fulltrúi leikskólakennara, Maciej Baginski fulltrúi foreldra leikskólabarna, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs, Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir leikskólafulltrúi, Bergljót Sif Stefánsdóttir leikskólafulltrúi og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Um sameiginlegan fund menntaráðs og leikskólaráðs var að ræða en gerðar voru tvær fundargerðir, ein fyrir menntaráð og önnur fyrir leikskólaráð.

Menntaráð samþykkti 5-0 að taka á dagskrá málið Skipting embætta í menntaráði (2026060289). Fjallað var um málið undir dagskrárlið 1.
Menntaráð samþykkti 5-0 að taka á dagskrá málið Siðareglur kjörinna fulltrúa (2026050308). Fjallað var um málið undir dagskrárlið 3.

1. Skipting embætta í menntaráði (2026060289)

Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þann 2. júní 2026 voru eftirtaldir kjörnir aðal- og varafulltrúar í menntaráð kjörtímabilið 2026-2030:

Aðalfulltrúar: Berglind Ragnarsdóttir (D), Sigrún Þorsteinsdóttir (M), Ragnar Már Ragnarsson (D), Díana Hilmarsdóttir (B) og Bjarni Halldór Heiðuson (S).

Varafulltrúar: Þorsteinn Ingi Hjálmarsson (M), Hjörleifur Stefánsson (D), Hermann Borgar Jakobsson (D), Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir (B) og Vala Ósk Ólafsdóttir (S).

Bæjarstjórn kaus Berglindi Ragnarsdóttur sem formann menntaráðs.

Menntaráð kaus í eftirtalin embætti:

Sigrún Þorsteinsdóttir var kjörin varaformaður menntaráðs.

Ragnar Már Ragnarsson var kjörinn ritari menntaráðs.

2. Erindisbréf menntaráðs (2026060120)

Drög að erindisbréfi menntaráðs lögð fram til kynningar. Fulltrúum ráðsins gefst kostur á að senda inn athugasemdir og verður erindisbréfið lagt fram á næsta fundi ráðsins áður en það fer til umfjöllunar og afgreiðslu forsetanefndar.

3. Siðareglur kjörinna fulltrúa (2026050308)

Siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Reykjanesbæ lagðar fram til kynningar. Kjörnum fulltrúum ber að tileinka sér þessar siðareglur og lýsa því yfir að þeir séu reiðubúnir til að hafa þessar siðareglur að leiðarljósi. Kjörnir fulltrúar munu undirrita siðareglurnar því til staðfestingar.

4. Mælaborð menntasviðs - fyrsti ársfjórðungur 2026 (2026060250)

Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs kynnti mælaborð sviðsins fyrir fyrsta ársfjórðung 2026.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:50. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarráðs 25. júní 2026.