95. fundur

25.03.2026 13:00

95. fundur neyðarstjórnar Reykjanesbæjar, fjarfundur haldinn 25. mars 2025 kl. 13:00

Viðstödd: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður bæjarráðs, Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs, Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Kristrún Björgvinsdóttir markaðs- og kynningarfulltrúi og Halldóra G. Jónsdóttir sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs sem jafnframt ritaði fundargerð.

1. Appelsínugul veðurviðvörun fimmtudaginn 26. mars 2026

Appelsínugul viðvörun í kortunum frá 7-13 fimmtudaginn 26. mars 2026.

Ferðaþjónusta Reykjanes keyrir ekki á meðan appelsínugul viðvörun er í gangi. Þar af leiðandi fellur niður þjónusta í dagdvölum í Selinu og á Nesvöllum, Hæfingarstöðinni og Björginni.

Gert er ráð fyrir að forstöðumenn stofnana vakti sitt húsnæði og beri ábyrgð á því á meðan veðrið stendur yfir.

Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, er að fara á fund kl. 14.30 í dag með viðbragðsteymi vegna veðurs til að fara yfir stöðuna, aðallega varðandi flug, en Reykjanesbær er aðili að þessum hópi með veðurstofunni og öðrum.

Neyðarstjórn mun funda aftur kl. 7.00 í fyrramálið til að taka stöðuna á færð og meta hvort ástæða sé til að gefa út frekari viðvaranir eða loka skólum/stofnunum. Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs verður þá búinn að taka stöðuna hjá umhverfismiðstöðinni varðandi færð á vegum.

Send verður út sambærileg tilkynningu og Almannavarnir sendu út:

Búast má við samgöngutruflunum tengdum stórhríðinni og er þetta á þeim tíma sem mest umferð er af fólki til vinnu og í skóla. Eftir hríðina kemur til með að rigna duglega og því hvetjum við sveitarfélög til að huga að niðurföllum. Einnig biðjum við sveitarfélög að reyna að koma skilaboðum til byggingaraðila að huga að byggingarsvæðum vegna vindstyrks.

Veðurspá er eftirfarandi í appelsínugulri viðvörun:

Suðaustan 20-28 m/s og vindhviður staðbundnar yfir 40 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu eða slyddu með slæmu skyggni og versnandi færð. Ekkert ferðaveður. Einnig er hætta á foktjóni og er fólk er hvatt til að tryggja lausamuni.

Appelsínugul viðvörun

Drög að fréttatilkynningu:

Appelsínugul veðurviðvörun í gildi á morgun

Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun sem gildir frá kl. 07:00 til 13:00 á morgun, 26. mars.

Neyðarstjórn sveitarfélagsins hefur farið yfir stöðuna og fer skólastarf fram að svo stöddu nema annað verði sérstaklega tilkynnt. Forsjáraðilar eru eindregið hvattir til að meta hvort aðstæður séu öruggar fyrir börn að komast í og úr skóla. Mikilvægt er að fylgja börnum inn og út úr skólabyggingum til að tryggja öryggi, sérstaklega með hliðsjón af veðri, færð og aðstæðum í nærumhverfi.

Förum varlega og fylgjumst vel með veðurspám og upplýsingum frá Veðurstofu Íslands, viðbragðsaðilum, sveitarfélaginu og öðrum þjónustuaðilum, þar á meðal varðandi akstur innanbæjarstrætós og aðra samgönguþjónustu.

Við hvetjum öll til að huga að niðurföllum og lausamunum.


Neyðarstjórn mun funda kl. 7:00 í fyrramálið og verða upplýsingar uppfærðar ef forsendur breytast.

Punktar af fundi VAST kl. 14:30

Það fer að hvessa í kvöld (10-15 m/sek) og verður hvasst (aust/suðaustan) framundir hádegið á morgun. Úrkoma – það byrjar að snjóa um kl. 03 í nótt og mun snjóa mikið til um kl 10 þegar þetta fer út í slyddu og svo rigningu. Varla hægt að tala um jafnfallinn snjó í svona veðri en talað var um úrkomu upp á 10-15 sm jafnfallin snjó áður en það fer að rigna. Þar sem það eru töluverðir hryggir nú þegar við götur er líklegt að færð spillist eitthvað á einhverjum stöðum. Mestur vindur verður milli 9-10 í fyrramálið þegar kviður geta farið allt upp í 40/m/sek þegar verst lætur. Reykjanesbraut verður á óvissustigi, þ.e. Vegagerðin mun reyna að halda henni opinni eins og hægt er en verða klárir í að loka henni með stuttum fyrirvara. Búið að gera ráð fyrir lokunum í Þrengslum, á Hellisheiði og Suðurstrandarvegi.

Líklegt (ákvörðun ekki tekin á fundinum en lá í loftinu) að komum Ameríkuflugs til landsins verði frestað til hádegis með tilheyrandi seinkunum á öðru flugi til Evrópu.

Vindaspá 26. mars 2026 kl. 09:00


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:25.