- Þjónusta
- Velferð og stuðningur
- Menntun og fræðsla
- Skipulags-, bygginga- og umhverfismál
- Íþróttir og tómstundir
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- Mitt Reykjanes
Viðstaddir: Guðný Birna Guðmundsdóttir formaður, Athena Júlía Józefudóttir, Guðni Ívar Guðmundsson, Hjörtur Magnús Guðbjartsson og Þóranna Kristín Jónsdóttir.
Að auki sátu fundinn Bryndís Ólína Skúladóttir fulltrúi ungmennaráðs, Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.
Erla Bjarný Gunnarsdóttir, lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs, mætti á fundinn og gerði grein fyrir stöðu uppbyggingar á hverfahleðslustöðvum við stofnanir Reykjanesbæjar samkvæmt þjónustusamningi sem gerður var við Orku náttúrunnar í desember 2022 til sex ára. Gerður var samningur um átak í að uppsetningu hleðslustöðva í hverfum bæjarins. Hleðslustöðvar hafa verið settar upp á nokkrum stöðum en halda þarf áfram og setja upp fleiri stöðvar. Farið verður af stað á árinu með að setja upp stöðvar við leikskólana Drekadal og Asparlaut. Mikil ásókn er í stöðvarnar og mikilvægt að haldið verði áfram með verkefnið.
Máli frestað.
Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu mætti á fundinn og kynnti stöðu verkefnisins. LED ljós eru í öllum nýjum byggingum sveitarfélagsins og unnið er að LED væðingu leikskólanna. Lögð er áhersla á vinnu- og heilsuverndarsjónarmið og góða endingu við val á lýsingu. Verkefnið gengur vel og er í góðu flæði.
Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála gerði grein fyrir málinu.
Sjálfbærniráð leggur ríka áherslu á að haldið verði áfram með þróun sjálfbærnimála hjá Reykjanesbæ á grunni sjálfbærniskýrslunnar, meðal annars með samræmingu sorpflokkunar hjá stofnunum sveitarfélagsins og sjálfbærri innkaupa- og fjármálastefnu.
Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála fór yfir endurbætur á grenndarstöðvum sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Ein stærsta breytingin felst í því að nú taka grenndarstöðvar við níu flokkum úrgangs í stað fjögurra.
Sjálfbærniráð fagnar bættri þjónustu á grenndarstöðvum.
Fylgigögn:
Grenndarstöð í Reykjanesbæ - mynd
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:40. Fundargerðin fer til afgreiðslu bæjarstjórnar 19. maí 2026.