- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Berglind Ragnarsdóttir formaður, Díana Hilmarsdóttir, Bjarni Halldór Heiðuson, Sigrún Þorsteinsdóttir og Þorsteinn Ingi Hjálmarsson.
Að auki sátu fundinn Hlynur Jónsson fulltrúi skólastjóra grunnskóla, Guðrún Sigríður Egilsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Anita Engley Guðbergsdóttir fulltrúi FFGÍR, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs, Haraldur Axel Einarsson grunnskólafulltrúi og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.
Ragnar Már Ragnarsson boðaði forföll og sat Þorsteinn Ingi Hjálmarsson fundinn í hans stað.
Haraldur Axel Einarsson grunnskólafulltrúi fór yfir upplýsingar varðandi upphaf skólastarfs í grunnskólum Reykjanesbæjar haustið 2026.
Skólastarf í grunnskólum Reykjanesbæjar hófst samkvæmt skóladagatali þriðjudaginn 25. ágúst 2026. Í upphafi skólaárs eru alls 2.727 nemendur skráðir í grunnskóla sveitarfélagsins, sem er sambærilegur fjöldi og við upphaf síðasta skólaárs. Af þessum hópi eru 305 nemendur í 1. bekk, en 235 þeirra tóku þátt í sumarfrístund áður en skólastarf hófst sem var frá 11.–24. ágúst. Í upphafi skólastarfs eru 743 nemendur í 1.–4. bekk á frístundaheimilum. Í upphafi síðasta skólaárs voru þeir 591. Það gerir um 26% aukningu.
Hjördís Eva Þórðardóttir, verkefnastjóri farsældar barna á Suðurnesjum, mætti á fundinn og fór yfir greiningu á farsæld barna í Reykjanesbæ árin 2023 til 2026, en sú greining leggur mælikvarða Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar saman í eina farsældarvísitölu.
Menntaráð fagnar þeirri jákvæðu þróun sem mælist í farsæld barna í Reykjanesbæ og telur mikilvægt að niðurstöðurnar verði nýttar markvisst til áframhaldandi umbóta.
Menntaráð lýsir jafnframt áhyggjum af því að sérstakt viðbótarfjármagn ríkisins til sveitarfélaga vegna innleiðingar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna falli niður um næstu áramót, verði fjárlagafrumvarp 2027 samþykkt óbreytt að þessu leyti. Mikilvægt er að tryggja áframhaldandi fjármögnun þeirrar þjónustu svo markmið um snemmtækan og samþættan stuðning við börn og fjölskyldur náist.
G. Hans Þórðarson verkefnastjóri frá OMR verkfræðistofu mætti á fundinn og kynnti stöðu framkvæmda í Holtaskóla og Myllubakkaskóla.
Menntaráð fagnar því að allir nemendur séu komnir undir eitt þak í bæði Holtaskóla og Myllubakkaskóla og ítrekar mikilvægi þess að tryggt verði nægjanlegt fjármagn í fjárhagsáætlun 2027 svo unnt verði að ljúka fyrirhuguðum framkvæmdum við báða skóla að fullu fyrir lok árs 2027.
Á fundi menntaráðs 21. ágúst sl. var samþykkt að stofnaður yrði starfshópur til að yfirfara og þróa árangursmælingar í grunnskólastarfi Reykjanesbæjar.
Haraldur Axel Einarsson grunnskólafulltrúi fór yfir nánari skilgreiningu verkefnisins.
Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs fór yfir verklag og áherslur í vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
Menntaráð tekur jákvætt í þá vinnu sem fram undan er við að skoða heildstæðara skipulag frístundaþjónustu og mögulega sameiningu frístundaheimila, félagsmiðstöðva og vinnuskóla undir einn hatt. Slík nálgun skapar tækifæri til aukinnar samfellu í þjónustu við börn og ungmenni, betri nýtingar mannauðs og aðstöðu og öflugra samstarfs milli þjónustuþátta. Mikilvægt er að áframhaldandi vinna byggi á þeirri heildarsýn að frístundaþjónusta sé mikilvægur þáttur í lífsgæðum og forvörnum. Mikilvægt er að þessi vinna fari fram í góðu samstarfi við alla hagaðila.
Jafnframt leggur menntaráð áherslu á að við núllgrunnsvinnu fjárhagsáætlunar verði möguleg hagræðing metin út frá áhrifum á þjónustustig og gæði. Fyrirliggjandi gögn sýna að Reykjanesbær er nú þegar með lágan kostnað til fræðslumála í samanburði við önnur stór sveitarfélög og því þarf að gæta þess að hagræðing leiði ekki til skerðingar á þjónustu við börn og fjölskyldur.
Drög að erindisbréfi menntaráðs lögð fram og samþykkt með minniháttar athugasemdum.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:56. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 15. september 2026.