- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstödd: Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir formaður bæjarráðs, Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs, Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Kristrún Björgvinsdóttir markaðs- og kynningarfulltrúi, Einar Jónsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar, Einar Snorrason verkefnastjóri á umhverfis- og framkvæmdasviði og Halldóra G. Jónsdóttir sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs sem jafnframt ritaði fundargerð.
Lítur vel út með færð eins og er. Hiti er hærri en áætlað var svo mögulega mun snjóa minna en áætlað er og fara yfir í rigningu.
Reykjanesbraut er opin, þar eru 14-18 metrar og skafrenningur.
Ekki talið að aðgerða sé þörf vegna skólahalds. Sendum út tilkynningu þess efnis.
Ferðaþjónusta Reykjanes keyrir ekki á meðan appelsínugul viðvörun er í gangi. Þar af leiðandi fellur niður þjónusta í dagdvölum í Selinu og á Nesvöllum, Hæfingastöðinni og Björginni.
Gerum ráð fyrir að forstöðumenn stofnana vakti sitt húsnæði og beri ábyrgð á því á meðan veðrið stendur yfir.
Veðurspá er eftirfarandi í appelsínugulri viðvörun:
Suðaustan 20-28 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu eða slyddu með slæmu skyggni og versnandi færð. Ekkert ferðaveður. Einnig er hætta á foktjóni og er fólk er hvatt til að tryggja lausamuni.
Drög að tilkynningu:
Neyðarstjórn sveitarfélagsins hefur farið yfir stöðuna. Skólahald fer fram í dag að óbreyttu. Þótt skólar séu opnir, þurfa foreldrar að meta öryggi barna sinna og verður tekið fullt tillit til þess ef foreldrar kjósa að halda börnum sínum heima en óskað er eftir því að skólar séu látnir vita ef forföll verða eða ef börn komast ekki í skólann. Skráð verður leyfi eða forföll hjá þeim börnum. Mikilvægt er að fylgja börnum inn og út úr skólabyggingum til að tryggja öryggi, sérstaklega með hliðsjón af veðri, færð og aðstæðum í nærumhverfi.
Allir vegir eru opnir og umhverfismiðstöð sveitarfélagsins er í fullum gangi til að halda vegum færum.
Heima-og stuðningsþjónusta mun skerðast og verður þjónustu forgangsraðað til þjónustunotenda í dag. Dagþjónusta mun skerðast í dagdvölum eldri borgara, Hæfingarstöðinni og Björginni en þjónusta í sólarhringsúrræðum hefur verið tryggð.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 7:15.