- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Guðný Birna Guðmundsdóttir formaður, Athena Júlía Józefudóttir, Bjarni Halldór Heiðuson og Þóranna Kristín Jónsdóttir.
Að auki sátu fundinn Bryndís Ólína Skúladóttir fulltrúi ungmennaráðs, Anna Karen Sigurjónsdóttir sjálfbærnifulltrúi, Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.
Hjörtur Magnús Guðbjartsson boðaði forföll og sat Bjarni Halldór Heiðuson fundinn í hans stað.
Guðni Ívar Guðmundsson boðaði forföll.
Kristján Ásmundsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Hrefna Gunnarsdóttir persónuverndarfulltrúi og Kristrún Björgvinsdóttir markaðs- og kynningarfulltrúi mættu á fundinn. Ólafur Bergur Ólafsson verkefnastjóri Fjörheima kom inn á fundinn í gegnum fjarfundabúnað. Rætt var um þátttöku Fjölbrautaskóla Suðurnesja í aðdraganda kosninga, kosningamál hjá Reykjanesbæ og markaðs- og kynningarmál tengd kosningum.
Skólameistari tók vel í þá hugmynd að halda skuggakosningar tengdar sveitarstjórnarkosningum í fyrsta sinn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja og er stefnt að því að þær verði haldnar í lýðræðisvikunni 22.-29. apríl næstkomandi.
Eydís Rós Ármannsdóttir verkefnastjóri fjölmenningar mætti á fundinn og fór yfir stöðu verkefnisins, en fyrsta vinnustofan fór fram 19. mars síðastliðinn og var góð þátttaka í henni.
Sjálfbærniráð fagnar áhuga á vinnustofunni tengdum aukinni kosningaþátttöku íbúa af erlendum uppruna.
Guðný Birna Guðmundsdóttir formaður sjálfbærniráðs fór yfir hugmyndir að samantekt um málið.
Fylgigögn:
Upplýsingar um málið má skoða með því að smella hér
Anna Karen Sigurjónsdóttir sjálfbærnifulltrúi gerði grein fyrir stöðu málsins.
Anna Karen Sigurjónsdóttir sjálfbærnifulltrúi fór yfir stöðu málsins.
Samræma þarf innkaup á sorpílátum fyrir starfsstöðvar Reykjanesbæjar. Sjálfbærniráð vísar málinu til skoðunar hjá bæjarráði.
Málinu frestað til næsta fundar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:05. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 7. apríl 2026.