398. fundur

21.08.2026 08:15

398. fundur menntaráðs Reykjanesbæjar var haldinn að Grænásbraut 910 þann 21. ágúst 2026 kl. 08:15

Viðstaddir: Berglind Ragnarsdóttir formaður, Ásta María Guðmundsdóttir, Bjarni Halldór Heiðuson, Hermann Borgar Jakobsson og Sigrún Þorsteinsdóttir.

Að auki sátu fundinn Hlynur Jónsson fulltrúi skólastjóra grunnskóla, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs, Haraldur Axel Einarsson grunnskólafulltrúi og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Diana Hilmarsdóttir boðaði forföll og sat Ásta María Guðmundsdóttir fundinn í hennar stað.
Ragnar Már Ragnarsson boðaði forföll og sat Hermann Borgar Jakobsson fundinn í hans stað.

1. Mælaborð menntasviðs - hálfs árs uppgjör 2026 (2026060250)

Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs kynnti mælaborð sviðsins fyrir janúar til júní 2026.

Menntaráð telur mikilvægt að fylgjast vel með áframhaldandi þróun mælaborðsins og skólastarfs í sveitarfélaginu.

2. Árangursmælikvarðar - mælaborð grunnskólastarfs (2026080226)

Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs kynnti tillögu um að hafin verði markviss vinna við að yfirfara og þróa árangursmælingar í grunnskólastarfi Reykjanesbæjar. Markmiðið er að skapa heildstæða yfirsýn yfir lykilþætti skólastarfs og kanna hvernig nýta megi samræmd gögn og árangursmælikvarða með markvissari hætti til umbóta og til að styðja við öflugt skólastarf í öllum grunnskólum sveitarfélagsins.

Lagt er til að starfshópur innan stjórnsýslunnar leiði verkefnið. Í hópnum verði sviðsstjóri menntasviðs, grunnskólafulltrúi, deildarstjóri skólaþjónustu og yfirsálfræðingur skólaþjónustu. Starfshópurinn hafi jafnframt samráð við skólastjórnendur og aðra hagaðila eftir því sem vinnunni vindur fram.

Menntaráð samþykkir tillöguna.

3. Stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga - endurskoðun (2026070062)

Innviðaráðuneytið hefur ýtt úr vör vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga þar sem fyrsta skrefið er gerð grænbókar um málefnið. Í grænbók birtist stöðumat á helstu lögbundnu verkefnum og öðrum viðfangsefnum sveitarfélaga og greiningu áskorana og tækifæra, sem lagt verður til grundvallar endurskoðunar stefnu og aðgerðaáætlunar í málaflokknum. Bæjarráð vísaði málinu til sviðsstjóra bæjarins og fól þeim að svara spurningum tengdum þeirra sviðum í samráði við viðkomandi ráð.

Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs kynnti drög að svörum við spurningum sem tengjast menntamálum.

Menntaráð samþykkir framlögð svör sem snúa að menntasviði og vísar þeim til bæjarráðs.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:07. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 1. september 2026.